Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1997, Page 6
Kveðja til
Farmanna-
og fiskimanna-
sambands íslands
á 60 ára
afmœli FFSÍ
_ Á tímamótum í sögu Farmanna ogfiskimannasambands
íslands er mér Ijúfi og skylt að senda FFSÍ bestu heilla- og
ámaðaróskir frá mérpersónulega og Stýrimannaskólanum
í Reykjavík.
Farmanna- ogfiskimannasambandíslands var stofhað
afknýjandi nauðsyn íslenskra sjómanna tilþess að eiga sér
málsvara í sókn og vöm, efla samhug og samvinnu allra
sjómanna, vinna að hagsmuna— ogfiamfaramálum sjó-
mannastéttarinnar, sjávarútvegi ogsiglingum íslendinga.
Sérstaklega hefur FFSÍ og aðildarfélög þess látið öryggismál
sjómanna til sín taka og hafa þar lyfi Grettistaki, t.d. með
kröfu um lögleiðingu gúmmíbjörgunarbáta ogfleiri örygg-
istœkja um borð í hvert íslenskt skip.
FFSÍ hefiir komið í höfh mörgum af baráttumálum sjó-
manna, sem hafa jafhframt verið hagsmunamál allrar
þjóðarinnar.
Ekki er á neinn hallað, þó að égfullyrði aðþar ber
einna hœst stuðningur FFSÍ við menntun sjómanna og
byggingu Sjómannaskólans á sinni tíð.
Húsið var byggtyfir menntastofnanir sjómanna, Stýri-
mannaskólann í Reykjavík, Vélskólann í Reykjavík eins og
Vélskóli íslands varþá nefndur en einnig var Loftskeyta-
skóli og Matsveinaskóli í Sjómannaskólanum.
Sjómannaskólinn var byggður í skugga mesta hildarleiks
þessarar aldar, annarar beimsstyrjaldarinnar, sem geisaði
af heifi um alla heimsbyggðina frá 1939 til 1945. fslenskir
sjómenn tóku fullan þátt í heimsstyrjöldinni með siglingum
yfir hœttusvœði Norður- Atlantshafi, jyllt kafbátum og
tundurduflum. fslendingar hafa ekki reist þeim fiölmörgu
sem létu lífið á vígaslóð minnismerki, en margir líta rétti-
lega á hina fallegu og táknrænu byggingu, Sjómannaskól-
ann, sem þakklœtisvott íslensku þjóðarinnar til sjómanna-
stéttarinnar jyrir framlag sjómanna í síðari heimsstyrjöld-
inni. Húsið var vígt og hornsteinn lagður meðglœsilegri og
virðidegri athöjh á Sjómannadaginn hinn 4. jiíní 1944,
og minnti mannfjöldinn, sem var samankominn á Rauð-
arárholti, helst á mannjjölda Alþingishátíðarinnar 1930,
segir í samtíma heimild.
Sveinn Bjömsson ríkisstjóri ogsíðar fyrsti fiorseti lýðveld-
isins, sagði i rœðu, þegar hann lagði hornstein við vígslu
hússins: — Það eru, fremur öðrum, íslenskir sjómenn, sem
hafa aflaðþess jjár, sem gerir ríkinu kleift að reisa þessa
myndarlegu byggingu. Og enginn ágreiningur mun vera
um það, að íslenzka sjómannastéttin hefir til hennar tmn-
ið einnig á annan hátt. -
Sjómannaskólanum var valinn staður af einstakri fram-
sýni og í turni skólans er innsiglingarviti til höfuðborgar
íslands og hefurþað áreiðanlega haft mikil áhrif á staðar-
val, sem varþá í útjaðri Reykjavíkur.
Bjarni Benediktsson, þáverandi borgarstjóri orðaði stað-
setningu Sjómannaskólans þannig í rœðu á vígsludeginum
árið 1944: —Honum þ.e. Sjómannaskólanum hejur verið
fenginn sá byggmgarreiturþaðan sem víðsýnast er, sá stað-
ur, sem hœst ber og úr fiarlægð helzt setur svip á bæinn.
Meðþessu er gefið til kynna, að Reykjavík öllu öðrufrem-
ur sé sjómanna bær. „
Ætið síðan hafa sæfarendur litið á þessa glæsilegu bygg-
ingu ogþá skóla sem þar eru sem sitt sérstaka höjuðsetur og
Sjómannaskólinn góðu heilli veriðþað tákn sem samein-
aði alla er við sjóinn vinna, þrátt fyrir annars vegarýf-
ingar milli hópa innan sjómannastéttarinnar ogsvo hins-
vegar hagsmunaárekstra við útgerðir í kjarabaráttu sjó-
manna. Farmanna- ogfiskimannasambandið hefurþví
frá jyrstu tíð átt veigamiklu hlutverki aðgegna í sambandi
Sjómannablaðið Víkingur