Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2000, Page 55
C02 slökkvikerfi.
Skynjarar sem virka sjálfstætt hvar sem er í skipi.
kerfin ekki leyfð hér á íslandi frá aldamót-
um. Nú þegar ákveðið hefur verið að
hætta að nota Hallon einblína yfirvöld hér
á svo kölluð „græn“ slökkviefni (Inergen,
Argontine og Argotec). En gallinn er sá að
þau hafa langan afhleypitíma miðað við
Hallonið sem er um borð í dag, það þarf
aðeins átta sekúndur, tekur lítið pláss og
er stórkostlegt slökkvigas. Með öryggi sjó-
manna í huga hefði átt að leyfa þeim að
sigla áfram með Hallonið en hækka verðið
á því þannig að menn hugsuðu sig tvisvar
um og aðgættu að eldur væri til staðar
áður en þeir hleyptu af kerfinu. Þessar
reglur sem settar hafa verið hér á landi í
þessum efnum eru mun strangari heldur
en gengur og gerist í löndum Evrópu-
sambandsins. Við viljum halda því fram að
besti kosturinn við útskipti á Hallon sé að
fara yfir í Hallotron IIB en það hleypir af á
átta sekúndum eins og Hallonið en tekur
aðeins meira pláss. Ókostur Hallotrons IIB
er sá að það veldur smá gróðurhúsa áhrif-
um. Þó teljum við að þegar á heildina er
litið þá hafi Hallotron IIB vinningin vegna
skams afhleypitíma þess, það valdi því
minni eyðingu á Ozoni og minni gróður-
húsa áhrifum en grænu gösin sem hafa
lengri afhleypi tíma. Þetta er ódýrasti kos-
turinn við að skipta út Halloni. Halotron IIB
er tvímælalaust öruggasta gasið sem er
nú á markaðnum fyrir útgerð og áhöfn.
Hallotron IIB fer strax að slökkva eldinn
þegar hleift er af kerfinu eins og Hallonið.
Græna gasið þarf hins vegar að ná um 50
prósenta mettun í vélarúmi áður en það
fer að slökkva. C02 virkar þannig að það
pressar súrefni út úr vélarúmi og er því
stórhættulegt mönnum en við teljum það
samt öruggari kost en grænu gösin um
borð í skipum. Við mælum eindregið með
Halotron IIB þó við heyrum út undan okkur
að það sé vegna þess að við höfum ekki
upp á annað að bjóða, en það er ekki rétt.
Grænu gösin eru til sem Inergen, Argon-
tine og einnig Argotec sem við bjóðum
upp á. Við vitum um úgerðir sem eiga skip
lengri en 60 metra sem hafa sótt um
undanþágu til að nota Hallon áfram og
aðrir vilja fá Halotron IIB. Þar eru þeir að
horfa á hinn skamma slökkvitíma sem
skiptir afskaplega miklu máli fyrir öryggi
skips og áhafnar."
Björgvin Tómasson sagði að lokum að
hann væri mjög ánægður með þær mót-
tökur sem Nortek ehf hefur fengið á mark-
aðnum og hann lyti samstarf við útgerðir
landsins björtum augum í framtíðinni. ■
Þor s«m sjávm'útvegurinn
er i fyrirrúmi
Sjómannablaðið Víkingur
55