Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1999, Síða 64

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1999, Síða 64
Guðjón A. Kristjánsson skrifar: Svarvið pistii Bjama Sveinssonar birta hana og hvar og hvenær hún var sam- þykkt og af hverjum. Ég tel mig ekki fara með neitt skitkast, né fara með rangt mál í því sem haft er eftir mér um lífeyrismál og stend við það sem ég segi þar. Ég átti samtal við Benedikt í vetur er ég kom í land og sá að viðtalið var ekki í blaðinu og spurði hann í þaula hvers vegna, t.d. hvort eitthvað væri ósatt eftir mér haft og hann sagði svo ekki vera. Þú segist hafa viljað koma í veg fyrir innbyrðis vígaferli. Hvað er það sem haft er eftir mér Guðjón sem flokkast undir víga- ferli? Mér sýnist nú að þessi grein þin Guð- jón sé aftur á móti með þeim hætti að geta flokkast undir slíkt, t.d. að öskra að eilífu nei, nei og skynsemin ofan í skúffu og ósannindi þau sem ég hef fyrr bent á í þessari grein. Nei Guðjón ég held nú að höfnun viðtals- ins, ritskoðun á skrifum ritstjóra og ábyrgð- armanns sé ótrúlega rússnesk þ.e. sé sannleik- urinn óþægilegur fyrir toppinn, þá skal hann ekki birtast og allra síst meðan málið er heitt í umræðunni og toppurinn í miklum póli- tískum ham og stutt í kosningar. Það er ein- faldlega þannig í lýðræðisríkjum að þegar forystumenn fara á skjön við vilja og stefnu umbjóðenda sinna þá verður það ekki falið og menn verða að taka slíkum sannleik af einhverri skynsemi. Ritskoðun, útúrsnún- ingar og ósannindi flokkast að mínu viti ekki undir slíkt. Ég hef þá skoðun og er klárlega ekki einn um hana að Víkingurinn má aldrei verða einkamálgagn þitt og Benna. Það er bara hreinn útúrsnúningur að þetta mál snúist á einhvern hátt um skapstóra stjórnarmenn og þykir mér þú varpa steinum úr glerhúsi er þú nefnir það. Ég minnist þess t.d. ekki að nokkur annar en þú hafir þurft að biðjast af- sökunar á stjórnarfundi eftir að hafa misst stjórn á skapi sínu. Að lokum Guðjón. Hvernig fer það saman sem þú segir að ég hafi unnið vel að málum sjómanna, við það að ég stundi vígaferli og gargi bara NEI NEI og skilji skynsemina eft- ir ofan í skúffu? Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna í næsta Víkingi. Bjarni Sveinsson skipstjóri ogfyrverandifull- tníi FFSÍ í stjórn LífeyrisjóSs sjómanna í stjóm FFSÍ tilfjölda árafyrverandi form Haffórs og í stjórn þessfélags sennilega síSustu 20 ára. P/S. Áskil mér rétt til að koma framanrituðu á famfœri víða. í fyrstu málsgrein í pistli þínum, sem þú óskaðir eftir að birtur væri í Víkingnum, seg- ir þú að ritnefnd hafi ritskoðað greinarskrif þín. Það rétta er að ritnefnd tók ákvörðun um að birta grein þína í því tölublaði Vík- ingsins sem kemur út rétt fyrir sjómannadag ár hvert. Sú ákvörðun frestaði birtingu úr marsblaði í júníblað, þ.e. einu tölublaði seinna. Allt tal þitt um að við höfum ritskoð- að greinina eða breytt viðtalinu er algjör markleysa. Ritnefnd breytir aldrei texta sem kemur frá öðrum, nema þá með leyfi hlutað- eigandi höfundar. í annarri málsgrein segir þú að ég hafi skrifað grein undir nafninu „Manni getur nú blöskrað“ sem sé mér til lítils sóma, þar að auki útúrsnúningur og ósannindi. Ég hef enga grein skrifað sem ber yfirskriftina sem þú kaliar að mér blöskri eitthvað. Það er al- gjörlega úr þínum hugarheimi. Að sárna eitt- hvað er allt önnur hugsun og meining. Mér kemur hins vegar ekki á óvart þó þér blöskri málflutningur annarra ef hann fer ekki sam- an við það sem þú telur að sé satt og rétt. Ég ætla ekki að elta frekari ólar við það sem þú kallar skömm mína og ósannindi mín. Ég bendi þér á að ég hef aldrei kallað þig fúgl sem bara gargir, það eru þín orð, ekki mín. Ég bendi þér einnig á að ég var ekki stadd- ur á fundi hjá Vísi á gamlársdag. Mér þætti vænt um að sjá þá fundargerð sem skráð var af þeim fundi og hvað ég sagði á fundi sem ég var ekki á. Nákvæmni þín í dagsetningum og hvað hver sagði á hvaða tíma og við hverja er ekki mikil. Það liggur fyrir í viðtali við þig í síðasta tölublaði Víkingsins að þú taldir sjálfsagt að hægt væri að slaka út 10% skerðingu lífeyris- réttinda og fá þannig 30 ára regluna út. Þar með liggur það fyrir, Bjarni Sveinsson, að þú eins og allir aðrir af þeim 5 mönnum sem sambandsstjórn kaus til að vinna að lendingu þessa máls í desember síðastliðnum vissu og gerðu sér grein fyrir að samkomulag við önn- ur samtök sem aðild eiga á Lífeyrissjóði sjó- manna varð ekki mögulegt án skerðingar. Nema þú sért í pistlinum að ásaka ritstjór- ann, sem viðtalið tók við þig, um að hann fari með staðlausa stafi sem þú hafir aldrei sagt. Ef það er glæpur okkar Benedikts Vals- sonar að hafa lent málinu við skerðingu upp á 11,5%, sem varð lokaafgreiðsla málsins á Alþingi, eða 1,5% hærra en sá eini sem rétt hefur á að gefa eftir til þess að ná sáttum sem í þessu máli virðist vera þú einn. Þá liggur sá glæpur og skömm tvímælalaust hjá mér. Hins vegar ber að taka skýrt fram að í um- ræddum starfshópi var samkomulag um að fallast á 10% skerðingu og 30 ára reglu breytt í 35 ár. Fyrir lá að kostnaður við 30 ára reglu var um 3,7% og niðurstaða upp á 11,5% skerðingu lífeyrisréttinda og alla 30 ára regl- una út, lendir málinu nánast með sama hætti og við fjórmenningarnir úr starfshópnum vorum sammála um. Aftur á móti virðist að einhver hafi snúið við blaðinu, eins og mál hafa þróast, sem er með öllu óskiljanlegt. Ritstjórnarstefna Víkingsins birtist á síð- um hans og þar hafa ekki verið skrif, þar sem fh'kað er um afstöðu og vinnu einstakra starfsmanna eða stjórnarmanna FFSl í mál- um sem fjallað er um á stjórnarfundum. Menn sem sitja í stjórn FFSÍ hafa ekki átt von á því að einstök mál séu persónugerð og að Jón, Bjarni eða Gvendur hafi sagt þetta eða hitt undir umræðum um ýmis mál. Hin málefnalega niðurstaða á fundunum er það sem skiptir máli. Víkingurinn er ekki einkamálgagn neins nema FFSÍ. Hans hlutverk er meðal annars að fjalla um mál samtökunum og félags- mönnum þess til hagsbóta. þar á ekki að fara fram nein sögufölsun eða eins og þú kallar það „ritskoðun, útúrsnúningar og ósann- indi.“ Ritstjórnarstefna Víkingsins hefúr í áratugi 64 SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.