Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1994, Blaðsíða 56
VÍKINGUR
Stór stórflutningaskip
Áhyggjur vegna tíðra skipstapa
stórflutningaskipa fara vaxandi í
skipaheiminum. Tíðni skipstapa af
þessari gerð skipa hefur aukist ógur-
lega og hefur að meðaltali eitt slfkt
skip farist annan hvern mánuð
síðastliðin þrjú ár. Um er að ræða skip
af stærðargráðunni 50 til 250 þúsund
tonn að stærð. Margvíslegar ástæður
eru taldar fyrir þessum sjóslysum en
flest skipin eiga það sameiginlegt að
vera 12 ára og eldri. Talið er að skipin
séu hreinlega orðin svo slitin eftir svo
langa notkun að þau bókstaflega
hrynji þegar þau lenda í slæmum
veðrum fulllestuð. Og eitt er víst að
þau sökkva mjög hratt og oftast hefur
orðið mikið manntjón. Fyrsta janúar
s.l. fórst stórflutningaskip í Atlants-
hafinu rúmar 900 sml. vestur af Ný-
fundnalandi og með því skipi fórst öll
áhöfnin, 36 menn af grísku og fillipp-
eysku bergi brotnir. Fimm vikum
síðar sökk annað stórflutningaskip við
Land's End og með því skipi 27 manns.
Hálfrar aldar afmæli
Það fer víst ekki framhjá neinum
Islendingi að hálfrar aldar afmæli
lýðveldisins er á þessu ári. En það
gerðust fleiri merkir atburðir í Evrópu
árið 1944 en stofnun lýðveldis hér á
”tnT7*T
*
felSSÉl i! i v' d > ji
Vishva Paragá „strandstað".
landi. Innrás var gerð í Normandí,
innrás sem átti eftir að valda straum-
hvörfum í stríðinu um Evrópu. D-
dagsins verður minnst á ýmsan hátt en
eflaust á sigling bandarísku Liberty-
skipanna, John W. Brown og Jeremiah
O'Brien auk Victory-skipsins Lane
Victory, frá Bandaríkjunum til hafna í
Evrópu eftir að vekja verðskuldaða
athygli. Þessi þrjú skip eru öll safn-
gripir en samtökum áhugamanna í
Bandaríkjunum tókst að kaupa þessi
skip áður en þau lentu í brotajárns-
haug og hafa verið að gera þau upp í
sinni upprunalegu mynd. Meðal
annars munu Libertyskipin flytja her-
menn frá Englandi til Normandí og
Omaha strönd á D-daginn + 50 ár.
Gaman hefði nú verið ef þessar öldnu
kempur hefðu haft viðkomu á íslandi
á leið sinni yfir hafið en þessar skipa-
tegundir voru tíðir gestir hér við land
á stríðsárunum.
John W. Brotun mun heimsækja Omaha strönd á D'daginn.
Góð sjómennska
Áhöfnin á indverska skipinu Vishva
Parag átti ekki marga kosti úr að spila
þegar skip þeirra fékk slagsíðu í
ofsaveðri undan Swansea á Suður-
Englandi og sjór fór að flæða inn í
eina lest skipsins. Skipstjórinn tók þá
ákvörðun að keyra skipið á land
frekar en að eiga á hættu að skipið
sykki. Fimmtíu og sex manna áhöfn
var á skipinu en þyrlur breska flug-
hersins tóku 33 þeirra frá borði strax.
Þegar veðrinu slotaði sat skipið í
mjúkum leirbotni líkt og það hefði
verið tekið í slipp til málningar. Á
næsta flóði var skipinu siglt út fyrir
eigin vélarafli. Það þarf góða sjó-
mennsku til að geta siglt 13 þúsund
tonna skipi óskemmdu á land og ná
því síðan á flot fyrir eigin vélarafli.
56