Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1990, Blaðsíða 29
. Kjaradeila yfirjnanna á fiskiskipum og útvegsmanna leyst:
Einhverju slysla verkfalli íslandssöguanar var adýst um kJukkan
tvö ( gxr. Samningancfnd Farmanna- og fiskimannasambandsins
| samþykkti þi að skrifa undir samning við Landsamband isienskra
útvegsmanm
-TiTiT
mi i
Svona Kiddi minn. Nú skal ég gera. — Maður má víst ekki nema örstutt meðan þjóðarsáttin
er. ..
Afrit af lögregluskýrslu verði
send eftirfarandi aðilum:
1. Útgerðarmanni.
2. Tryggingastofnun ríkisins.
3. Viðkomandi
tryggingafélagi.
4. Siglingamálastofnun
ríkisins.
5. Rannsóknarnefnd sjóslysa.
Æskilegt væri að hver og einn
af framangreindum aðilum,
auk slysþola, hafi rétt til að
óska eftir sjóprófi, telji hann að
þess sé þörf.
.... beinir þeim tilmælum til
Undanþágunefndar að nú
þegar verði tekin upp sú vinnu-
regla hjá nefndinni við undan-
þágu-veitingar til skipstjórnar
eða vélstjórnarstarfa, að þeim
yfirmönnum sem í hlut eiga
verði tilkynnt skriflega, um af-
greiðslu nefndarinnar á við-
komandi umsókn. Jafnframt
verði aðildarfélögum FFSÍ
sendur reglulega nafnalisti um
veittar undanþágur, eftir lands-
fjórðungum, eigi sjaldnar en á 6
mánaða fresti.
.... skorar á ríkisstjórnina, að
hún beiti sér fyrir því að Slysa-
varnarskóla sjómanna verði
skapaður öruggur rekstrar-
grundvöllur. Jafnframt skorar
þingið á ríkisstjórnina að stefnt
verði að áframhaldandi upp-
byggingu skólans og honum
skipaður sess í menntakerfi
landsins.
.... skorar á fjárveitinganefnd
Alþingis, að veittar verði 4 m.kr.
fjármunir til stöðugleikarann-
sókna á minni bátum og 750
þús.kr. til hávaðamælinga á
vegum Siglingamálastofnunar
ríkisins.
.... beinir þeim eindregnu til-
mælum til fjárveitingarvalds-
ins, að veitt verði fjárveiting á
fjárlögum 1991, sem geri stýri-
mannaskólum kleift að festa
kaup á fiskveiðisamlíki og vél-
skólum til kaupa á vélarrúms-
hermi á næsta ári. Ennfremur
mælist formannaráðstefnan
eindregið til þess við sam-
bandsfélögin, að þau álykti um
þetta stórmál íslensku sjó-
mannastéttarinnar og sendi
ályktanir sínar til þingmanna
síns kjördæmis með hvatning-
arorðum um að þeir beiti sér
fyrir framgangi þessa máls.
.... skorar á dómsmálaráð-
herra, að hann beiti sérfyrir því
að varðskipin séu búin bestu
tækjum til sjómælinga, sér-
staklega til að auðvelda athug-
anir við innsiglingar í hafnir og
einnig til að þjálfa stýrimanna-
og vélskólanema.
.... ítrekar áskorun til stjórn-
valda, að hefja nú þegar undir-
búning að smíði á nýju og full-
komnu varðskipi og fari smíði
þess fram innanlands sé það
mögulegt.
.... skorar á stjórnvöld að falla
frá hugmyndum í fjárlagafrum-
varpi fyrir árið 1991 um að
fækka frá því sem nú er úthald-
stíma varðskipana og flugtím-
um. Formannaráðstefnan telur
aftur á móti, að auka þurfa út-
haldstímann frá því sem nú er,
a.m.k. yfir vetrarmánuðina.
.... haldin á (safirði 12. og 13.
nóvember 1990, leggur til að
fiskverð verði gefið frjálst. Jafn-
framt skorar ráðstefnan á Al-
þingi íslendinga að það marki
stefnu, sem ákvarðar að allur
fiskur, sem ráðstafað er innan-
lands, skuli fara um fiskmark-
aði eftir hæfilegan aðlögunar-
tíma. Ráðstefnan fagnar um-
mælum formanns VSÍ, að
nauðsynlegt sé að taka upp
frjálst fiskverð, en harmar jafn-
framt afstöðu LÍÚ að áfram
skuli haldið við hlutverki Verð-
lagsráös sjávarútvegsins til
verðlagningar á botnfiski.
Sigmund teiknari
Moggans sá skoplegu
hliðina á átökum FFSÍ
og Ll’Ú. Við birtum hér
myndir af tveimur teikn-
ungum hans, sem allir
hafa væntanlega haft
gaman af, mitt í allri al-
vöru kjarabaráttunnar.
VÍKINGUR 29