Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Side 44

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Side 44
Utan ur heimi Sigurbjörn Guömundsson stýrimaður 44 VÍKINGUR NIS (Norwegian International shipping register) Smá saman leka út þær launatölur, sem norski alþjóða- fáninn, NIS, býður uppá. Ara- grúi verður af launatöxtum, og verður boðið uppá sérsamn- inga sniðna fyrir þjóðir þriðja heimsins, og AusturEvrópu- þjóðir sem eru marðar undir „hamri og sigð“. Þessar þjóðir bjóða svo kröþp kjör, að at- vinnulitlir (-lausir) menn vilja allt til vinna til að skapa fjöl- skyldum sínum skárri kjör. Töl- ur þær, er ég birti, hef ég safn- að saman úr ýmsum áttum: Norskur fáni (búseta og skattar í Noregi): Yfirstýrimaður: 207.968 kr. ísl. (kaup, frid., orl. og ev.) Háseti: 120.510 kr. ísl. (kaup, fríd., orl. og ev.) NIS (alþjóðafáninn): Yfirstýrimaður, Filippseyjar: 77.805 kr. ísl. (kaup, fríd. og ev.). Yfirstýrimaður indverskur: 124.020 kr. ísl. (kaup, fríd. og ev.). Háseti, Filippseyingur: 32.375 kr. ísl. (kaup, fríd., orl. og 70 st. ev.). Háseti, indverskur: 28.786 kr. ísl. (kaup, fríd., orl. og 70 st. ev.). Háseti, íslendingur: 85.831 kr. ísl. (kaup, fríd., orl. og 70 st. ev.). Filippseyingurinn hefur því 38% af kaupi íslensks háseta og sá indverski einungis 34%. Indverska stýrimannakaupið virðist nálgast íslenskt stýri- mannakaup, sé miðað við 65 - 70 st. eftirvinnu, ásamt frí- og orlofsdögum. Þá eru einnig auglýst grunn- laun (basic) og hljóða þau eftir- farandi: Yfirstýrimaður: nkr. 15.750 = 92.137. kr. ísl. Háseti: nkr. 7.100 = 41.535 kr. ísl. Hvort frídagar, eru innifaldir veit ég ekki en þar sem margir af atvinnulausum félögum mín- um hafa spurt mig um þessi mál þá læt ég þetta flakka með. NIS vantar stýrimenn segir Handel og Sjöfart. Varla þarf að skýra það mál (sést hér á undan). Við félaga mína segi ég aðeins eitt áður en þeir bíta á krókinn. Gætið að ykkur, “and good luck”. í NIS greiðast sjómanna- skattar af tekjum yfir 6.000 nkr. sem krydd á þetta allt. Oft er það gott er gamlir kveða í seinustu reisu minni til Norðurlanda átti ég langt sam- tal við norskan lóðs. Lóðsinn var aldurhniginn og við starfs- lok. Sá gamli var saltvondur út í stjórnvöld á Norðurlöndum og eins í N-Evrópu fyrir framkomu gagnvart sjómönnum. Sá gamli fann sárt til með sjó- mönnum og þá ekki síst yfir- mönnum sem hafa eytt öllum sínum manndómsárum og menntun til að þjóna skipafé- lögum og vinna sig upp í starfi. Þessum sömu mönnum væri nú hent í land með hæst þriggja, fjögurra mánaða upp- sögn og margir þeirra á efri ár- um og ættu mjög erfitt með að ná í þokkaleg störf í landi svo ekki sé minnst á tekjur sem hjá mörgum ná ekki helmingi þess er þeir höfðu I stjórnunarstörf- um til sjós (með mikla eftir- vinnu). Nú eru ca 100 stýri- menn á kaupskip menntaðir í Noregi á ári. Fyrir 10 árum var fjöldinn 625 - 700 á ári. Hvað skeður á íslandi eftir 5-10 ár þegar við verðum búnir að tapa 80-90 % af okkar fólki í land? Koma þessir Austurlandabúar með verkfall og hækka sín laun um 200 - 300% og geta það því þá verða þeir alls ráöandi á heimshöfunum og við höfum hvorki menn né mótleik? Ég er þessum gamla lífsreynda hafn- sögumanni innilega sammála og því læt ég fljóta með það sem honum lá á hjarta um þessi mál. Eru farþegaskip af „Gullfoss- stærðinni" að verða vinsæl- ust? Mjög mikill fjörkippur virð- ist nú vera kominn í útgerð minni farþegaskipa af svipaðri stærð og Gullfoss okkar var. En farþegafjöldinn er einskorð- aður við 100-120 farþega sem eru loðnir um lófana. Sea Goddess skipunum var fyrst ýtt úr vör og útkoman virðist vera sú að mjög margir útgerðar- menn byggja nú svipaðar stærðir og yfirbjóða hver annan í lúxus og íburði. Hér sést eitt Sea Godde.ss skipanna.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.