Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Blaðsíða 108
Verður kallinn ekki all
Axel Nielsen
skrifaði
Tölvan um borö gæti vel
verið undirtitill þessarar
greinar.
„Það sem við sjáum í dag verður bölvað drasl eftir fjögur ár. Ég er alveg handviss um það“, segir forstöðumaður tæknisviðs IBM á íslandi um tölvutæki um borð í skipum. Við vitum að tölvur eða tölvustýrð tæki eru býsna algeng í skipum í dag. Flest eða öll siglingar- og fiskleitartæki ásamt öðrum rafeindabúnaði eru nú tölvustýrð að meira eða minna leyti. Víking- urinn gerði úttekt á tölvum í skipum í nútíð og framtíð.
108 VÍKINGUR
í grófum dráttum má skipta
notkun tölva í skipum í fjóra
þætti.
Þeir eru: í fyrsta lagi tölvutæki í
brú skipsins, í öröu lagi tölvur í
vél skipsins, í þriðja lagi tölvur
til samskipta viö land og í fjórða
lagi tölvur tengdar vinnslunni
um borö.
Tölvutæki í brú skips
í brúnni úir og grúir af rafeinda-
tækjum. Þessi tæki eru sístarf-
andi og yfirleitt óháö hvert
ööru. Sá er galli viö þetta skipu-
lag aö þessi tæki vinna illa
saman og það er erfitt fyrir
stjórnanda skipsins aö fylgjast
meö öllu því sem þau þurfa aö
sýna honum. Meö öðrum orö-
um, þaö vantar betri samhæf-
ingu þessara tækja. Sú sam-
vinna hefur raunar aukist og
enn um sinn mun sú þróun
halda áfram.
Hvað segir
skipstjórinn?
Guðjón A. Kristjánsson,
skipstjóri á Páli Pálssyni frá
(safiröi: „Þaö er hægt aö gera
vinnuumhverfiö miklu þægi-
legra, þaö er engin spurning.
Viö þurfum kannski aö fylgjast
meö 10-12 mælum í einu og er-
um því aö reyna aö staösetja
tæki hlið við hlið svo auðveld-
ara sé aö vinna. Við hljótum
hins vegar að sjá eitthvert kerfi
sem leysir þetta vandamál og
gerir vinnuna léttari". Það má
hugsa sér að t.d. radarinn,
plotterinn, ýmis staðsetningar-
tæki og jafnvel sónar veröi
saman á einum skjá þar sem
sjá má staðsetningu, sjókort,