Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Page 57
Jólahugleiðing
frá Bíldudal
VÍKINGUR 57
lífs. Það er vissutega tilhlökkunarefni að hugsa til
allra krásanna á jólaborðinu, gjafanna undirjóla-
trénu þótt það sé e. t. v. áhyggjuefni að eiga ekkert
inni á tékkareikningnum. En það sem er einstakt
tilhlökkunarefni er að heyra jólin hringd inn,
syngja Heims um ból á aðfangadagskvöldi, upp-
lifa spenninginn íkringum sig, sjá gleðina í augum
ættingja og ástvina og upplifa raunveruleg jól.
Tilgangurinn með öllum hátíðarhöldunum er að
minnast fæðingar frelsarans. Þess frelsara sem
boðaði okkur, að allt líf okkar og starfskyldi mót-
ast af sömu tilhlökkun, sömu gleði og umhyggju
og einkennir aðventuna og jólahátíðina sjálfa.
Sjómenn, sjómannafjölskyldur og landsmenn
allir, ég óska ykkur endurnærandi og gleðilegra
jóla.
FISKSEUENDUR
★ Getum boðið upp afla af öllu landinu
★ Mikil eftirspurn
FISKKAUPENDUR
★ Getum bætt við tengingum
Fiskmarkaður
Norðurlands hf.
Strandgötu 53, P.O. box 292, 602 Akureyri,
símar: 96-27388 og 96-27391