Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1999, Blaðsíða 11
3?vi hefði verið eðlilegast að við
hefðum f organg að húsnæðinu fyrir
sýninguna, ekki síst þar sem við
höf ðum góðan stuðning íslenskra
fyrirtækja. Slíkt hefði verið talið
sjálfsagt alls staðar þar sem ég
þekki til. En svo var Laugardalshöll
sett á uppboð og við sendum inn
mjög gott tilboð að okkar mati.
mjög fljótir að tileinka sér nýj-
ungar og nýja tækni, jafnt í
sjávarútvegi sem öðru. Það
hefur raunar síður en svo
breyst því nú nota íslendingar
til dæmis internetið meira en
víðast hvar þekkist auk annarr-
ar tækni sem er útbreiddari á
íslandi en í flestum öðrum
löndum. Sjávarútvegssýningin
hefur svo þróast á þann veg að
fjöldi íslenskra fyrirtækja er nú
að kynna fulltrúum annarra
þjóða framleiðslu sína á ýms-
um tæknibúnaði. Ég fullyrði
hiklaust að Islenska sjávarút-
vegssýningin er orðin alþjóð-
legur verslunargluggi. Aðilar er-
lendis frá koma og kaupa af ís-
lenskum fyrirtækjum og/eða af
erlendum fyrirtækjum sem taka
þátt í sýningunni líkt og íslend-
ingar sem sækja sýninguna."
Einkennilegt uppboð
Eins og menn muna reyndu
nýir aðilar ná til sín íslensku
sjávarútvegssýningunni úr
höndum Nexus. Sýningin hefur
til þessa verið í Laugardalshöll
og þegar átökin um sýningar-
haldið stóðu yfir afréð Reykja-
víkurborg að láta gera tilboð í
leigu á Höllinni fyrir sýninguna í
ár. John Legate segir að þetta
mál hafi allt verið mjög sér-
kennilegt og hann hafi orðið
mjög hissa þegar það kom
upp.
„Við vorum búin að annast
fimm sýningar með þriggja ára
millilbili sem höfðu tekist vel og
vakið ánægju þátttakenda og
gesta. Því hefði verið eðlilegast
að við hefðum forgang að hús-
næðinu fyrir sýninguna, ekki
síst þar sem við höfðum góðan
stuðning íslenskra fyrirtækja.
Slíkt hefði verið talið sjálfsagt
alls staðar þar sem ég þekki til.
En svo var Laugardalshöll sett
á uppboð og við sendum inn
mjög gott tilboð að okkar mati.
En hinn aðilinn bauð mun
hærra og hreppti Höllina. Þetta
endaði með því við fluttum
sýninguna til Kópavogs og
bæjaryfirvöld þar sýndu málinu
mikinn áhuga og skilning.
Samstarf okkar hefur frá upp-
hafi verið mjög gott og sýning-
in í ár verður stærri og glæsi-
legri en nokkru sinni fyrr. Æ
fleiri fyrirtæki sjá sér hag í að
taka þátt í íslensku sjávarút-
vegssýningunni og núna bætt-
ust við fyrirtæki sem við vissum
ekki einu sinni að væru til.
Þarna kemst á samband milli
kaupenda og seljenda og alltaf
er eitthvað um að gerðir séu
samningar um kaup og sölu á
sýningunni sjálfri þótt algeng-
ast sé að slíkt eigi sér stað í
framhaldinu."
Mikil fjölgun þátttakenda
John Legate sagði alla að-
stöðu í Smáranum í Kópavogi
mjög góða til sýningarhaldsins.
Auk þess að nýta stóru íþrótta-
húsin þar voru fluttir inn þrír
sýningarskálar frá Hollandi sem
standa milli Tennishallarinnar
og íþróttahúss Smárans. Þátt-
takendum fjölgar mjög frá síð-
ustu sýningu og verða nú um
800 en voru 699 árið 1996. Þá
komu um 15 þúsund gestir á
sýninguna frá meira en 30
löndum. Að sögn forstjórans
verða mun fleiri bílastæði við
sýningasvæðið í Kópavogi en
var við Laugardalshöll og allt
gert til að greiða fyrir umferð.
Góð veitingaþjónusta verður á
sýningunni á fjórum stöðum á
svæðinu. „Þessi mikla fjölgun
þátttakenda í sýningunni er
greinilegt merki þess hve mikil-
vægur viðburður hún er orðin
og er okkur sem standa að
sýningunni hvatning til að gera
sífellt betur,“ sagði forstjóri (s-
lensku sjávarútvegssýningar-
innar.
John Legate sagði mikla
undirbúningsvinnu liggja að
baki hverrar sýningar og nán-
ast um leið og sýningu lyki
þyrfti að hefja vinnu við að
undirbúa næstu sýningu eftir
þrjú ár. Aðspurður sagði hann
íslensku sjávarútvegssýning-
una núorðið standa fyllilega
jafnfætis þeim alþjóðlegu sjáv-
arútvegssýningum sem hann
þekki til erlendis. Fyrirtækið
Nexus sem John Legate
starfar við skipuleggur sjávar-
útvegssýningar víðar en hér á
landi og nefndi hann sýningar í
Vigo á Spáni, Álaborg i
Dannörku og á Indlandi.
Eins og gefur að skilja hefur
John komið margsinnis hingað
til lands og hann segist hafa
eignast marga vini hér. Hann
segir íslendinga opinskáa og
vingjarnlega í kynningu og
kveðst eiga gott samstarf við
fjölda fólks hér á landi. ■
-SG
SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
11