Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1994, Síða 42
VÍKINGUR
S j ómannasamtökin:
Er samstaðan að rofna?
Þeir undirrituðu yfirlýsinguna og þeir
fóru í fundaherferðina. Þeir tala ekki
sama mál lengur. Sjómenn eiga rétt á
að vita hvað hefur breyst.
Sigurjón Magnús Egilsson
Það gladdi margan sjómanninn
þegar sjómannasamtökin náðu sam-
stöðu á síðasta hausti um baráttuna
gegn kvótabraskinu. Forráðamenn
Farmanna- og fiskimannasambands
íslands, Vélstjórafélags íslands og
Sjómannasambands íslands héldu í
fundaleiðangur um allt land. Ánægja
með fundaherferðina var mikil. Til að
ná samstöðu milli allra þessara aðila
varð hver og einn að slaka á sínum
kröfum. Farmanna- og fiskimanna-
sambandið gekk svo langt að leggja til
hliðar, um stundarsakir, kröfuna um
að kvótakerfið yrði aflagt. Þetta er
gott dæmi um þann hug sem forystu-
mennirnir höfðu til að ná samstöðu.
Ogleymanlegur lokafundur
Það verður öllum ógleymanlegt,
sem vitni urðu að, þegar sfðasti fund-
urinn var haldinn fyrir troðfullri Bíó-
borginni í Reykjavík. Þar mættu á
annað þúsund sjómenn sem flestir
lofuðu samstöðu forystunnar. Sjó-
menn vildu meira af slíku. Samstaðan
virtist algjör. Það var sama hvaða
starfi menn gegndu um borð allir virt-
ust vera samstiga. Loksins, sögðu
margir.
Eftir að fundurinn stóri var haldinn
og lög voru sett á verkfall sjómanna
hefur ekki heyrt eins mikið frá for-
ystunni. Hvað er að gerast? Jú, afleið-
ing bráðabirgðalaganna varð sú að
málið fór til Alþingis, þar sem sjávar-
útvegsnefnd hefur það til meðferðar.
Þegar alþingismenn og ráðherrar eru
komnir að málinu ætti helst að reyna á
órofa samstöðu sjómanna, ekki veitir
af í því stóra hagsmunamáli sem sjó-
menn eru tilbúnir að berjast gegn, að
minnsta kosti ef mið er tekið af þeirri
samstöðu sem virtist vera í vetur.
Hvað er að breytast?
Nú virðast vera blikur á lofti og svo
virðist sem bakslag sé komið í sam-
stöðuna. Já, það hefur komið í ljós að
nú heyrist annar tónn, annar en sá sem
farið var með í hringferðina, annar
tónn og það allt annar.
Byrjum á byrjuninni en hún er sam-
eiginleg yfirlýsing sjómannasam-
takanna. Orðrétt hljóðar hún svona:
„Sameiginleg yfirlýsing frá Far-
manna- og fisimannasambandi Is-
lands, Vélstjórafélagi Islands og
Sjómannasambandi Isfands. Fram-
angreind hagsmunasamtök sjó-
manna lýsa yflr fullri andstöðu við
framsaf á veiðiheimildum, þ.e. sölu
á óveiddum fiski innan gildandi
kerfis um stjórn fiskveiða. Reynsla
síðustu ára hefur leitt til aukinnar
andstöðu samtaka sjómanna gagn-
vart óheftu framsali veiðiheimilda
og nú er svo komið að mælirinn er
fullur. Sjómannasamtökin telja að
nú sé komið að vendipunkti í þessu
máli.
Frjálst framsal veiðiheimilda
hefur skapað fleiri vandamál en
það hefur leyst. Kjarasamningum
fiskimanna, sem byggðir eru í
höfuðatriðum á hlutaskiptum, er
ógnað vegna þess að fiskimenn eru
nauðugir látnir taka þátt í kaupum
á óveiddum fiski. Oheft framsal
veiðiheimilda hefur búið til nýja
stétt sjómanna og útgerðarmanna,
sem eru ofurseldir kjörum leigu-
liðans, þar sem þeim er skammt-
aður aðgangur að fiskimiðunum af
þeim sem veiðiréttinn hafa. Þessari
óheillaþróun verður ekki snúið við
nema með algjörri höfnun á sölu á
óveiddum fiski.
Sjómannasamtökin telja það
42