Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1997, Síða 32

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1997, Síða 32
200 milljarðar króna Verðmæti kvótans er allt að 200 milljörðum króna. Til gamans má geta þess að fjárlög ríkissjóðs fyrir næsta ár gera ráð fyrir tekjum sem nema mun lægri fjárhæð en ætlað verðmæti kvótans, en í fjárlögum er gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs verði innan við 140 milljarða. Þær útgerðir sem fá mestu úthlutað raða þar með yfir ótrúlegum verðmætum Erfitt er að finna nákvæmlegt verðmæti kvótans. Það hafa nokkrir aðilar reynt að fá sem sennilegasta tölu. Vitað er að aldrei verður unnt að reikna út neinn stóra sannleik. Hér á eftir verður stuðst við útreikn- inga sem taka mið af verðmætaútreikningum Viðskiptablaðsins. Samherji ræður yfir mestum kvóta allra útgerða. Þorskígildistonn eru rúmlega 25 þúsund á meðan næsta fyrirtæki, sem er Haraldur Böðvarsson—Miðfell sem er með rúmlega 19 þúsund tonn og þriðja mestan kvóta hefur Þormóður rammi-Sæberg-Magnús Gamalíalsson tæplega 19 þúsuns tonn. Verðmæti kvótans og verðmæti fyrirtækjanna Nafn Þorskígildi Hlutfall % Verðmæti Verðmæti kvóta fyrirtækja 1. Samherji 25.084 5,69 11.380 12.934 2. Haraldur Böðvarsson-Miðfell 19.232 4,36 8.720 7.161 3. Þormóður rammi - Sæberg- Magnús Gam 18.999 4,30 8.600 7.381 4. Útgerðarfélag Akureyringa 15.289 3,47 6.940 3.810 5. Grandi 14.175 3,22 6.440 5.250 6. Þorbjörn-Bakki 10.350 2,35 4.700 7. Síldarvinnslan 10.055 2,28 4.560 5.984 8. Frosti—Miðfell 9.334 2,12 4.240 9. Vinnslustöðin—Meitillinn 8.981 2,04 4.080 3.445 10. Hraðfrystihús Eskifjarðar 8.164 1,85 3.700 11. Fiskiðjan Skagfirðingur 8.042 1,82 3.640 12. ísfélag Vestmannaeyja 7.876 1,79 3.580 13. Skagstrendingur 7.571 1,72 3.440 1.697 14. Básafell 7.355 1,67 3.340 15. Útgerðarfélag Dalvíkinga 6.211 1,41 2.820 16. Ögurvík 5.173 1,17 2.340 17. Fiskanes 5.168 1,17 2.820 18. Gjögur 5.029 1,14 2.280 19. Fiskiðjusamlag Húsavíkur 4.739 1,08 2.160 20. Kristján Guðmundsson 4.315 0,98 1.960 í dálkinum lengst til hægri er getið um verðmæti þeirra fyrirtækja sem eru skráð á Verðbréfaþingi íslands. Verðmæti kvótans og fyrirtækjanna er í milljónum króna. 32 Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.