Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1998, Síða 32
I janúar og febrúar voru haldnir þrír fund-
ir í Vestmannaeyjum undir heitinu: Siðferði
sjávarútvegs. Fundaröð þessi var haldin í til-
efni af ári hafsins og leitaði Fullorðinsfræðsla
Landakirkju samstarfs við Hafrannsóknar-
stofnun og Þróunarfélags Vestmannaeyja til
opinnar umræðu um siðfræði sjávarútvegs.
Fundirnir voru haldnir með viku millibili
og voru í framsögu- og umræðuformi. Nið-
urstöður fundaraðanna voru svo kynntar á
samnorrænni ráðstefnu sem haldin var dag-
ana 18-21 febrúar í Stamsund í Noregi þar
sem fjallað var um siðfræði sjávarútvegs, en
séra Bjarni Karlsson fór sem fulltrúi íslands á
ráðstefnuna, en ásamt honum fóru séra Sig-
ríður Guðnadóttir og séra Davíð Baldursson.
Fyrsti fundurinn var haldinn 20. janúar,
en þá flutti Hafsteinn Guðfinnsson sjávarlíf-
fræðingur framsögu um siðfræði sjávarútvegs
frá sjónarhóli lífríkisins, 26. janúar flutti dr.
Bjarki Brynjarsson verkfræðingur framsögu
um siðfræðina út frá sjónarhóli efnahagslífss-
in og 3. febrúar flutd séra Bjarni Karlsson
sóknarprestur í Vestamannaeyjum, framsögu
um siðfræði sjávarútvegs frá sjónarhóli
mannlífsins. Almennt voru fundirnir vel
sóttir og umræður fjörugar og málefnalegar.
Hins vegar fór það ekki milli mála að það
sem efst var í hugum manna voru kvótamál-
in og vöknuðu margar siðferðilegar spurn-
ingar um það umfangsmikla mál.
Þriðjudaginn 11. febrúar var svo haldinn
samráðsfundur frummælenda og þeirra er
þátt tóku í umræðunum. Á þeim fundi
lögðu menn fram ávörp sín og báru saman
bækur sínar um textann sem farið var með til
Noregs
Séra Bjarni vildi ítreka það að sá texti sem
farið var með til Noregs var ekki neinn end-
anlegur stórisannleikur um siðfræði sjávarút-
vegsins, heldur fyrst og fremst vinnuplagg
með hugmyndum fundarmanna um hvaða
þætti þeir teldu við hæfi að taka inn í umræð-
una um siðferði sjávarútvegsins. _Aðalatrið-
ið er að fara með réttan texta frummælenda
og þeirra sem þátt tóku í umræðunni. Það
eru að sjálfsögðu andstæðar skoðanir og sjón-
armið í textanum og jafnvel mótsagnir, engu
að síður verður textinn að endurspegla um-
ræðuna og fundina. Þetta átti ekki að vera
heilsteypt plagg.“
„Markmið þessara umræðukvölda var að
greina siðfræðileg álitamál á sviði sjávarútvegs
og skýra ólík sjónarmið af yfirvegun," segir
Bjarni.„Frummælendur sömdu texta í fram-
haldi af kvöldunum þremur sem lagður var
fyrir þátttakendur til umræðu og samþykktar
þriðjudagskvöldið 11. febrúar þar sem leitast
var við að gera hnitmiðaða grein fyrir helstu
áherslum og sjónarmiðum. Textinn var síð-
an þýddur á norska tungu og fluttur á ráð-
stefnu um siðfræði sjávarútvegs sem kirkju-
GUFUDÆLUR
afkastamiklir
vinnuþjarkar
SKEIFUNNI 3E-F ■
SÍMI 581 2333 ■ FAX 568 0215
)
)
J
32
Sjómannablaðið Víkingur