Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2002, Qupperneq 55
að áhættumati og tillögum til úrbóta.
Helstu siglingaleiðir farþegaskipa og far-
þegabáta verði metnar með hliðsjón af
farsviði hvers skips og ákvarðað hvort
þörf sé á að takmarka eða banna siglingu
þeirra á tilteknum svæðum og/eða árs-
ú'mum. Starfshópurinn geri viðbragðsá-
®tlanir vegna mismunandi neyðarað-
stæðna hjá farþegaskipum á siglingaleið-
úm þeirra við landið.
Tímasetningar:
Verkefninu verði lokið á árinu 2003.
Framvinda verkefnis:
Mars 2002:
Slysavarnaskóli sjómanna hefur fengið
viðurkenningu Siglingastofnunar á náms-
skrá fyrir námskeið í “neyðarstjórnun”
og “hópstjórnun” og hafa slík námskeið
þegar verið haldin. Námskeið verða
haldin í þeim mæli að unnt sé að upp-
fylla kröfur laga nr. 76/2001.
Verkefni:
2.3 Úrbótatillögur vinnuhóps fram-
kvæmdar o.fl.
Framvinda verkefnis:
Undirbúningur að áhættumati á sigl-
higaleiðum er hafinn hjá Siglingastofnun.
Verkefni:
2-2 Námskeið í stjórnun farþega á
neyðarstundu.
Markmið:
Þekking og þjálfun áhafna farþega-
skipa og fárþegabáta sé viðhaldið til að
tryggja eins og unnt er öryggi við sigl-
túgu með farþega í islenskum skipum.
Staða mála:
1 lögum nr. 76/2001, um áhafnir ís-
lenskra farþegaskipa og flutningaskipa er
kveðið á um að áhafnir farþegaskipa sæki
úámskeið um farþegaflutninga í skipum
°g stjórnun mannfjölda á neyðarstundu
sem skipulagt sé af sjómannaskóla í sam-
ráði við Siglingastofnun.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd:
Sjómannaskólar skipuleggi námskeið
samkvæmt kröfum laga og reglugerða
úm slíkt nám.
Samstarfsaðilar:
Útgerðir farþegaskipa og Siglingastofn-
ún.
Áaetluð fjármögnun:
Námskeiðahald verði fjármagnað með
þátttakendagjöldum.
Tfamkvæmd:
Áhafnir altra farþegaskipa og farþega-
báta skulu hafa sótt námskeið í stjórnun
útannfjölda á neyðarstundu eigi síðar en
T júní 2002 og síðan verði haldin slík
úámskeið að vori hvers árs fyrir nýja á-
hainarmeðlimi og sem símenntun áhafna
farþegaskipa.
Setja þarf ákvæði í reglugerð um lög-
skráningu að eftir 1. júní 2002 fái rétt-
'údamenn ekki lögskráningu á farþega-
skip nema hafa farið á slíkt námskeið.
Túnasetningar:
Námskeið verði haldin í þeim mæli að
únnt sé að uppfylla kröfur laga nr.
^6/2001.
Markmið:
Að bæta öryggi farþegaskipa og far-
þegabáta með því að koma á og viðhalda
skipulögðu fyrirkomulagi í öryggismál-
um þeirra.
Staða mála:
Vinnuhópur starfsmanna Siglingastofn-
unar og Slysavarnaskóla sjómanna gerði
úttekt á öryggismálum í skipum með
leyfi til farþegaflutnings og kynnti tillög-
ur til úrbóta i byrjun árs 2000, þar sem
staða mála var ekki í nægilega góðum
farvegi. Þörf er á að taka öryggismál far-
þegaskipa föstum tökum.
Ábyrgð og umsjón með
framkvæmd:
Siglingastofnun skipuleggur aðgerðir
sem stuðli að bættu fyrirkomulagi örygg-
ismála farþegaskipa.
Samstarfsaðilar:
Sjómannaskólar, útgerðir farþegaskipa,
LHG, lögregla og lögskráningarstjórar.
Áætluð fjárniögnun:
Langtímaáætlun styrki verkefni um:
0,6 millj. árið 2001.
0,8 millj. árið 2002.
0,8 millj. árið 2003.
Umfram kostnaður greiðist af Siglinga-
stofnun og útgerðum farþegaskipa.
Framkvæmd:
1. Eftirlit Siglingastofnunar með skipum
og búnaði verði aukið, t.d. tvær skoð-
anir á ári
2. Öryggisbúnaður farþegaskipa verði
skoðaður og metinn sérstaklega
3. Áhafnamál séu metin og mönnun
skoðuð m.t.t. ö-yggisþátta
4. Markvisst verði unnið að eflingu
sjálfshjálpar meðal farþega
5. Farþegaskip og farþegabátar vinni
samkvæmt gæðastaðli
6. í farþegaskipum haldi áhafnir æfingar
með farþegum einu sinni eða oftar á
sumri
7. Að öryggisplani sé viðhaldið og neyð-
aráætlun sé stöðugt uppfærð miðað
við áhöfn hverju sinni
8. Að lysandi merkingum við útgöngu-
leiðir sé komið upp og þeim sé við-
haldið
9. í farþegaskipum sé fjórblöðungur um
öryggismál viðkomandi skips.
Tímasetningar:
Atriði 5 verði lögleitt fyrir 2003 og
vinna að öðrum atriðum hefjist í lok árs-
ins 2001.
Framvinda verkefnis:
Mars 2002:
Hluti jtessara verkefna verður framfylgt
samhliða lögum nr. 76/2001, sem fjalla
m.a. um menntun og þjálfun áhafnar, ör-
yggismönnun og vaktstöður á farþega-
skipum. Sett hefur verið reglugerð á
grundvelli þeirra laga um vaktstöður urn
borð í íslenskum farþegaskipum og
flutningaskipum nr. 599/2001 og gerðar
hafa verið kröfur um að allir í áhöfnum
farþegaskipa sæki námskeið um farþega-
ilutninga með skipum og stjórnun
mannfjölda á neyðarstundu, sbr. verkefni
2.2.
í reglugerð nr. 666/2001 eru ítarleg
ákvæði um smíði og búnað farþegaskipa
í innanlandssiglingum sem taka allra
nýrra farþegaskipa og gamalla farþega-
skipa sem eru 24 metrar að lengd og
lengri.
Siglingastofnun mun efla þennan þátt
eftirlits í aðalskoðunum og skipulagi
skyndiskoðana.
Rafvélaverkstæði
Rafvirkjaþjónusta
T Viðgerðir á mótorum
▼ Skipa- og verksmiðjuþjónusta
▼ Sérþekking og reynsla
▼ Heildstæðar lausnir
og valið er einfalt
Vatnagarðar 10 • 104 Reykjavík
S: 570-0000 • Fax: 570-0017 • www.volti.is
Sjómannablaðið Vtkingur - 55