Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Page 102

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Page 102
MIKILVÆGAR MARKAÐSFRETTIR UR PACIFIC FISHING RÆKJA. Þótt verö upp úr skipi sé aðeins 53 kr/kg er sóknin á Vesturströnd Bandaríkjanna enn mik- il. í júlílok voru komin á land á vesturströndinni á þessu ári alls 20.111 tonn á móti 18.155 tonnum á sama tíma árið 1986. Óvenjulega snemma hefur orðið vart við fyrsta árs rækju á miðunum undan ströndum Kaliforníu, sem gæti þýtt annað gott rækjuár. Ekki hefur þó allsstaðar orðið vart við þessa ungu rækju. HÁFUR. Góður markaður er fyrir háf í Kaliforníu. Framboðið er of lítið til að fullnægja mikilli eftir- spurn sem er prímus mótor veiðanna. Thresher háfurinn er einkum eftirsóttur en veiðist ekki í miklum mæli. Verð til sjómanna er að meðaltali 136 kr/kg og heildsöluverð 175 kr/kg. Barðaháfur er seldur í heildsölu á 150 kr/kg. Líklegt er að barðaháfurinn seljist á föstunni á 167 kr/kg sem mundi þá vera hæsta verð sem fengist hefur fyrir barðaháf. Eftirsþurn eftir súpuuggum hefur vaxið verulega í sumar. Uggarnir eru á 29 kr/kg til sjó- manna. ÍGULKER. Meðfram allri Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna veiðast ígulker. í Oregon ríki hafa að þvi er f réttir herma 96 kafarar stundað veiðarn- ar í ár en voru aðeins 18 í fyrra. Kafararnir fá að meðaltali 25 kr. fyrir ígulkerið. í Kaliforníu hefur verið ákveðið að veita ekki fleiri leyfi tii ígulkeraveiða frá og með júlímánuði en eins og er hafa 700 leyfi verið veitt. í Norður- Kaliforniu hafa komið á land 3.640 tonn af ígul- kerjum, en allt árið 1986 var landað 4.323 tonn- um. Fiskifræðingar búast við að stofninn undan Norður-Kaliforníu þoli ekki núverandi sókn og hefur undanfarið orðið vart við eldri og óæskilegri ígulker. Eins og er fást á markaði í Jaþan 442- 1825 kr. á kg í 8 - 9 únsa bakka af ígulkerjahrogn- um. 102 VÍKINGUR SURIMI. Búist er við að Japanir framleiði á þessu ári sama magn af surimi og á árinu 1986. 15% minnkun á surimiframleiðslu Japana í fiskveiði- lögsögu Bandaríkjanna hefur verið mætt með framleiðslu í samvinnu við Rússa og veiðum á fisktegundinni hoki við Nýja Sjáland. Birgðir af fyrsta flokks sjóunnu surimi eru takmarkaðar. Út- flutningur Japana á gervikraþba er minni en á síðasta ári. í júnílok höfðu Japanir flutt 10.023 tonn af gervikrabba til Bandaríkjanna. f Japan er 1. flokks surimi framleitt í verksmiðjuskipi selt á 120 - 125 kr/kg sem er lækkun um 3,34 kr/kg. Nýlega hefur Fiskveiðaþróunarsjóður Alaska veitt verðlaun í framleiðslusamkeppni fyrir há- degisverð þar sem aöaluppistaðan var surimi, skyndibiti úr laxi, chilisúpa úr hökkuðum Alaska- ufsa og próteinblöndu úr laxi og surimi. Heildsölu- verð á gervikrabba er frá 150 - 246 kr/kg. HROGN. Á heildsölumarkaði í Tókýó seldist fyrstu sex mánuði ársins alls 3.721 tonn af Al- askaufsahrognum á meðalverði, 342 kr/kg. Magnið er næstum því 18% meira en á síðasta ári sem stafar aðallega af 25% lægra verði. Verð á laxahrognum (sem eru helsti keppinautur Al- askaufsahrogna) frá Alaska hefur lækkað um næstum því helming. Núverandi verð er frá 437- 729 kr/kg LAX. Þótt birgðir af niðursoðnum laxi séu nú meiri en á árinu 1986 er ekki gert ráð fyrir að heildsölu- verð lækki. í byrjun ágúst voru birgðir af niður- soðnum laxi í Bandaríkjunum og Kanada alls 1.045.512 kassar (48 stórar dósir í kassa) á móti 698.108 kössum á sama tíma árið 1986. Markaður af frystum laxi hefur ekki róast eins og flestir bjuggust viö. Þetta stafar af minna fram- boði, samfara mikilli eftirspurn. Japanir kaupa nú lax á 284 kr/kg (meðalverð) FOB Seattle. Fiskimenn fá 167 kr/kg að meðaltali. Til Evrópu fer laxategundin red kings á meðalverði 363 kr/kg FOB Seattle. SÍLD. Verð á síldarmjöli og lýsi er hækkandi á heimsmarkaði. Ástæður fyrir jíessu er m.a. að í sumum löndum er all mikið gert af þvi að nota síldarlýsi til upphitunar, talið er að alls séu 200.000 tonn notuð í þessu skyni. í Perú er nú skortur á síldarlýsi fyrir heimamarkað, en búist er við að Perúmenn fullnægi þessari eftirspurn með kaupum frá Japan. Einnig hefur það áhrif til hækkunar á síldarafurðum að búist er við lítill framleiðslu á síðasta fjórðungi þessa árs. Hins- vegar eru takmörk fyrir því hve hátt verðið má fara með tilliti til sojamjöls og sojaolíu. í haust hefur hlutfall á verði þessara afurða verið 2, þ.e. síld- arafurðir hafa verið helmingi hærri en sojaafurðir. Þetta hlutfall er í hærri kantinum. Reiknað er með að á fyrri helmingi næsta árs verði frekar lítil fram- leiðsla á norðurhveli á síldarmjöli og síldarlýsi. Hinsvegar er bjart framundan í þessu efni á suð- urhveli. í heild má þó reikna með góðu jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar á fyrri helmingi árs- ins en þó er of snemmt að spá um verðið. LAXVEIÐAR Færeyinga í sjó byrjuðu aftur 2. nóvember. Búist er við að 23 skip stundi veiðarn- ar að þessu sinni, en aðeins 4 hafa enn fengið leyfi. Hinir hafa ekki ennþá uppfyllt öll skilyrði til að hljóta leyfi. Færeyingar mega á árunum 1987, 1988 og 1989 veiða að meðaltali 600 tonn af laxi í sjó. Lítið veiddist í vor og því eru möguleikar á að veiöa talsvert nú.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.