Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1999, Blaðsíða 14
Sjómannaskólinn í Reykjavík býður upp á ýmis konar endurmenntun-
arnámskeið fyrir skipstjórnarmenn. Öll eru þau valnámskeið utan eitt,
fjarskiptanámskeiðið, sem öllum skipstjórnarmönnum er skylt að
sækja samkvæmt nýjum lögum. í vetur hafa reyndir skipstjórnarmenn
á öllum aldri og víðs vegar af landinu setið á skólabekk í Reykjavík.
Það voru líflegar umræður yfir kaffibollunum þegar Sjómannablaðið
Víkingur hitti einn hópinn í marsbyrjun. Menn njóta þess að hittast og
skrafa.
Hörður Þórhallsson, skipstjóri og
útgerðarmaður Sigþórs ÞH 100,
hefur verið á sjó í rum 40 ár. Hann
lauk skipstjórnarQámi frá skólan-
um árið 1963. Ýmislegt hefur
breyst síðan þá en annað ekki.
Skólinn
ó b re vtt u r
en búið að
ynur
foka
„Mér finnst notalegt að
koma í skólann aftur eftir öll
þessi ár. Það rifjast upp fyrir
manni góðir tímar. Skólahúsið
er nánast óbreytt og ekki van-
þörf á að gera endurbætur.
Mér virðist sem gamla lýsingin
vera í skólastofunum; hún fór í
taugarnar á mér þá og gerir
enn. Verst er að það er búið að
loka Röðli, aðalsamkomu-
staðnum okkar í þá daga,“
segir Hörður Þórhallsson sem
stundar nám (sínum gamla
skóla eftir 35 ára fjarveru.
Hann var sextán ára þegar
hann fór fyrst á sjó og hefur
verið sleitulaust að í rúm 40 ár.
Hörður býr í Keflavík og ekur til
Reykjavíkur á hverjum degi í
skólann.
„Það er meira vandamál að
fá bílastæði á lóðinni núna.
Mig minnir að fjórir nemendur
hafi átt bíla í þá daga,“ segir
hann.
Varðandi námskeiðin segir
hann að þau séu gagnleg fyrir
sig. „Það hafa orðið gífurlegar
breytingar í fjarskiptatækninni
„Það hafa orðið gífurlegar breytingar í fjarskiptatækninni."
og við verðum að fylgja þeim.
Núna er búið að leggja morsið
niður og annað komið í stað-
inn. Þetta námskeið er fólgið í
því að læra á nýja tækni í
neyðar- og öryggistilfellum. Á
næsta ári verða allir skipstjórn-
armenn að hafa sótt þessi
námskeið. Þau taka tíu daga,
skemmtilega vil ég segja.
Þetta er full vinna því við erum
í skólanum í sex til átta tíma á
dag,“ segir Hörður Þórhallsson
skipstjóri. ■
14
Sjómannablaðið Víkingur