Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Blaðsíða 80
Nokkrar
samþykktir
þingsins
80 VÍKINGUR
33. þing . . .
FÉLAGSMÁL
33. þing FFSÍ. . .
. . . skorar á stjórnvöld að nú
þegar verði ráðist í kaup á
stórri og fullkominni björg-
unarþyrlu, sem beri a.m.k. 24
menn og sé búin afísingar-
tækjum.
. . . fer þess á leit við Sigl-
ingamálastofnun að stöðug-
leikagögn íslenskra skipa
verði gerð skipstjórnar-
mönnum aðgengilegri en nú
er, meðal annars með því að
gert sé að skilyrði að þau og
önnur skipsskjöl séu á ís-
lenskri tungu.
Greinagerð.
Tillaga þessi er fram komin
vegna þeirrar staðreyndar
að stöðugleikagögn eru víða
mjög óaðgengileg eða vant-
ar alveg um borð. Mikilvægi
þess að umrædd gögn séu
fyrir hendi og skipstjórnar-
menn geti notað þau getur
skilið á milli lífs og dauða
fyrir áhöfnina.
. . . skorar á stjórnvöld að
slysavarnaskóla sjómanna
verði tryggður rekstrar-
grundvöllur, og honum skip-
aður sá sess innan skóla-
kerfisins sem honum ber.
. . . átelur harðlega þá þróun
sem orðið hefur á rekstri
Landhelgisgæslunnar á
undanförnum árum. Skorað
er á stjórn sambandsins að
beita sér fyrir að vekja gæsl-
una af þeim doða sem þar
virðist ríkja. Úthald skipanna
aukið og áhafnir þeirra þjálf-
aðar svo þær verði hæfar til
að annast þau verkefni, sem
lög mæla fyrir um.
. . . beinir þeirri áskorun til
félagsmanna sinna að þeir,
við störf sín um borð, losi
ekki í hafið úrgang, sorp eða
önnur þau efni er mengun
geta valdið.
. . .skorarástjórnvöldaðsjá
til þess að loftskeytamenn
verði áfram á varðskipum
ríkisins, þau verði ennfremur
búin þeim tækjakosti og
mannafla, sem þarf til þess
að varðskipin geti sinnt þeim
verkefnum sem krafist er af
þeim.
. . . beinir því til stjórnar
sambandsins að hún beiti
sér fyrir því með fullum
þunga að áfram verði unnið
að útgáfu fiskikorta af mið-
unum kringum ísland og get-
ið er um í staflið j) bls. 83 í
skýrslu stjórnar.
. . . fagnar árangrinum sem
náðst hefur í baráttunni gegn
veitingu undanþága til skip-
og vélstjórnar. Þingið hvetur
til áframhaldandi árvekni og
sóknar á þeirri braut sem
mörkuð hefur verið.
Jafnframt hvetur þingið
stjórn sambandsins að beita
öllum tiltækum ráðum með
áróðri og fræðslu til okkar
eigin félaga að þeir láti ekki
úr höfn með ófullkomna eða
ógilda skipshafnarskrá.
. . .beinirþvítilstjórnarFFSÍ
að hefja viðræður við
Menntamálaráðuneytið um
endurreisn nefndar sem fjall-
aði um menntun loftskeyta-
manna, sem stöðvuð var 1.
nóv. 1983. Og hefji hún þegar
störf að nýju með það að
markmiði að menntun loft-
skeytamanna í landinu hefj-
ist sem fyrst.
. . . felur stjórn FFSÍ að hefja
nú þegar athugun á hvort
tímabært sé að sambandið
hefji útgáfu fréttabréfs sem
sent verði öllum félags-
mönnum innan sambands-
ins.
Leiði athugun í Ijós að þörf
og áhugi sé á slíkri útgáfu er
stjórninni falið að hrinda
henni úr vör.
. . . heimilar stjórn FFSÍ að
leita eftir samstarfi við hags-
munasamtök sjávarútvegs
og siglinga um útgáfu Sjó-
mannablaðsins Víkings, í
þeim tilgangi að efla útgáfu
þess og til þess að blaðið
verði traustur og virtur
málsvari þeirra stétta sem
sjávarútveg og siglingar
stunda.
. . .mælisttilaðtekinverðitil
endurskoðunar ieiga skipa
sem mönnuð eru útlending-
um og eru í þjónustu ís-
lenskra útgerða.
Þingið ítrekar fyrri sam-
þykktir sínar um að skip á
vegum íslendinga sem eru í
föstum siglingum skuli vera
mönnuð íslendingum.
Þingið felur framkvæmda-
stjórn sambandsins að gera
viðkomandi ráðherrum grein
fyrir stöðu þessa máls þar
sem sérstök áhersla verði
lögð á að íslenskum far-
mönnum verði tryggð störf á
þessum vettvangi.
. . . fagnar framkomnu frum-
varpi til laga um starfsemi líf-
eyrissjóða frá 29. maí 1987.
Eftir stendur vandi þeirra
manna sem eiga lífeyrisrétt-
indi sín tryggð í lífeyrissjóð-
um sem geta ekki staðið við
skuldbindingar sína. Þingið
skorar á stjórnvöld að leita
alfra tiltækra leiða til þess að
tryggja réttindi þessara
manna í samræmi við gild-
andi reglugerðir sjóðanna.
Jafnframt felur þingið fulltrú-
um sínum í stjórn Lífeyris-
sjóðs sjómanna að gæta
hagsmuna þeirra félags-
manna sem æskja færslu á
réttindum sínum í Lífeyris-
sjóð sjómanna.