Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2000, Blaðsíða 14
123 milljarðar
Staða útlána innlánsstofnana og fjárfest-
ingarsjóða til fyrirtækja í sjávarútvegi í lok
síðasta árs nam 122,7 milljörðum króna.
Árið 1998 var staðan 112 milljarðar og 94
milljarðar árið á undan. Þessar upplýsingar
koma fram í svari Valgerðar Sverrisdóttur
viðskiptaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu
Sigurðardóttur alþingismanns um lánveit-
ingar til sjávarútvegsfyrirtækja. Fyrirspurn
Jóhönnu var í nokkrum liðum og í svari
ráðherra er tekið fram að ekki sé unnt að
svara þeim öllum nema að takmörkuðu
leyti. Meðal annars vegna þess að þær
séu ekki aðgengilegar í upplýsingarkerfum
lánastofnana og ekki sé hægt að veita
upplýsingar sem geti rýrt samkeppnis-
stöðu lánastofnana eða gangi gegn þagn-
arskyldu.
Jóhanna spurði í hve mörgum fiskiskip-
um með aflahlutdeild hafi verið tekið veð
fyrir þessum lánveitingum árlega síðustu
fimm ár og hvað slik veðsetning liggi að
baki háum lánveitingum. í svari ráðherra
kemur fram að Byggðastofnun tók á árun-
um 1995-1999 veð í um það bil 350 bátum
og skipum og þar af voru um 250 smábát-
VERKFRÆÐISTOFAN
ehf
FENGUR
CONSUITING ENGINEERS
TÆKNIÞJÓNUS1A
SKIPAHÖNNUN
VERKLÝSINGAR
KOSTNAÐARÁÆTLANIR
VERKEFTIRLIT
HALLAPRÓFANIR
* STÖÐUGLEIKAÚTREIKNINGAR
BT-MÆLINGAR
LESTAR- OG HLEÐSLUMÆLINGAR
VELTITANKAR
COI
VERKFRÆÐISTOFAN
FENCURenf
CONSUITING ENGINEERS
Trönuhrauni i
220 Hafnarfjörður
Sími:565 5090
Fax:565 2040
ar. Áætlað er að fjárhæð lána á tímabilinu
hafi numið samtals 3,6 milljarðar á verðlagi
í ársbyrjun 2000, þar af um 700 milljónir
vegna smábáta.
Heildarfjárhæð lána Búnaðarbankans til
sjávarútvegs hefur aukist úr 4,4 milljörðum
í árslok 1995 í 11,4 milljarða í árslok 1998.
Heildarútlán Landsbankans til sjávarútvegs
voru 23,6 milljarðar í árslok 1995 en 38,3
milljarðar í árslok 1999. Heildarútlán ís-
landsbanka til sjávarútvegs voru 8,9 millj-
arðar 1995 en 24,5 milljarðar í árslok 1999.
Um síðustu áramót voru 303 fiskiskip með
aflahlutdeild veðsett hjá FBA. ■
Valgerður Sverrisdóttir og
Jóhanna Sigurðardóttir
14
Sjómannablaðið Víkingur