Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2002, Síða 10
Veist þú um
reykvískar sjóminjar?
Borgarráð Reykjavíkur hefur sett á
laggirnar nefnd sem ætlað er að kanna
grundvöll fyrir stofnun sjóminjasafns í
Reykjavík. í henni sitja Sigrún Magnús-
dóttir, formaður, Helgi Pétursson og Vil-
hjámur Þ. Vilhjálmsson. Einnig sitja í
nefndinni Guðný Gerður Gunnarsdóttir
borgarminjavörður og Helgi M. Sigurðs-
son fyrir hönd Árbæjarsafns - Minjasafns
Reykjavíkur og Hannes Valdimarsson
hafnarstjóri og Bergur Þorleifsson frá
Reykjavíkurhöfn.
Nefndin óskar nú eftir upplýsingum
frá almenningi um reykviskar sjóminjar
Eirikur Jónsson.
Aðalfundur FSK
Eiríkur Jónsson
kjörinn formaður
Á aðalfundi FSK sem haldinn var á Akranesi
20. apríl siðast liðinn lýsti formaður kjörnefnd-
ar niðurstöðu stjórnarkjörs fyrir starfstímann
2002-2004. Á kjörskrá voru 401 félagi en 151
greiddi atkvæði. Einn listi var í kjöri og varð
hann því sjálfkjörinn.
Atkvæði til formanns féllu þannig að Eiríkur
Jónsson hlaut 50 atkvæði, Magnús Harðarson
32 og Auðunn Fr. Kristinsson 23, en aðrir fengu
færri atkvæði.
Eiríkur Jónsson var því rétt kjörinn formaður
og Magnús Harðarson varaformaður.
af öllu tagi í eigu einstaklinga, félaga,
fyrirtækja og stofnana. Hér er átt við
báta- og skipaútgerð, kaupsiglingar, aðrar
samgöngur á sjó, vita- og hafnarmál, sjó-
björgun, landhelgisgæslu, hafrannsóknir,
hlunnindi og annað sem tengist sjónum
beint eða óbeint, t.d. verslun. Einnig er
verið að leita upplýsinga um bæði muni,
myndir og skjöl.
Þeir sem geta aðstoðað vinsamlega hafi
samband við Helga M. Sigurðsson á Ár-
bæjarsafni 1 síma 577 1111
(hms@abs.rvk.is) eða Berg Þorleifsson
hjá Reykjavíkurhöfn í síma 525 8900
(bergur@rhofn.rvk.is)
Nýr vefur fyrir
sjómenn
Vefurinn sjomadur.is hefur verið
opnaður. Vefnum er ætlað að vera nýtt
sameiningartákn fyrir sjómenn,
Sjómannahringinn. Hringnum er
ætlað að vera sameiginlegt tákn fyrir
sjómenn og undirstrika samstöðu
þeirra allra.
i
10 - Sjómannablaðið Víkingur