Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Blaðsíða 34
TÆKMI
NyJUMGAR
34 VÍKINGUR
einni bylgjulengd fer nú sjálf-
krafa sem grunnur í reiknimód-
el stilliforritsins þar sem ný P, I
og D gildi eru reiknuð út og sett,
á sjálfvirkan hátt, inn á stillinn.
Með þessu móti má oft spara
mjög tímafreka vinnu. Við
hægfara ferli getur stillirinn
þ. .rft aþ starfa allt að 32 klukku-
stundir við þessa forinnstill-
ingu. Framleiðandi tekur það
fram aö ekki sé rétt aö nota
þennan sjálfvirka innstillibúnað
á stillikerfi sem starfa með
mjög löngum dátíma (dead-
time).
Framleiðandi bendir enn-
fremur á að best sé að stillibún-
aðurinn starfi við álag sem ligg-
ur sem næst algengasta álagi
meðan stillirinn vinnur að for-
innstillingu.
Nú getur komið upp sú staða
að bæði tímastuðlar og dátímar
stillikerfisins séu breytilegir
með álaginu, eins og algengt er
í hitakerfum vegna mismun-
andi massastreymis. Sagt er
um slík kerfi að þau séu ólínu-
leg. Stillirinn er fær um að
mæta þessu atriði með því að
finna þrjár mismunandi, P, I og
D innstillingar, sem passa fyrir
þrjú mismunandi álagsstig og
skiptir stillirinn sjálfkrafa á milli
þeirra þegar farið er frá einu
álagsstigi yfir á annað.
Mynd nr. 4 sýnir mælingu á
stýristærð sem notuð er til að
skipta á milli hinna mismunandi
P, I og D gildi.
Mynd nr. 5 sýnir dæmi um
ólínulegt ferli og skrá yfir sam-
hengi álags og mismunandi P, I
og D gildi.
Fleiri framleiöendur en sá
sem hér um ræðir bjóða upp á
svipaða möguleika á stillum.
Á siðastliðnum árum, og nú
sem stendur, hafa átt sér stað
miklar framkvæmdir í hitaveitu-
málum. Auk þess hafa verið
gerðar miklar endurbætur á
sumum fiskimjölsverksmiðjum
og einnig er verið að skipu-
leggja talsverðar endurbætur á
stjórnbúnaði Áburðarverk-
smiðju Ríkisins. í öllum þeim
tilvikum sem hér voru nefnd
koma stillar og stillibúnaður
mjög við sögu.
GS ref Mynd 5
Vinnugalli sem flýtur
Sjóklæðagerðin h.f. í Reykjavík
hefur nú sett á markað nýja
gerð vinnugalla sem fljóta og
eru að sögn framleiðenda þjálir
til vinnu. Gallar þessir bera
nafniö Mullion-66°N og er ytra
byrði úr neoprenenælonefni
með vatnsheldishúðun.
Ekki þarf að fjölyrða um
hvaða öryggi er í því fólgið að
sjómenn séu í flotgöllum við
vinnu sína um borð. Helsti
vandi sem við er að glíma er að
flestir eru gallarnir óþjálir til
vinnu ef þeir eiga að koma að
gagni sem björgunargallar.
Mullion-flotgallinn þarf enga
sérstaka umhiröu utan þess að
þvo má hann annað slagið úr
volgu sápuvatni. Olíu- og máln-
ingarslettur má fjarlægja með
venjulegum hreinsiefnum. Ef
gat kemur á gallann er nóg að
líma bót yfir gatið. En þótt gat
komi á hann hefur það engin
áhrif á flothæfni hans. Flotheld-
isbúningar eins og Mullion-flot-
gallinn byggjast á sömu fors-
endum og blautbúningar kaf-
ara að því leyti að vatn sem í þá
kemst hitnar af líkamshitanum.
Framleiðendur mæla með
því að þeir sem lenda í sjónum
eða öðru volki í Mullion-66°N
vinnugallanum fari ekki úr hon-
um fyrr en þeir komast í heita
sturtu.