Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Blaðsíða 30
NyJUNGAR
TÆKNI
Litgrafískur stjórnbúnaður
í Áburðarverksmiðjuna
Vélfræðingar og vélgæslu-
menn frá Áburðarverksmiðju
Ríkisins hafa að undanförnu
verið á stuttum kynningarnám-
skeiðum í Vélskóla íslands í
Reykjavík. Hvatamaðurinn að
þessum kynningarnámskeið-
um er Lúðvík Ögmundsson raf-
tæknifræðingur við Áburðar-
verksmiðju Ríkisins en kennari
Björgvin Þór Jóhannsson.
Útgerðarmenn — vélstjórar.
önnumst allar raflagnir og viðgerðir í bátum, skipum og verk-
smiðjum. Áratuga þjónusta viö íslenskan sjávarútveg tryggir
reynslu og öryggi frá sérþjálfuðu starfsfólki.
Ástæðan fyrir þessu nám-
skeiðshaldi er að fyrirhugaðar
eru talsverðar breytingar á
stjórnbúnaði verksmiðjunnar
sem meðal annars eru fólgnar í
aukinni fjarstýringu og stillibún-
aði og að litgrafískir skjáir og
lyklaborð leysa af hólmi hefð-
bundnar stjórntöflur og stjórn-
borð.
Vélarrúmshermir Vélskóla
íslands í Reykjavík er einmitt
búinn litgrafískum skjám og
lyklaborðum og er því ákjósan-
legur bæði til kynningar og
þjálfunar á þessum nýja stjórn-
búnaði. Vélarrúmshermirinn er
útbúinn þrem nemendastöðv-
um og einni kennarastöð en
þetta skapar möguleika á að
kenna níu nemendum samtím-
is.
Meðfylgjandi mynd sýnir
einn af sex hópum sem þátt
tóku í kynningarnámskeiðun-
um.
Mörg fyrirtæki hér á landi
hafa nú þegar tekið í notkun
þennan stjórnbúnað, þ.e. með
litgrafískum skjáum og lykla-
borðum, og er óhætt að fullyrða
að sú reynsla sem fengist hpfur
lofar góðu um framhaldið. í
þessu sambandi má nefna eft-
irfarandi fyrirtæki: Landsvirkjun
(stjórnstöð á Geithálsi), Hita-
veitu Reykjavíkur, Hitaveitu
Suðurnesja og einhverjar fiski-
mjölsverksmiðjur hafa einnig
tekið þennan búnað í þjónustu
sína.
Helstu kostir þessa búnaðar
eru: Heildarkerfinu er deilt nið-
ur í hlutakerfi sem hægt er að
kalla fram á skjáinn á hraðan
og auðveldan hátt en þetta ein-
faldar aðstæður og eykur yfir-
sýn. Minni hætta á mistökum
þar sem öll inngrip í einingar
ákveðins kerfis, eða upplýs-
ingaöflun frá kerfinu, fer fram á
lit-skjámynd sem sýnir viðkom-
andi kerfi.
Staða einingarinnar í kerfinu
er táknuð með lit. Þetta þýðir að
dæla sem er starfandi fær lit
lagnarinnar en sé hún í kyrr-
stöðu er tákn hennar hvítt og
það sama gildir um loka þannig
að lokaður loki er hvítur en sé
hann opinn fær hann lit lagnar-
innar. Allar aðgerðir eru fram-
kvæmdar frá einum stað þann-
ig að stjórnandi þarf ekki að
vera á ferð og flugi.
Erlendis er þegar byrjað að
nýta litgrafíska skjái í stjórn-
klefa og brú stærri skipa enda
er aukin tækni og hagræðing
um borð ein mikilvægasta for-
senda þess að skipið geti stað-
ið sig í þeirri hörðu samkeppni
sem í dag ríkir á heimshöfun-
um.