Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1994, Blaðsíða 35
VÍKINGUR
/
Asgeir Baldursson
á Sæljóninu RE 19:
/
Eg er alinn upp
íFlóanum
„Ég tók við þessum bát eftir hrygningarstoppið í apríl.
Þetta hefur verið frekar lélegt, tvö til þrjú tonn á dag,“
sagði Ásgeir Baldursson, skipstjóri á Sæljóni RE 19,
þegar rætt var við hann. Ásgeir var að veiðum á Hafnar-
leirnum. Þeir eru á snurvoð. Ásgeir segir að sæmilegasta
verð fáist fyrir kolann, eða 78 krónur fyrir rauðsprettuna
en 45 krónur fyrir annan afla, nema sólkolann. „Það er
gott verð fyrir hann. Það hæsta sem ég hef heyrt er 170
krónur. Það er bara það lítið af honum.“
Sæljónið hefur Flóaleyfi og Ásgeir segist bíða eftir að
mega byrja þar. Flóinn verður opnaður 15. júlí. Ég
hlakka til þess þar sem það hefur fengist ágætt þar, auk
þess sem ég þekki mig vel þar, en ég er nánast alinn upp
í Flóanum.“
Áður en Ásgeir tók við Sæljóninu var hann með
Guðbjörgu RE.
Sæljónið, sem og aðrir snurvoðarbátar sem leggja upp
í Sandgerði, landa daglega. Það er farið á sjó um
klukkan fimm á morgnana og komið í land uin eða eftir
kvöldmat. „Við náum að kasta fimm til sex sinnum á
dag, en við erum að fiska á djúpu vatni, 60 föðmum og
jafnvel dýpra, þannig að við þurfum að slaka út um
1.200 föðmum.“
Sendum
sjómönnum og
fiskvinnslu-
fólki bestu
kveðjur á
sjómanna
daginn.
ISHUSFELAG ISFIRÐINGA
Eyrargata 2-4. • P.O.Box 18
Sími 94-3870 • Fax 94-4720
35