Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1999, Side 56

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1999, Side 56
fiskimannaprófið 1956 og lét það duga mér. Ég var með stórt heimili og lét það próf því duga. Auk þess var ég aldrei með það stóra báta að það kom ekki að sök þó ég hefði ekki meiri réttindi. Þegar ég fór í skólann átti ég sex börn og var nýbúinn að byggja íbúðarhús þannig að það var talsvert mál að setjast í skóla.“ Þú sagðir áðan að þú hafir þurft að hætta til sjós 1991 vegna veikinda. „Það var í apríl 1991 sem ég varð að fara í land mikið veikur, var með kransæðastíflu. Ég var með Siglunes þegar þetta var, Lárus Guðmundsson gerði hann út. Þar áður hafði ég verið með bát fyrir Hraðfrystihús Grund- arfjarðar, Skipanes og bát með sama nafni sem Lárus átti. Fyrir Lárus hafði ég líka verið með Sólberg. Þetta eru allt hefðbundnir ver- tíðarbátar. Mest vorum við á netum, línu og trolli. Eftir að ég hætt í útgerðinni seldi ég Sigurjóni Helgasyni Lýð Valgeir og var með bátinn fyrstu tvö árin sem hann var gerður út frá Hólminum, bæði á rækju og skel.“ Það er ekki hægt að hætta þessu spjalli nema koma áður með hefðbundna spurn- ingu fyrir skipstjóra. Þú hefur væntanlega lent í erfið- leikum á sjónum á þessum langa tíma? „Vissulega lenti ég oft í vondum veðrum. Ég var hins vegar svo lánsamur að það er ekki hægt að segja að hjá mér slasaðist maður, þá er ég ekki að tala um smáskrámur. Það kom fyrir að veður urðu vond en ég minnist þessi ekki að hafa verið hætt kominn, en það kom skvetta og skvetta.“ Þú segist hafa verið Iánsamur. Einhver er nú hlutur skipstjóra í velgengni og farsælni, ekki rétt? „Það kann vel að vera að ég hafi farið var- lega. Þó ég hætti vegna veikinda var ég sáttur að hætta. Eflaust hjálpaði það mér að aldrei kom neitt fyrir hjá mér. Ég var farsæll.“ Á löngum tíma og oft á litlum bátum hef- ur margt gerst. Kom fyrir að þú varðst hræddur? „Ekki hræddur, en oft hugsaði ég þegar veður voru vond hvort allt færi vel. A þeim tíma var ekkert um tæki, lélegur dýptarmælir, enginn radar né neitt. Oft var það þegar við vorum að taka Grundarfjörðinn í vondum veðrum, byljum og myrkri, að ef ég heyrði í æðarkollunni vissi ég að ég var kominn ná- lægt landi og beygði frá. Þetta lánaðist. Við vorum í miklu sambandi við náttúruna. Þeg- ar ég var með Lárus rérum við stíft, eitt sinn tókum við balana og vorum komnir í fjarðar- kjaftinn í rennandi blíðu að ég ákveð, þar sem einhverri hugsun Iaust í kollinn á mér, að það borgi sig ekki að fara lengra. Guðmundur frændi minn Jóhannesson var með mér, og brást hann reiður við að snúa við í blíðuveðri. Við vorum rétt búnir að binda bátinn við bryggju þegar skall á norðaustan stórhríð og vonskuveður. Ég álít að ég hafi fengið ein- hverskonar vitjun.“ Hver hefur það verið? „Ég veit það ekki, einhver sem vildi mér vel. Ég hef oft fengið vitjanir en ég hef aldrei vitað hver það er. Svo er ég eins og fleiri sjó- menn, ég fer eftir draumum. Mig dreymdi oft fyrir daglátum og fiskaði oft vel á það. Ég á erfitt með að skýra þessa drauma. Mér hef- ur verið vísað hvert ég á að fara eða færa neta- trossur. Það hefur komið fyrir að ég hef dreg- ið trossur með litlum afla en fundið á mér að ég yrði að leggja á sama stað þrátt fyrir lakan afla. Ég man eftir þannig degi, sonur minn var stýrimaður hjá mér og hann var undrandi á þessu, daginn eftir vorum við með þrjátíu tonn.“ Ert þú trúaður? „Já, ég er mjög trúaður og trúin hefirr fylgt mér. Ég bað fyrir hverri sjóferð og nú bið ég fyrir mínum nánustu í hvert sinn sem ég leg- gst til svefns. Trúin hefur hjálpað mér mjög mikið og ég hef notað hana í gegnum allt mitt líf.“ Sem unglingur, báðir foreldrar þínir látnir og þú aðskilinn frá systkinum þínum, efaðist þú þá um tilvist guðs? „Nei. Það var svo merkilegt að þegar ég missti föður minn, á fermingarárinu mínu, fermdist ég í Dómskirkjunni í Reykjavík. Pabbi lá á Landakotsspítala sjúkur af krabba- meini og ég fermdist í Reykjavík svo hann fengi að sjá mig t' fermingarfötunum. Ég held að ég hafi harnað við þetta allt saman. Ég fermdist um vorið og hann lést í september." Frá því þú byrjaðir til sjós og þar til þú hættir breyttist margt. „Það urðu ótrúlega miklar breytingar. Samt kemur mér fyrst í hugann að allan minn skipstjóraferil var ég alltaf með mjög góða menn með mér? „Hvers vegna ætli það hafi verið? „Það verða aðrir að svara því.“ Má ég álíta að það hafi verið vegna þess að það hafi verið gott að vera með þér? „Þegar ég hitti þessa vini mína þakka þeir mér margir fyrir þann tíma sem þeir voru með mér.“ Þorvarður er kominn í land, ekki heill heilsu og á ekki eftir að vinna erfiðisvinnu. Hann er of veikur til þess. Fyrri hjartaaðgerð- in tókst ekki eins og vonast var til og skera varð að nýju, ári síðar. I veikindum sínum missti Þorvarður mikið þrek og varð því að sætta sig við ýmislegt. Samt man hann bara eftir þalddæti. Hann vill að fram kom að gott hafi verið að vera á Reykjalundi „Ég reyni að líta björtum augum á lífið og vera ánægður með mitt. Ég er afar sáttur maður. Ég á svo margar góðar minningar, góð börn og gott heimili. Því skyldi ég ekki vera sáttur.“ Hér er mál að linni, en blaðamanni verður á að spyrja einnar spurningar enn. Myndir þú velja sama starf aftur værir þú ungur og þá þrátt fyrir kvóta og aðrar breytingar? „Alveg hiklaust. Hitt er annað að ég hef aldrei verið sáttur við kvótann. Með honum fór allt kapp og gleði horfin.“ H Texti: Sigurjón Egilsson og Krístborg Hákonardóttir. Ljósmyndir: Signrjón Egilsson ogfleiri. 56 Sjómannablaðið Víkingur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.