Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Side 70

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Side 70
Sjávarútvegsráðherra sagði: Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra ávarpar 33. þing FFSl. Það var ánægjutegt að heyra forseta Farmanna- og fiskimannasam- bandsins koma fram með þá skoðun, að ekki sé annar kostur en að byggja á því sem við höfum verið að gera á undan- förnum árum. 70 VÍKINGUR Þingfulltrúar og gestir! Það er mikið rætt um sjávar- útvegsmál í þjóðfélaginu í dag. Fiskveiðistefnan er í mótun, það eiga sér stað umskipti á mörkuðum og aðrar breytingar í sjávarútvegi. Það er út af fyrir sig mikilvægt og eðlilegt að þessi umræða eigi sér stað en það er einnig mikilvægt að þeir sem við sjávarútveg starfa geri sér grein fyrir því að sjávarút- vegurinn hefur sínar takmark- anir. Það eru takmarkanir fyrir því hvað við getum veitt og það eru takmarkanir fyrir því hvað við getum selt á mörkuðum fyrir hæsta verð. Þó er e.t.v. ekki miklvægast að þeir sem í sjáv- arútveginum starfa geri sér grein fyrir þessu, heldur þjóðfé- lagið í heild, vegna þess að ef við gleymum því að þessar takmarkanir eru fyrir hendi, þá er hætt við því að við ofbjóðum okkar sjávarútvegi og þeim grundvelli sem við lifum á. Við höfum á undanförnum áratug- um og undangengnum öldum sótt framfarir til sjávarútvegs- ins. Sérhvert skref sem hefur verið stigið til framfara í landi á upptök sín að meira eða minna leyti í sjávarútvegi. Á undan- förnum árum og áratugum höf- um við sótt fram á veg með því að kaupa ný og fullkomin fiski- skip, öðlast yfirráð yfir fiskveiði- lögsögunni og sótt fram á er- lendum mörkuðum. Það er eins með það og annað að allt á sín takmörk. Við gerðum okkur í reynd fyrst grein fyrir því árið 1983 að við urðum að sætta okkur við þessa staðreynd. Við urðum að sætta okkur við það að við gátum ekki stækkað flot- ann endalaust og við urðum að sætta okkur við að fara út í meiri takmarkanir á afla en áður hefur þekkst og allt aðra stjórnun veiða. Á þessum grundvelli höfum við síðan verið að sækja fram á veg og styrkt byggðina í þjóðfélaginu. Það eru mikil öfugmæli þegar því er haldið fram að vegna stjórnunar fiskveiða sé byggð sett í hættu. Hvernig ætli færi fyrir byggðinni í landinu ef við hefðum enga stjórn á veiðun- um og létum samkeppnina ráða? Samkeppnin getur vissulega leyst mörg mál og við getum náð hámarkshag- kvæmni á grundvelli hennar en hún er oft á tíðum miskunnar- laus og réttlæti fæst ekki með hömlulausri samkeppni. Nú stöndum við enn á ný frammi fyrir því að móta fisk- veiðistefnu fyrir næstu ár og spyrja okkur þeirrar spurning- ar, hvort eigi að byggja á þeim grundvelli sem byggt hefur verið á. Ég hef svarað þeirri spurningu og fjölmargir aðrir og það var ánægjulegt að heyra forseta Farmanna- og fiski- mannasambandsins koma fram með þá skoðun, að ekki sé annar kostur en að byggja á því sem við höfum verið að gera á undanförnum árum. Að sjálfsögðu hafa ekki allir verið sáttirvið það. Þaðhafaekki allir verið sáttir við það í þessum samtökum og menn hafa viljað fara aðrar leiðir. Hins vegar gera flestir sér grein fyrir að við þurfum að ná sáttum og fá lýð- ræðislega niðurstöðu. í Ijósi þessa vil ég fara nokkrum orð- um um sum þau álitamál sem nú er verið að fjalla um við mót- un stefnunnar á næstu árum. Fyrsta spurningin sem við þurfum að svara er að sjálf- sögðu sú, getum við fjölgað fiskiskipum? Ég held að enginn haldi því fram og jafnvel er því ekki haldið fram að það sé hægt að fjölga smábátum, þó að það sé ekkert tilhlökkunar- efni fyrir einn né neinn að það verði gengið svo langt að taka upp stjórnun á árabátum í land- inu. Ekki ætla ég að gerast til- lögusmiður um það og ég vænti þess að við getum haldið saman á þeirri braut að ekki verði farið að setja upp endur- nýjunarreglur fyrir árabáta. Að því fráskildu, þá virðist vera nokkuð rík samstaða um það að staðið sé gegn stækkun flot- ans. Þaðereinnig ríksamstaða
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.