Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2002, Page 52
Staðfest framkvæmdaáætlun
í öryggismálum sjófarenda
Samgönguráðherra, Sturla
Böðvarsson, lagði fram á Al-
þingi skýrslu um um fram-
kvæmd langtímaáætlunar í ör-
yggismálum sjófarenda fyrir
árin 2001-2003. Markmið áætl-
unarinnar er að treysta öryggi
íslenskra skipa og áhafna
þeirra, sem og farþega á ís-
lenskum skipum sem sigla í ís-
lenskri efnahagslögsögu. Þetta
verður meðal ananrs gert með
því að skilgreina hlutverk
þeirra sem vinna að öryggis-
málum sjófarenda og að slysum
til sjós fækki um að minnsta
kosti þriðjung fram til ársins
2004.
Siglingastofnun íslands, í samvinnu
við verkefnisstjórn, hefur gert sérstaka
framkvæmdaáætlun um að koma ein-
stökum verkefnum samkvæmt áætlun-
inni i framkvæmd. Með bréfi dags. 21.
desember 2001 óskaði Siglingastofnun
íslands eftir staðfestingu samgönguráð-
herra á þeirri framkvæmdaáætlun og
staðfesti samgönguráðherra hana með
bréfi dags. 19. febrúar 2002. Vegna
þeirra tafa sem urðu við fjármögnun á-
ætlunarinnar fyrir árið 2001 hefur dreg-
ist að setja sum verkefni af stað, en vonir
standa til þess að á þessu ári takist að
vinna upp þá seinkun. Meðfylgjandi er
staðfest framkvæmdaáætlun, sem hefur
að geyma yfirlit um einstök verkefni
áætlunarinnar, markmið þeirra, stöðu
mála, ábyrgð og umsjón, fjármögnun,
tímaramma, forgangsröðun og framvindu
hvers verkefnis miðað við 15. mars 2002.
Verkefni:
1.1 Samræming sjómannamenntunar og
aðlögun að alþjóðasamþykktum
STCW og STCW-F.
1.2 Endurmenntun skipstjórnarmanna.
1.8 Ýmislegt fjarnám verði eflt og notað
í eins miklum mæli og hægt er.
Markmið:
Að nám í íslenskum sjómannaskólum
sé samræmt kröfum alþjóðasamþykkta.
Að nám, þjálfun og endurmenntun skip-
stjórnar- og vélstjórnarmanna sé skipu-
lagt þannig að það skili viðkomandi ein-
staklingi sem mestu, bæði í sjómanns-
starfinu og í mati á náminu/þekkingunni
innan almenna skólakerfisins og til ann-
arra starfa í þjóðfélaginu. Að auka mögu-
leika sjómanna á að afla sér menntunar
samhliða starfi sínu.
Staða mála:
Starfsgreinaráð um sjávarútvegsgreinar
hefur unnið að endurskoðun námsskráa
fyrir skipstjórnar- og vélstjórnarmennt-
un. Vorið 2001 voru sett lög nr. 76/2001,
um áhafnir farþega- og flutningaskipa,
sem grundvallast á STCW samþykktinni,
samþykkt á Alþingi. Þingsályktun um
fullgildingu á STCW-F var þá frestað.
Stýrimannaskólinn, Endurmenntun
vélstjóra, LHS Fossvogi og Slysavarna-
skóli sjómanna hafa í boði ýmis nám-
skeið og endurmenntun fyrir sjómenn og
aðila sem þjónusta þá. Lög nr. 76/2001
gera kröfu um að þeir yfirmenn sem ekki
hafa farið á sjó 1 5 ár fari á endurmennt-
unarnámskeið vegna endurnýjunar at-
vinnuréttinda.
Framboð á fjarnámi í ýmsum skólum
hefur aukist síðustu ár og hafa sjómenn
átt þess kost að stunda þannig nám.
Notkun gervihnattasambands og farsíma
gerir þetta mögulegt fyrir sjómenn sem
eru á sjó en kostnaður við gagnaflutning
er mjög hár við þessar aðstæður. Mikil-
vægt er að sjómenn hafi kost á fjamámi á
sem flestum sviðum og að kostnaði
þeirra við það sé haldið í lágmarki.
Ábyrgð og umsjón með
framkvæmd:
Siglingastofnunar fer með ábyrgð og
umsjón málsins.
Sjómannaskólar hafi yfirumsjón með
öllu skipulögðu námi, þjálfun og endur-
menntun sjómanna, og stuðli að fjarnámi
fyrir sjómenn á sem flestum sviðum.
Samstarfsaðilar:
Menntamálaráðuneyti, Starfsgreinaráð,
sjómannaskólar, samgönguráðuneyti,
hagsmunasamtök sjómanna.
Áætluð fjármögnun:
Vinna að þessum verkefnum sé fjár-
mögnuð af menntamálaráðuneyti og við-
komandi stofnunum.
Langtímaáætlun styrki fjarnám sjó-
manna um:
0,4 millj. árið 2001.
1,0 millj. árið 2003.
Framkvæmd:
Samstarfsaðilar vinni að útfærslu þess-
ara mála og Siglingastofnun íslands komi
virkari að skipulagi sjómannamenntunar.
Námsskrár sjómannaskóla þurfa að
vera endurskoðaðar reglulega m.t.t.
tækniframfara og alþjóðasamþykkta.
Jafnframt skal stuðla að öflugri verklegri
þjálfun og símenntun allra sjómanna.
Áætlanir verði gerðar um fjarnám sér-
staklega ætlað sjómönnum.
Tímasetningar:
Þess er vænst að sjómannamenntun sé
metin og endurskoðuð reglulega í fram-
tíðinni. Jafnframt sé þörf fyrir endur-
menntun metin árlega og að í boði séu
viðeigandi námskeið og þjálfun fyrir sjó-
menn.
Framvinda verkefnis:
Mars 2002:
Lagt hefur verið fram frumvarp um
breytingu á lögum um áhafnir íslenskra
farþegaskipa og flutningaskipa, nr.
76/2001, sem miðar að því að víkka gild-
issvið laganna og láta þau taka til allra
skipa. Með frumvarpinu eru leidd í lög
nauðsynleg ákvæði vegna alþjóðasam-
þykktar um menntun og þjálfun, vakt-
stöður og skírteini sjómanna á fiskiskip-
um, þ.e. STCW-F í frumvarpinu eru
m.a. ákvæði um endurmenntun skip-
stjórnarmanna og vélstjórnarmanna
vegna alþjóðasamþykktarinnar. Sam-
hliða frumvarpinu mun utanríkisráð-
herra leggja fram tillögu tif þingsályktun-
ar um fullgildingu á alþjóðasamþykkt-
inni (STCW-F).
Siglingastofnun er að yfirfara námskrár
sjómannaskóla með tilliti til alþjóðlegra
krafna STCW og hefur lokið þvi vegna
Stýrimannaskólans í Reykjavík og Vél-
skóla íslands.
Siglingastofnun er einnig að yfirfara
námskrár sjómannaskóla vegna endur-
menntunarnámskeiða skv. STCW, sjá
ákvæði 5. gr. laga nr. 76/2001. Stýri-
mannaskólinn, Endurmenntun vélstjóra,
LHS Fossvogi og Slysavarnaskóli sjó-
manna hafa í boði ýmis námskeið og
endurmenntun fyrir sjómenn og aðila
sem þjónusta þá.
Siglingastofnun íslands mun leita eftir
tillögum sjómannaskóla um fjarnám fyrir
sjómenn.
52 - Sjómannablaðið Víkingur