Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1998, Blaðsíða 15
Það er fjör í Eyjum og rekstur Vinnslustöðvarinnar er í brennidepli:
Eðlilegt að efast um fram-
kvæmdastjóra í taprekstri
Nú hefur þín persóna verið
dregin inn í starfsmannatilfærsl-
ur hjá fyrirtækinu og sérstaklega
fasteignakaup í Reykjvík Hvað
viltu segja um það mál?
„Það er eðlilegt að fólk efist
um framkvæmdastjóra fyrir-
tækja í taprekstri, en stjórn fé-
tagsins treystir mér til þess að
klára uppbyggingu félagsins
og það nægir mér. Ég hef ekki
áhyggjur af skoðunum fólks.
Við erum í miklu uppbygging-
arstarfi hjá Vinnslustöðinni,
búnir að byggja upp gríðarlega
öfluga fiskimjölsverksmiðju,
tæknívædda og nýja uppsjáv-
arfiskfrystingu og endurbyggja
frá grunni saltfiskvinnsluna.
Húsin hafa verið tekin alger-
lega í gegn á sama tíma. Við
erum búnir að umbylta flotan-
um og erum með mjög öflugan
flota i dag og erum að byggja
upp bolfiskvinnslu og full-
vinnslu. Ég er stoltur af því
sem okkur hefur tekist þó
stundum hafi gefið á bátinn.
Hvað varðar húsnæðismál mín
finnst mér hins vegar ekki
nokkurn mann varða um það
hvað eða hvar ég á fasteignir.
Og að tengja það þessu máli
er ekki í nokkru samhengi við
raunveruleikann. Þetta er fjár-
festing eins og hver önnur. Og
þessi Frétt í Degi sem þú ert
trúlega að vísa til, þá var mál-
inu stillt þannig upp að sjávar-
útvegurinn væri orðinn það
stöndugur, væntanlega vegna
þess að greinin greiðir tiltölu-
lega lítið í auðlindagjald, að ég
hefði efni á að kaupa mér hús.
Hins vegar sé óg ekki hvað
þetta hefur með Vinnslustöð-
ina eða sjávarútveginn að
gera. Þetta er mín prívat fjár-
festing. Þetta er svipað og að
segja það að búseta Stefáns
Jóns Hafstein, eða Jóns Ólafs-
sonar hafi eitthvað að gera
með stöðu fjölmiðlamarkaðar-
ins.“
Sighvatur var spurður
hvernig hann skýrir lakari afko-
mu en gert hafði verið ráð fyrir.
„Eins og flestir ættu að vita
hófst ekki loðnuvertíð fyrr en í
mars og þar að auki að ef af-
koman núna af veiðum og
vinnslu í uppsjávarfiski miðað
við það sem verið hefur und-
anfarin ár, þá vantar miðað við
árið í fyrra yfir 260 milljónir í af-
komuna í uppsjávarfiski, sem
er vegna þess að síldin hrundi
í haust. Loðnan fór mjög illa
líka og okkur vantaði 25 þús-
und tonn í bræðslunni. Sjó-
menn fóru tvisvar í verkfall svo
auðvitað hlýtur þetta að skaða
fyrirtækið. Hins vegar er það
jákvæða í þessu að við höfum
náð árangri í bolfiski sem er
140 milljónum betri en á sama
tíma í fyrra. Þar erum við á
réttri leið, en þurfum að gera
betur. Til framtíðar held ég að
við séum á réttri leið. Við þurft-
um að kúvenda í bolfisk og
erum að byggja okkur upp
þar. Við erum til dæmis mjög
vel settir í aflaheimildum og
viljum nýta það sem best til
að skapa sem mest verðmæti
gegnum vinnsluna. Hins vegar
þurfum við að auka framleiðn-
ina á hvern einasta starfsmann
í fyrirtækinu og það eru engin
ný sannindi. Það var sagt á
síðasta aðalfundi. Á þeim fundi
var boðað að fara þyrfti yfir alla
vinnsluna með það að mark-
miði að gera hana arðbæra
eða loka henni. Við teljum að
mögulegt sé að gera hana
mjög arðbæra og völdum því
að halda henni áfram. Því
þurfti að gera breytingar, þær
voru óumflýjanlegar. Útlitið er
gott í bolfiski, aflaheimildir
munu aukast, og markaðurinn
er að styrkjast eftir nokkurra
ára lægð, því teljum við breyt-
ingar okkar koma á hárréttum
tíma.“
Sighvatur segir að það sé
mjög erfitt að segja að rekstur-
inn í Þorlákshöfn bitni eitthvað
frekar á Vestmannaeyjum eða
öfugt. „Fyrirtækin voru sam-
einuð og við tókum við fyrir-
tæki með starfsfólki og berum
ákveðna ábyrgð á því. Okkar
verkefni er að reyna að koma
starfseminni þannig að við
getum haldið uppi rekstri á
báðum stöðum og að hann
skili hagnaði. Ég tel hins vegar
að reksturinn i Þorlákshöfn og
Vestmannaeyjum styðji hvor
annan vegna þess hve ólíkur
reksturinn er á þessum stöð-
um.“
Sighvatur segir að stefnt sé
að því fyrir lok ágúst að
Vinnslustöðin verði með
lægstu skuldastöðu sem fyrir-
tækið hefur haft frá sameining-
in átti sér stað 1992 sem ætti
að styrkja reksturinn. „Við
erum í erfiðum tíma núna, hins
vegar er mjög margt jákvætt í
umhverfinu og ekkert sem
segir okkur annað en að útlitið
sé mun bjartara en sá tími sem
við höfum gengið í gegnum
undanfarið."
Sighvatur segir að skipulag-
ið í Þorlákshöfn sé komið
nokkurn vegin í það form sem
fyrirhugað var í þorski og ýsu.
„í Eyjum erum við hins vegar
ennþá að aðlaga okkur. Við
eigum eftir að koma upp full-
vinnslunni, eins og við ætluð-
um okkur. Þessu miðar
kannski hægt áfram, en við
vonum að fyrir haustið verði
komin rétt mynd á vinnsluna
hér í Eyjum. Atvinnumarkaður-
inn hér í Eyjum er það við-
kvæmur að hann þolir ekki
fjöldauppsagnir."
Sighvatur segir að sparnað-
urinn á ársgrundvelli vegna
þessara tginn en þetta er afar
ósmekklegt að mínu mati. Ég
er ekkert að fara héðan hvort
sem fólki líkar betur eða verr
og er nýbúinn að ræða fram-
lengingu á samningi mínum
við Vinnslustöðina og ég ætla
að standa við hann. Ég gaf
stjórnarformanni fyrirtækisins
loforð um að við myndum
klára þetta saman og ég stend
við það. Við erum að sjá til sól-
ar og ég ætla að þaða mig í
sólinni með öðru starfsfólki
fyirirtækisins, en það getur
tekið tvö ár að ná þeim á-
fanga. Markmið mitt er alltaf
það sama að sjá Vinnslustöð-
ina hf. í hópi öflugustu fyrir-
tækja landsins, þegar því tak-
marki er náð má Guð vita hvað
ég geri.“ ■
Benedikt Gestsson.
SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
15