Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1999, Page 18
Utan úr heimi
Hertar kröfur
Samgönguráðherra Breta,
leikkonan Glenda Jackson,
upplýsti nýlega á fundi í Am-
sterdam að skip sem ekki upp-
fylltu alþjóðareglur yrði bannað
að koma til hafna innan Evr-
ópusambandsins frá og með
2002. Sagði hún að flest slysa
og óhappa á sjó mætti rekja til
mannlegra mistaka og þá væri
áhöfnin sökudólgarnir þótt þeir
nytu ekki þeirra þjáifunar sem
krafist er á alþjóðavettvangi.
Nú verður farið að herða þum-
alskrúfurnar að þeim skipum
og útgerðum sem hafa verið að
sniglast um höfin með ódýrar
og illa menntaðar áhafnir í
skjóli samkeppniserfiðleika.
Fölsuð atvinnuskírteini
Nýlega var breskur sjómaður
dæmdur í 1.000 punda sekt
fyrir að hafa notað fölsuð at-
vinnuskírteini til að öðlast
skipsstjórn. Maðurinn sem
heitir Nicholas Mclntyre fram-
vísaði fölsuðum yfirstýrimans-
réttindum og fékk útgefið skip-
stjóraskírteini á Barbados.
Hann hafði síðan siglt sem
skipstjóri á flutningaskipum
undir Barbadosfána milli hafna
í Evrópu. Grunsemdir vöknuðu
hjá yfirvöldum á Barbados sem
óskaði eftir að bresk yfirvöld
skoðuðu málið. Mclntyre var
síðan handtekin og leiddur fyrir
dómstóla. Rétturinn tók reynd-
ar tillit til þess að maðurinn átti
enga peninga þar sem hann
hafði sótt um skólavist í stýri-
mannaskóla og greitt sín skóla-
gjöld. Reyndar tók dómurinn
einnig tillit til mikillar reynslu
Mclntyre og góðs orðstírs sem
hann hafði skapað sér ásamt
því að hann lýsti sig strax sek-
an. I lokaorðum dómsins var
hart kveðið að broti Mclntyre
og á það bent að vanmennt-
aður maður sem hefur stjórn á
skipi án tilskilinna réttinda
skapaði ekki aðeins hættu fyrir
sig og sína áhöfn heldur einnig
fyrir önnur skip og aðra sjó-
menn sem í nálægð væru.
Herskip á æfingu
Þeir sem sigldu stríðsárin
óttuðust stöðugt að skip þeirra
væri verið að skoða úr sjónpíp-
um kafbáta og eínhver veiði-
glaður kafbátaforingi héldi
fingri sínum á skothnappi tund-
urskeytanna bíðandi eftir rétta
augnablikinu. Mörg skip urðu
fórnarlömb styrjaldanna en að
þeim loknum fóru vopnaðar
þjóðir að gera vopn sín öflugri
ef til nýrra átaka kæmi. í dag er
vopnabúnaðurinn orðin svo öfl-
ugur að fiski- eða flutníngaskip
eiga enga möguleika ef til
stendur að beina að þeim
vopnum hvort heldur sé ofan
eða neðansjávar. Nauðsynlegt
er fyrir hernaðarríki að æfa skip
og áhafnir í notkun þess full-
komna búnaðar sem eru í not-
kun á heimshöfunum. Þá eru
gjarnan gömul og úrelt herskip
notuð sem skotmörk til að gera
hlutina sem raunverulegasta. í
júní s.L var ástralski sjóherinn
að æfa tundurskeytaárásir á
nýjum kafbát flotans H.M.A.S.
Farncomb og fékk kafbáturinn
að spreyta sig á að skjóta niður
freigátuna Torrens sem er af
Rothesaygerð. Eitt tundur-
skeyti nægði til að kljúfa skipið
í tvennt en hér fylgja tvær
myndir frá þessari skotæfingu
en það er mynd af freigátunni
þegar tundurskeytið hæfir og
síðan þegar skipið er komið í
tvennt.
Erfiðleikar
Skipasmíðastöðin Fincantieri
á Ítalíu hefur verið í fjárhags-
vandræðum og þá aðallega
vegna erfiðleika við smíði
skemmtiferðaskipa þar sem
skipasmíðastöðin fór umtals-
vert fram úr áætluðum smíða-
tíma og fékk á sig óheyrilegar
dagsektir. Þær námu 164 millj-
ónum dollara árið 1998. Til að
átta sig á vandanum þá varð 6
vikna seinkun á skemmtiferða-
skipinu Rotterdam, 4 mánaða
seinkun á Disney Magic og 2
vikna seinkun á Disney Wonder
og Grand Princess. Það sem af
er þessu ári hefur Volendam
seinkað um 4,5 mánuði og Za-
andam um 3 mánuði. Öll eru
skipin skemmtiferðaskip. Svo
langt hafa vandræði stöðvar-
innar gengið að DFDS sem átti
tvö skip þar í smíðum hefur lát-
ið taka þau og draga til Dan-
mörku þar sem lokið verður við
smíði þeirra. En þegar illa
stendur á fyrir skipasmíða-
stöðvum virðist ríkið ávallt
koma réttandi hjálparhendi því
nú hefur verið lagður kjölur af
56 metra löngum kafbát fyrir
italska sjóherinn og mun annar
kafbátur verða smíðaður hjá
sömu skipasmíðastöð í kjölfar-
ið. Skipasmíðastöðin í Árósum
18
Sjómannablaðið Víkingur