Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1998, Page 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1998, Page 15
Það er fjör í Eyjum og rekstur Vinnslustöðvarinnar er í brennidepli: Eðlilegt að efast um fram- kvæmdastjóra í taprekstri Nú hefur þín persóna verið dregin inn í starfsmannatilfærsl- ur hjá fyrirtækinu og sérstaklega fasteignakaup í Reykjvík Hvað viltu segja um það mál? „Það er eðlilegt að fólk efist um framkvæmdastjóra fyrir- tækja í taprekstri, en stjórn fé- tagsins treystir mér til þess að klára uppbyggingu félagsins og það nægir mér. Ég hef ekki áhyggjur af skoðunum fólks. Við erum í miklu uppbygging- arstarfi hjá Vinnslustöðinni, búnir að byggja upp gríðarlega öfluga fiskimjölsverksmiðju, tæknívædda og nýja uppsjáv- arfiskfrystingu og endurbyggja frá grunni saltfiskvinnsluna. Húsin hafa verið tekin alger- lega í gegn á sama tíma. Við erum búnir að umbylta flotan- um og erum með mjög öflugan flota i dag og erum að byggja upp bolfiskvinnslu og full- vinnslu. Ég er stoltur af því sem okkur hefur tekist þó stundum hafi gefið á bátinn. Hvað varðar húsnæðismál mín finnst mér hins vegar ekki nokkurn mann varða um það hvað eða hvar ég á fasteignir. Og að tengja það þessu máli er ekki í nokkru samhengi við raunveruleikann. Þetta er fjár- festing eins og hver önnur. Og þessi Frétt í Degi sem þú ert trúlega að vísa til, þá var mál- inu stillt þannig upp að sjávar- útvegurinn væri orðinn það stöndugur, væntanlega vegna þess að greinin greiðir tiltölu- lega lítið í auðlindagjald, að ég hefði efni á að kaupa mér hús. Hins vegar sé óg ekki hvað þetta hefur með Vinnslustöð- ina eða sjávarútveginn að gera. Þetta er mín prívat fjár- festing. Þetta er svipað og að segja það að búseta Stefáns Jóns Hafstein, eða Jóns Ólafs- sonar hafi eitthvað að gera með stöðu fjölmiðlamarkaðar- ins.“ Sighvatur var spurður hvernig hann skýrir lakari afko- mu en gert hafði verið ráð fyrir. „Eins og flestir ættu að vita hófst ekki loðnuvertíð fyrr en í mars og þar að auki að ef af- koman núna af veiðum og vinnslu í uppsjávarfiski miðað við það sem verið hefur und- anfarin ár, þá vantar miðað við árið í fyrra yfir 260 milljónir í af- komuna í uppsjávarfiski, sem er vegna þess að síldin hrundi í haust. Loðnan fór mjög illa líka og okkur vantaði 25 þús- und tonn í bræðslunni. Sjó- menn fóru tvisvar í verkfall svo auðvitað hlýtur þetta að skaða fyrirtækið. Hins vegar er það jákvæða í þessu að við höfum náð árangri í bolfiski sem er 140 milljónum betri en á sama tíma í fyrra. Þar erum við á réttri leið, en þurfum að gera betur. Til framtíðar held ég að við séum á réttri leið. Við þurft- um að kúvenda í bolfisk og erum að byggja okkur upp þar. Við erum til dæmis mjög vel settir í aflaheimildum og viljum nýta það sem best til að skapa sem mest verðmæti gegnum vinnsluna. Hins vegar þurfum við að auka framleiðn- ina á hvern einasta starfsmann í fyrirtækinu og það eru engin ný sannindi. Það var sagt á síðasta aðalfundi. Á þeim fundi var boðað að fara þyrfti yfir alla vinnsluna með það að mark- miði að gera hana arðbæra eða loka henni. Við teljum að mögulegt sé að gera hana mjög arðbæra og völdum því að halda henni áfram. Því þurfti að gera breytingar, þær voru óumflýjanlegar. Útlitið er gott í bolfiski, aflaheimildir munu aukast, og markaðurinn er að styrkjast eftir nokkurra ára lægð, því teljum við breyt- ingar okkar koma á hárréttum tíma.“ Sighvatur segir að það sé mjög erfitt að segja að rekstur- inn í Þorlákshöfn bitni eitthvað frekar á Vestmannaeyjum eða öfugt. „Fyrirtækin voru sam- einuð og við tókum við fyrir- tæki með starfsfólki og berum ákveðna ábyrgð á því. Okkar verkefni er að reyna að koma starfseminni þannig að við getum haldið uppi rekstri á báðum stöðum og að hann skili hagnaði. Ég tel hins vegar að reksturinn i Þorlákshöfn og Vestmannaeyjum styðji hvor annan vegna þess hve ólíkur reksturinn er á þessum stöð- um.“ Sighvatur segir að stefnt sé að því fyrir lok ágúst að Vinnslustöðin verði með lægstu skuldastöðu sem fyrir- tækið hefur haft frá sameining- in átti sér stað 1992 sem ætti að styrkja reksturinn. „Við erum í erfiðum tíma núna, hins vegar er mjög margt jákvætt í umhverfinu og ekkert sem segir okkur annað en að útlitið sé mun bjartara en sá tími sem við höfum gengið í gegnum undanfarið." Sighvatur segir að skipulag- ið í Þorlákshöfn sé komið nokkurn vegin í það form sem fyrirhugað var í þorski og ýsu. „í Eyjum erum við hins vegar ennþá að aðlaga okkur. Við eigum eftir að koma upp full- vinnslunni, eins og við ætluð- um okkur. Þessu miðar kannski hægt áfram, en við vonum að fyrir haustið verði komin rétt mynd á vinnsluna hér í Eyjum. Atvinnumarkaður- inn hér í Eyjum er það við- kvæmur að hann þolir ekki fjöldauppsagnir." Sighvatur segir að sparnað- urinn á ársgrundvelli vegna þessara tginn en þetta er afar ósmekklegt að mínu mati. Ég er ekkert að fara héðan hvort sem fólki líkar betur eða verr og er nýbúinn að ræða fram- lengingu á samningi mínum við Vinnslustöðina og ég ætla að standa við hann. Ég gaf stjórnarformanni fyrirtækisins loforð um að við myndum klára þetta saman og ég stend við það. Við erum að sjá til sól- ar og ég ætla að þaða mig í sólinni með öðru starfsfólki fyirirtækisins, en það getur tekið tvö ár að ná þeim á- fanga. Markmið mitt er alltaf það sama að sjá Vinnslustöð- ina hf. í hópi öflugustu fyrir- tækja landsins, þegar því tak- marki er náð má Guð vita hvað ég geri.“ ■ Benedikt Gestsson. SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR 15

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.