Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Blaðsíða 37
NýJUNGAR
TÆKNI
Rascar 3400M og uppfyllir hún
öll skilyröi IMO (Alþjóðasigl-
ingamálastofnunar) um 340
mm radarskjá (þvermál) og 16
tomma ARPA. Skjárinn allur
hefur þó 25 tomma hornalínu,
en auk radarskjás hefur hann
ýmsar upplýsingar og stjórn-
borö. Skjárinn er einlitur
(monochrome). Rascar 2500 C
hefur nokkru minni skjá eöa 19
tomma hornalínu. Þetta er lita-
skjár meö ARPA útfærslu og
radarskjárinn hefur 250 mm
þvermæli. Þessi gerð uppfyllir
öll skilyrði fyrir radar sem hefur
búnaö fyrir ratsjárútsetningu
og vel þaö. Þriðja gerðin er
Rascar 2500 m og er aö öllu
leyti eins og Rascar 2500 C
nema radarskjárinn sýnir end-
urvarp aðeins í grænum lit og
nyndflötur er svartur. Allar
geröirnar hafa snertistjórnun
og þarf skipstjórnarmaður
aöeins aö drepa fingri á skjáinn
þar sem endurvarp er, vilji
hann fá upplýsingar um endur-
varpið. Nákvæmni mælinga á
fjarlægö og miöun fer eftir því
hvaö fingur þess sem mælir er
nettur. Snertiskjárinn er sér-
staklega sterkbyggöur og
skemmist ekkert þótt oddhvass
hlutur falli af slysniofan áhann.
Hann er þrátt fyrir það mjög
næmur fyrir snertingu af fingri
manns. Hlutur sem ekki leiðir
rafmagn svo sem afþurrkunar-
klútur hefur engin áhrif á skjá-
inn. Umboð fyrir Sperry hér á
landi hefur Friðrik A. Jónsson
h.f. Skipholti 7, Reykjavík.
Önglar framtíðarinnar
^Juratin
Skoðun og viðgerðir gúmmibáta
allt árið
Teppi og dreglar til skipa
ávallt fyrirlyggjandi
GÚMMIBÁTAÞJÓNUSTAN
Eyjargötu 9 Örfirisey
Sími: 14010
Þar sem mengun er vaxandi,
einkum í ám og vötnum, er
sýrustig í vatninu vaxandi
vandamál. Ending veiöarfæra
og ekki síst öngla minnkar.
Önglar ryöga fyrr og verða
grófir og Ijótir. Norska fyrirtæk-
iö Mustad hefur snúist gegn
þessum vanda meö því aö þróa
framleiðsluaðferðina Duration.
Með þessari aöferö fæst betri
málmherðing og húöun. Efnið í
önglunum er supercarbon-stál,
sem þolir mikla herslu. Öngull-
inn verður sterkur, oddurinn
skarpari og hann hefur meiri
sveigjanleika án þess aö
bogna. Umboð fyrir Mustad hér
á landi hefur Ö. Johnson &
Kaaber h.f., Sætúni 8, Reykja-
vík.