Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1998, Blaðsíða 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1998, Blaðsíða 5
íslandsmetið I október 1996 var samin viðræðuáætlun sem samþykkt var af LlÚ og VSÍ við FFSl. Þessi viðræðuáætlun átti síðar að vera grundvöllur þess að byggja á efnislegar viðræður milli FFSÍ og U'Ú um endurnýjun kjarasamnings. Viðræðuáætlanir byggja á nýjum ákvæðum í lögum um stéttarféiög og sáttastörf í vinnu- deilum frá árinu 1996. Ferlið átti að tryggja málefnalega vinnu og auðvelda gerð kjarasamninga. Þegar litið eryfir farinn veg frá október 1996 og þess hvaða markvissi árangur varð að því er okkur fiskimenn varðar i kjarasamningavinnu við LÍÚ þá er niður- staðan sú að 18 mánaða þóf og aðgerðir leiddu til þess að að- eins var skrífað undir eitt blað við UÚ um endurmenntun í öllu samningaferlinu. Nú er það auðvitað ekki svo að ný lög um stéttarfélög og vinnudeilur ein valdi því að menn nálgast ekki meir í erfiðum deilum eins og deilu um kjarasamning, kvótabrask og verðmyndun. í samningaviðræðunum var fyrst og fremst tek- ist á um hvort sjálfdæmi skuli vera áfram hjá útgerðinni með meðferð og ráðstöfun þess kvóta sem á skip er skráð og hvaða verð fengist fyrir fiskinn sem veiddur er á skipið. Þegar sjómenn frestuðu verkfallinu var það gert íþeirri von að þríhöfðanefndinni tækist að koma fram með tillögur sem leystu úr vandanum í réttleysi sjómanna gagnvart útgerðinni. Það var mat forystumanna og samninganefnda að sá pakki, sem kom með kvótaþingi, hærri veiðiskyldu og verðlagsstofu um fiskverð sem rannsóknaraðila óeðlilegra uppgjörsaðferða, væri til bóta þó þar væru farnar leiðir sem væru ekki alveg sá farvegur í verð- myndun sem við vildum sjá. Útvegsmenn lögðust gegn málinu einkum af þeim sökum að komið skyldi á kvótapingi sem kvóta- leigan færi um. Þegar frá leið virtist svo að LÍU hafi ákveðið að reyna að stranda málinu svo aftur kæmi til verkfalls án þess að "Þorsteinspakkinn" yrði færður inn íAlþingi sem frumvarp sjávar- útvegsráðherra. Það er engin önnur skynsamleg skýring til á því eð útvegsmenn vildu enga lendingu síðustu tvo daga í neinu máli og stýrðu málinu íhnút áður en verkfall hófst. Besta dæmið því til sönnunar er að þegar sjómenn höfðu komið verulega til móts við LÍÚ í veikindaútfærslu og kaupgreiðslu vegna þeirra þá dró LlÚ sína eigin kröfu til baka. Þetta samningaferíi allt saman er Is- landsmet, enda engum tekist að halda uppi endalausum deilum um framkvæmd kjarasamnings við launþega með sama hætti og forystu LÍÚ sl. ár. Átján mánaða lota og eitt blað A4 um endur- onenntun er árangurinn, annað kom í lagafrumvörpum og miðlun- artillögu sáttasemjara. Miðlunartillagan gerir ráð fyrirað kjara- samningur gildi til 15. febrúar árið 2000. Ákvæðið um kvótaþing og hærri veiðiskyldu tekur gildi samkvæmt frumvarpsdrögum Þann 1. september 1998. Virkni þeirra mun þvíkoma íljós á fiskveiðiárinu 1. september 1998 til 1. september 1999. Frá þeim tíma hafa sjómenn tíma til desember 1999 til þess að meta það hvort eðlilegur og nauðsynlegur árangur varð af kvótaþing- inu, veiðiskyidunni og þeim aðferðum sem felast í frumvarpi um verðlagsstofu skiptaverðs, sem taka á gildi 1. júní á þessu ári. 'Vonandi dugarþað sem nú er lagt til og framtíðin í samskiptum ótgerðar og sjómanna verði betri en verið hafur um nokkurra ára skeið samfara kvótabraskinu. ■ Útgefandi: Farmanna- og fiskimannasamband islands, Borgartúni 18, 105 Reykjavík. Afgreiðsla: sími 562 9933. Ritstjóri: sími 893 5049 Auglýsingar: sími 587 4647. Ritnefnd: Guðjón A. Kristjánsson Benedikt Valsson Hilmar Snorrason Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurjón Magnús Egilsson Auglýsingastjóri: Sigrún Gissurardóttir Setning og tölvuumbrot: -sme Filmuvinna, prentun & bókband: Grafík Forseti FFSÍ: Guðjón A. Kristjánsson. Framkvæmdastjóri: Benedikt Valsson. Aðildarfélög FFSÍ: Skipstjórafélag- og stýrimannafélag íslands, Skipstjórafélag Norðlendinga, Félag íslenskra loftskeytamanna, Félag bryta, Félag matreiðslumanna, Skipstjóra- og stýrimannafélögin: Aldan, Reykjavík; Bylgjan, (safirði; Hafþór, Akranesi; Kári, Hafnarfirði; Sindri, Neskaupstað; Verðandi, Vestmannaeyjum; Vísir, Suðumesjum; Ægir, Reykjavík. Blaðið kemur út fjórum sinnum á ári. Forsíðumyndin er tekin og unnin af Þorvaldi Erni Kristmundssyni. 6 Guðjón Guðmundsson þingmaður vill alvöru hvalveiðar 7 Þingsályktun um bætt vinnuumhverfi sjómanna liggur fyrir Alþingi 8 Ákæran vegna kvótabrasksins. Söluverð aflans var 75 krónum hærra en gefið var upp 10 Utan úr heimi: Fá ekki borgað, Kippir íkynið, Ipottinn 11 Frystiskip heimsins, Undarleg sjósetning, Nýr skráningarfáni 12 Lika stór seglskip, Svo eru skip rifin 13 Færri skip og færri látnir, Ætla að fækka skipasmiðum verulega 14 Enn stærri skip 15 Hugleiðingar um framgang kvótakerfis Haraldur Jóhannsson hagfræðingur skrifar 21 Hvert á að senda reikninginn? Ótrúleg grein eftir Halldór Laxness 32 Siðfræði í sjávarútvegi ítarleg úttekt í framhaldi af ráðstefnu sem haldin var í Vestmannaeyjum 46 Víkingurinn og Sjóminjasafnið 48 Sjómannablaðið Víkingur til sjós á Erling KE Myndasyrpa frá netaróðri 55 Það er bara það Sigurjón Egilsson segir sína skoðun ír" 17 Guðjón A. Krísfjánsson í lok samningaferiis Ég segi af mér klukkan tvö Svo hljóðar fyrirsögnin á viðtali við Matthías Bjarnason sem að venju segir meiningu sína EHI Guð verðlaunar ekki letingja Kristinn Aadnegard fyrrverandi skipstjóri í stormasömu viðtali 56 Borgarplast 57 Samvinnuferðir-Landsýn 58 Málningarverksmiðja Slippfélagsins 60 MD-vélar Kaupþing Norðurlands 61 Umbúðamiðlun 62 Skeljungur SjÓMANNABLAÐIÐ VfKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.