Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Qupperneq 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Qupperneq 42
Neyðarblysið „Já, en það er ekki neyðarbtys, það er raketta", sagði maðurínn. „Já, en er það ekki neyðarraketta ef það er rauð sól?“, stamaði Þorgeir. „Það fer eftir ýmsu, til dæmis árstima og stað- setningu. Fyrir það fyrsta þá eru engir báta að þvælast úti við Akurey núna og í öðru lagi þá eru ekki nema 2 dagar siðan gamiárskvöid var“, sagði maðurinn og var pirraður. „En hver erað skjóta upp rakettu úti á flóa núna rétt um miðnætti. „Það liggur rússneskt olíuskip rétt fyrir utan innsiglinguna. Ætli þeir séu ekki að fagna nýja árinu og skjóta upp gömlum skiparakettum?", sagði maðurinn og lét fætur sínar detta pirrings- lega niður á gólf. „Já, en... þú heldur sem sagt ekki...að þetta hafi veriðneyðarraketta?", sagðiÞorgeirsem var farinn að stama ferlega. „Nei, það voru ekki mín orð. Þú segist sjálfur ekki vera viss“. Þorgeir fannst eins og nú ætti að kenna honum um allt eða að hann ætti að fara út með ruslið. Það varð þögn. „Er ekki vissara að athuga rnálið?", hikstaði Þorgeir út úr sér. „Hvað á ég að gera, kalla út heila leitarsveit? Nei, við köllum ekki út leitarsveit nema það sé örugglega neyðarkall", sagði maðurinn og stóð upp til að rétta úr bakinu. Erlendur stóð i skut bátsins og veifaði síðasta neyðarblysinu. Báturínn var hálfur af sjó og kast- aðist til igrjótinu. Rauður loginn virtist svo angar- lítill í þessu stóra myrkri og rokið næstum kæfði eldinn. Stór alda réið yfir bátinn, stefið lyftist hátt upp, skall svo í grótið. Erlendur fann að báturinn myndi brátt láta undan höggunum. Hann mændi í land í von um að sjá einhvern á gangi, en á ströndinni stóðu aðeins Ijósastaurar með hang- andi höfuð og sjótungur teygðust upp á malbikið. Hann sá rauð afturljós bílanna sem geystust eftir Hringbrautinni. Erlendur heyrði grimmt brimið að baki sér. Hann sá stóra öldu koma vaðandi og hún varóhugnanlega nærrí. Þaðkom högg. Hann kastaðist til, missti blysið, í sömu andrá varhann i sjónum. Sjálfkrafa tóku hendurog fætur sundtök- in. Stórt stykki hafði brotnað úr síðu bátsins. Það kom önnur alda og bátsbrakið kastaðist lengra upp á skerið. „Hjálp", kallaðihann upp úrhvítu sjávarlöðrínu. Þorgeir hossaðist í vörubílnum og leyfði drungalegum sinfóníunum að glymja í útvarpinu. Hann stöðvaði bílinn fyrir utan hús Björgunar- sveitar Ingólfs. Þar var Ijós uppi í einum glugga. Háar loftnetsstengur voru á húsinu og stórir lit- sterkir fjallatrukkar fyrir utan. Allir störfuðu í sjálf- boðavinnu en aðal tekjulindin var sala á rakett- um. Allir sannir íslendingar keyptu rakettu til að styðja félagsskapinn. Og Þorgeir hafði bæði keypt rakettur og happadrættismiða frá því hann var krakki. Því hann vildi leggja sitt fram ef hann síðan þyrfti á hjálp að halda.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.