Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2002, Page 49
eftir ríkisábyrgð á lánum en þegar þetta er skrifað hefur sú
ákvörðun ekki verið tekin af þarlendum stjórnvöldum. Ætli
þtngið okkar gæti nokkuð gefið þeim pólsku kollegum sínum
t'áðleggingar þar að lútnadi?
Flytja flugvélaskrokka
Það bendir allt til þess nú að innan skamms verði hafin smíði
á sérstæðu flutningaskipi sem sérhannað verður til að flytja
flugvélahluti. Flutningar á hálfsmíðuðum nugvélahlutum hafa
til þessa verið fluttir loftleiðis með flugvélum sem líkjast
skrímslum en nú standa yfir samningar milli Louis Dreyfus og
Leif Hoegh um smíði á skipi sem leigt yrði til Airbus Industri
flugvélaframleiðandans. Skipið á að geta flutt A380 flugvéla-
skrokka ásamt vængjum og stélum frá framleiðslustað að sam-
setningarstað flugvélanna. Þegar hafa 100 A380 vélar verið
Pantaðar en þessar flugvélar eru 555 sæta og helstu keppinautar
júmbóþotanna Boeing 747.
Síðasta höfn
Það var mikið um dýrðir þegar hollenska skemmtiferðaskipið
Rotterdam, sem er í eigu Holland America Lines, kom til hafnar
I New York í lok apríl s.l. Ekki var skipið að koma þangað í
fyrsta sinn en móttökurnar voru í sama dúr og þegar skipið
kom þangað í fyrsta sinn. Slökkvibátar hafnarinnir sigldu á
úndan og eftir skipinu með sjóstróka úr slökkvibyssum sínurn
°g tignarleg var sjónin fyrir bæði áhorfendur og ekki síst skip-
stjórann á skipinu, Jacob W. Dijk. Tilefnið var hann sjálfur, en
hann var að stýra skipi sínu í síðasta sinn til hafnar eftir 40 ára
starf hjá fyrirtækinu og sem skipstjóri í 14 ár, þar af á Rotter-
dam síðan skipið var afhent fyrirtækinu árið 1998. í hans síð-
ústu ferð voru 1200 farþegar með skipinu og nutu dýrðarinnar,
en þegar skipið var komið að bryggju kvaddi skipstjórinn áhöfn
sína. Hans beið bifreið á bryggjunni sem flutti hann til JFK
flugvallar og þaðan flug heim þar sem hann ætlar að njóta ell-
tnnar. Það urðu líka þáttaskil hjá útgerðinni þar sem nú var í
fyrsta sinn í 70 ára sögu fyrirtækisins sem enginn Dijk væri á
launaskrá. Jacob var annar ættliður til að starfa á skipum fé-
lagsins en faðir hans var einnig skipstjóri hjá sömu útgerð. Þrátt
fyrir að Jacob eigi tvo syni vildu þeir ekki feta í fótspor föður
síns og því hefur Dijk að lokum horfið frá Holland America
Line.
Heimsflotinn
Samkvæmt nýjustu tölum frá Lloyd’s register er heimskipa-
flotinn nú 87.239 skip yfir 100 burðargetutonn (DW). Flest
skipanna eru skráð undir fána Panama eða 122 milljónir tonna
en í öðru sæti kemur Liberia sem er nærri því með helmingi
'ninni flota.
Ógnvaldar
Ný málaferli eru nú í uppsiglingu í Bandaríkjunum varðandi
Lxxon Valdez olíuskipið sem strandaði í Prince Williams sundi
°g olli þar miklu umhverfisslysi. Ekki er nú verið að mála-
'ltckjast lengur með slysið sjálft heldur vill útgerðin ekki una
þeint lögum sem sett voru af bandaríkjaþingi í kjölfar slyssins.
L'ngið setti nefnilega lög um að skip sem hefðu einhverja
syndgun gangvart mengunarmálum fái ekki að sigla urn hið
úrnrædda svæði vegna hættu á að þau gætu tekið upp á því aft-
II r að menga og menga þá líklega eitthvað meira. Þessu getur
Lxxon illa unað enda er Exxon Valdez enn í þeirra eigu þótt
það beri nú nafnið S/R Medeiterranean enda ljóst að fyrra nafn
skipsins myndi valda útgerðinni ómældum vandræðum ef skip-
ið hefði siglt áfram undir því nafni um höfin. Exxon ætlar nú
að hefja báráttu fyrir því að geta notað þetta skip áfram á því
svæði sem það var á sínum tíma byggt fyrir en finnst óréttlátt
að fá ekki að nota það þar eftir að skipstjórnendur gerðu mistök
sem olli mesta umhverfisslysi Bandaríkjanna. Þeir menn sem
þá stjórnuðu skipinu eru ekki lengur starfandi hjá fyrirtækinu.
Bílaflutningar
Þeir stóru vilja verða stærri og stærri. Þetta hefur verið að
gerasta í skipaheiminum og nú er einn risinn í viðbót í uppsigl-
ingu. Sænsk-norsk skipafélagið Wallenius Wilhelmsen á og
rekur 60 ekju- og bílaflutningaskip og hefur gert tilboð í yfir-
töku á bílaflutningadeild Hyundai Merchant Marine en það fé-
lag á 70 sérhæfð bílaflutningaskip. Ef af þessari yfirtöku verður
mun Wallenius-Wilhelmsen ráða yfir 30% bílaskipamarkaðarins
og vera þar með stærstir einstakra útgerða í þeirn geiranum.
Stærsta skipafélag heims A.P. Möller (Mærsk Sealand) hefur að
sjálfsögðu ekki látið þessa flutninga fram hjá sér fara og á skipa-
félagið ein tíu bílaflutningaskip sem öll eru á leigu hjá Walleni-
us-Wilhelmsen.
Lúxus á floti
Nú hefur einu glæsilegasta skemmtiferðaskipi heirns tekist að
fá alla pappíra í lag og hafið siglingar um heimshöfin. Skipið
sem hér um ræðir er The World en það sem gerir þetta skip
öðru vísi en önnur skemmtiferðaskip er að þar getur fókl keypt
sér íbúðir. Það fylgir reyndar sú kvöð varðandi íbúðarkaup í
skipinu að viðkomandi skuldbindur sig til að eiga hana i 50 ár.
Þrátt fyrir þetta eru aðeins 20% íbúða enn óseldar og það sem
meira er að þær dýrustu eru allar seldar. Verðið á þeint voru
litlar 6 milljónir dollara. Eftir að útboð í íbúðirnar hófust hefur
verðið á þeirn hækkað um 50% en það hefur síður en svo fælt
kaupendur frá. Fyrir þá sem ekki vilja binda sig í 50 ár um
borð í sama skipi geta þó tekið á leigu “hótel” herbergi fyrir 5
lil 600 dollara sólarhringinn.
Háar kröfur
Eins og hér á undan var getið hefur tekist að fá alla pappíra í
lag fyrir skemmtiferðaskipið World en tniklar deilur komu upp
milli útgerðarinnar, Residensea, og skipasmíðastöðvarinnar
Fosen Mek Verksteder í Noregi varðandi afhendingu skipsins.
Útgerðin gerði þá sjálfsögðu kröfu að allt væri í 100% lagi áður
en þeir tækju við skipinu en skipasmíðastöðin hefur hafnað
kröfum um að skipið hafi ekki verið tilbúið þrátt fyrir að flokk-
unarfélag skipsins hafi neitað að gefa út öryggisskírteini skips-
Sjómannablaöiö Víkingur - 49