Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1990, Blaðsíða 91
BILDUDALSKONGURINN
i
Bíldudalskóngurinn er at-
hafnasaga Péturs J. Thor-
steinnssonar, sem ásamt Thor
Jensen var mestur athafna-
manna I sjávarútvegi á sinni tíð.
Bíldudalskóngurinn er saga
frumherja i atvinnulífi þjóðar-
innar á síðustu áratugum 19.
aldar og fyrstu áratugum 20.
aldar, og saga hans mikill kafli í
athafnasögu þjóðarinnar,
þegar hún var að byggja upp
sjávarútveg sem undirstöðu-
atvinnuveg.
Bíldudalskóngurinn er sýnis-
horn af því, hverskonar menn
höfðu forystu í þeirri frumraun,
og lögðu ekki færri né minni
steina í sjálfstæðisgrunninn en
stjórnmálaskörungarnir.
Bíldudalskóngurinn er saga
manns, sem vann það ein-
stæða afrek að byggja upp frá
grunni öflugt sjávarpláss. Hann
kom þar ungur og fjárvana að
einu íbúðarhúsi á staðnum og
einni jagtinni í nausti en engum
íbúa, en húsin voru 50 og
íbúarnir 300 þegar hann fór, og
skúturnar 20.
Bíldudalskóngurinn er saga
manns, sem átti sér fjölbreytt-
ari athafnaferil í sjávarútvegi en
nokkur annar hans samtíðar-
manna.
Bídludalskóngurinn er hetju-
saga manns, sem þoldi mikil
áföll og marga þunga raun á
athafnaferlinum og þó enn
meiri í einkalífinu.
Bíldudalskóngurinn er saga
um mann, sem marga háði orr-
ustuna í viðskiptalífinu, en allir
þeir samtímamenn, sem minn-
ast hans, hafa hið sama að
segja, að jafnt og hann var hug-
kvæmur, duglegur og áræðinn,
var hann ágætur drengur, sem
engum lá illt orð til, sem kynntis
honum.
(Fréttatilkynning)
% % .®\ v Stýrimannafélag
co 0\ Q íslands óskar öllum
sjómönnum og fjölskyldum þeirra
STOfNW gleðilegra jóla.
1919
wmmmsrniMwaMmmammMBíi
LJOSAFELL SU 70
/
VÍKINGUR 91