Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2000, Blaðsíða 19
Jóhann Ársælsson,
Samfylkingunni
Væntingar
manna hafa
verið meiri
í Ijósi þess að verulegur samdráttur
hefur verið í veiðum á botnfiski frá því
kvótakerfið var sett á, er þá hægt að segja
að kerfið hafi náð því markmiði að vernda
stofnana?
Nei, ekki botnfiskstofnana en þó verður
að skoða stöðu allra fiskistofna í samhen-
gi. Ekki hefur verið rökstutt með trúverð-
ugum hætti að stefnan hafi skilað árangri.
Væntingar manna um afrakstur hafa verið
meiri um nánast alla fiskistofna .
Þegar leiguverð á kvóta er hátt má þá
búast við að meiri hætta sé á að fiski sé
hent fyrir borð?
Það er rétt án vafa.
Sé það rétt, er þá nauðsynlegt að reyna
að áætla hversu mikið er um brottkast?
Já, þetta er rétt. Ég vil í þessu sam-
bandi benda á að í frumvarpi okkar Sam-
fylkingarmanna um stjórn fiskveiða er lagt
til, að leyft verði að landa fiski utan kvóta
um tveggja ára skeið að sérstökum skil-
yrðum uppfylltum, til að fá það fram með
óyggjandi hætti hvað er að gerast í þessu
efni. ■
Guðjón A. Kristjáns-
son, Frjálslynda
flokknum
Kvótakerfið
hefur minnkað
veiði og stofn-
stærðir botn-
fiskstofna
f Ijósi þess að verulegur samdráttur
hefur verið í veiðum á botnfiski frá því
kvótakerfið var sett á, er þá hægt að segja
að kerfið hafi náð því markmiði að vernda
stofnana?
-NEI. Kvótakerfið hefur þvert á móti
minnkað veiði og stofnstærðir botn-
fiskstofna.
Þegar leiguverð á kvóta er hátt má þá
búast við að meiri hætta sé á að fiski sé
hent fyrir borð?
Það er fullvíst að ofurleiga á óveiddum
fiski veldur miklu brottkasti.
Sé það rétt, er þá nauðsynlegt að reyna
að áætla hversu mikið er um brottkast?
Já, en hingað til hefur ekki verið heimilt
að landa fiskafla utan aflamarks svo með
vissu væri hægt að sannreyna hversu
stórt vandamálið er. ■
Einar K. Guðfínnsson
Sjálfstæðisflokki
Hefur nei-
kvæð áhrif á
byggðirnar
í Ijósi þess að verulegur samdráttur hef-
ur verið í veiðum á botnfiski frá því kvóta-
kerfið var sett á, er þá hægt að segja að
kerfið hafi náð þvi markmiði að vernda
stofnana?
„Nei. Tvennt er hvað gagnrýnisverðast
við kvótakerfið, annars vegar hin nei-
kvæðu áhrif á byggðirnar og hins vegar
að margt bendir til þess að það leiði til
sóknar í fiskistofna þannig að það leiði
ekki til uppbyggingar þeirra. í því sam-
bandi má benda á að kerfið hvetur til
sóknar í þann fisk sem líklegastur er til að
halda uppi öflugustu klaki. Það er sjálf-
sagt ein megin ástæða þess að ekki hefur
gengið duglegar að byggja upp fiskistofn-
ana.“
Þegar leiguverð á kvóta er hátt má þá
búast við að meiri hætta sé á að fiski sé
hent fyrir borð?
„Já, það gefur augaleið."
Sé það rétt, er þá nauðsynlegt að reyna
að áætla hversu mikið er um brottkast?
„Það er brýnt.“ ■
Sjómannablaðið Víkingur
19