Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Síða 56

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Síða 56
Enn á ný rennur upp hin helga jólahátíð, með tilheyrandi Ijósadýrð, söngvum, mat og gjöfum. Á flestum heimilum hefirjólanna verið beðið afmik- illi eftirvæntingu undanfarna daga. Sú eftirvænt- ing hefir að hluta fengið útrás við hefðbundin störf, bakstur, hreingerningar, innkaup, og skreytingu heimilisins. Tíminn er oft naumur því að flestir undirbúa jólahátíðina til viðbótar fullum vinnudegi. Þegar líður að jólum eru flestir hinna fullorðnu farnir að hlakka til hvíldar, orðnir dauð- þreyttir og áhyggjufulliryfir því hvernig takist nú til í þetta sinn. Gjarnan gleyma menn sér í undirbúningnum. Á stundum missa þeir sjónar á þeim boðskap, sem fluttur er með komu jólanna, og sjá aðeins aukið erfiðið og leiðinleg skyldurstörf á heimilinu. Kök- urnar er því bakaðar á kvöldin, á svefntíma barn- anna, svo að þau trufli ekki. Jólakortin eru skrifuð í flýti á síðustu stundu og innkaupin verða kapp- hlaup milli verslana til að sjá úrvalið, svo að kjör- gripurinn finnist. Jólahreingerningin verður á við mánaðarþátttöku í líkamsrækt og enginn skilur í öllu því dóti og drasli, sem getur safnast fyrir á einu heimili. Á Þorláksmessu er hafin örvænting- arfull leit að jólaskrauti heimilisins og reynt að gera sem best úr greniræflinum, sem var það skásta, sem fékkst undir lokin. Þegar jólin eru síðan hringd inn er eins og létt andvarp líði frá brjóstum þeirra, sem gleymdu; loksins geta þeir farið að njóta jólanna. Þau eru komin. En það ergjarnan að loknum hátíðarhöldunum að ákveðinn tómleiki fyllir andrúmsloftið. Hin skammvinna gleði og spenna erá burt, maginn er saddur, allir hafa fengið sínar gjafir og kveðjur og við blasir grámóskulegur morgundagurinn. Það er einskis eftir að njóta af veisluföngunum. Það, sem er eftir, er að tína saman leifarnar og ganga frá eftir fagnaðinn. En þessir, sem gleymdu, hefðu átt að staldra fyrr við. Þeir hefðu átt að minnast þess að á aðventunni á ekki aðeins að hreinsa ryk og óhreinindi úr húsum, heldur og úr hugum og hjört- um. Eitt augnablik, eitt andartak, eina kyrrláta kvöldstund er hægt að setjast niður við kertaljós í stofunni heima og gera sér grein fyrir tilgangi og boðskap jólanna og fyllast barnslegri tilhlökkun og eftirvæntingu. Jólaguðspjallið segir okkur frá fæðingu Krists. Þar var ekki prjálinu fyrir að fara, orðskrúðinu eða trumbuslættinum. Konungur mannkyns vitjaði hásætis síns í fyrsta sinn sem fátæklingur á ver- aldarvísu. Samtfórkomahansekkileynt. Honum var tekið sem hinum eina sanna konungi, þó að hann væri ungbarn reyfað og liggjandi í jötu. Frásögnin um aðdraganda og fæðingu Krists hljómar kunnuglega í eyrum: „En það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi keisara ..." Þessi upphafsorð koma okkur öllum í hátíð- arskap á aðfangadagskvöld, en þau ættu ekki síður að koma okkur í jólaskap á aðventunni. Því að jólin standa yfir í lengri tíma en rauðu dagarnirá almanakinu segja til um. Öll aðventan, allur undirbúningurinn, er hluti af jólunum. Hér áður voru það fyrstu merki jólakomunnar að jóla- sveinum var stillt út íglugga Rammagerðarinnar í Austurstræti. Þó að flestum fyndist það snemmt þá fóru þeir óhjákvæmilega að leiða hugann að eigin undirbúningi og hvernig hann gæti orðið bestur og skemmtilegastur. Það er undirbúningur jólanna, sem er hin eiginlega skemmtan. Þá koma í Ijós hinar jákvæðu mannlegu tilfinningar, gleði, tilhlökkun, ást, umhyggja, sköpunarhæfi- leikar og vinnugleði. Það eríjólaundirbúningnum, sem við eigum besta tækifærið til að njóta þess að skúra gólf, ryksuga, þvoþvotta, tala við börnin okkar og komast að því hverjar væntingar og þarfir ástvina okkar og ættingja eru. Það er á þessum tíma, sem mannleg samskipti hafa best- ar aðstæður til að blómstra og þroskast. Jólalög eru rifjuð upp og sungin með börnunum, mynda- kökureru bakaðarmeð miklum fyrirgangi og þess um leið minnst hvað gekk á við síðasta bakstur, sparifötin eru tekin fram og hreinsuð og spari- skapið er gert sérstaklega klárt fyrir hátíðina. Þessi hversdagslegu störf eru unnin á aðvent- unni í sérstökum tilgangi og þannig verða þau okkur tilefni hláturs, gleði og eftirvæntingar. Lífshamingja, barnsleg gleði, eftirvænting og tilhlökkun eru ekki bundin veraldlegum gæðum, heldur tilfinningu fyrirgildi og sérstöðu mannlegs
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.