Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2002, Page 62
fyrir á hverju svæði þar sem þær eru
settar upp, t.d. það að límmiðar endast
stutt á vinnusvæðum í skipum.
Tímasetningar:
Verkefnum ljúki á árinu 2003.
Framvinda verkefnis:
Mars 2001:
Gerð hefur verið tillaga að leiðbeining-
um, viðvörunarspjöldum og merkingum
sem þyrftu að vera til.
Verkefni:
5.1 Slysa- og óhappaskráning 1 skip-
um.
5.2 Sérstakt eyðublað í skip fyrir at-
hugasemdir um öryggismál sjófar-
enda.
5.5 S kráningarkerfi fyrir “næstum því
slys og óhöpp”
Markmið:
Að auka þekkingu á orsökum slysa og
óhappa í íslenskum skipum og stuðla að
bættri vitneskju um ástand öryggismála
sjófarenda hverju sinni þannig að unnt
sé að vinna markvisst að úrbótum.
Staða mála:
Slysaskráningu hefur verið ábótavant
og hingað til hafa upplýsingar um slys og
orsakir þeirra ekki verið nægilega að-
gengilegar þannig að óljóst hefur verið
hvernig skuli standa að úrbótum i örygg-
ismálum sjófarenda hér við land. Áhafnir
mættu standa betur að skráningu slysa-
og óhappa í eigin skipum þannig að út-
gerðum gefist kostur á að bæta úr þeim
atriðum sem aflaga hafa farið. Ábending-
ar sjófarenda um atriði sem þarfnast lag-
færingar hafa ekki fengið formlega með-
höndlun hjá opinberum aðilum og því
oft “týnst í kerfinu”. Nauðsynlegt er að
bæta úr þessum atriðum og stuðla að
meiri upplýsingasöfnun um þessi mál.
Virkja ber sjófarendur í að benda á það
sem betur má fara víðs vegar við landið.
Ábyrgð og umsjón með
framkvæmd:
Rannsóknarnefnd sjóslysa hafi for-
göngu um að fyrirkomulag slysa- og
óhappaskráningar sé skilgreint.
Siglingastofnun skilgreini fyrirkomulag
vegna athugasemda um öryggismál sjó-
farenda.
Samstarfsaðilar:
Siglingastofnun, rannsóknarnefnd sjó-
slysa, Tryggingastofnun, landlæknisemb-
ættið, Slysaskrá íslands, tryggingafélög,
útgerðir og stéttarfélög sjómanna.
Áætluð fjármögnun:
Verkefnið verði kostað af fjárveitingum
rannsóknarnefndar sjóslysa.
Framkvæmd:
Komið verði upp gagnagrunni þar sem
unnt verði að skrá öll slys og óhöpp sem
verða á íslenskum skipum og þegar þörf
er á verði upplýsingum miðlað aftur til
útgerða og áhafna skipa, s.s. þegar alvar-
leg slys eða mörg sambærileg hafa orðið.
Samhliða verði sendar út tillögur að úr-
bótum ef unnt er.
Fyrirkomulag vegna ábendinga sjófar-
enda um atriði sem bæta þarf úr verði
skipulagt, skráningu athugasemda verði
komið á og meðhöndlun upplýsinga
verði með formlegum hætti.
Stuðlað verði að því að slysa- og ó-
happaskráning sé tekin upp í öllum skip-
um, úrbætur séu gerðar af áhöfnum og
útgerðum og að upplýsingum sé miðlað
til annarra sambærilegra skipa.
Leggja þarf áherslu á að slys og óhöpp
séu skráð í skipsbækur.
Tímasetningar:
Fyrirkomulag skráninga verði ákvarð-
að 2002 og unnið verði skv. skipulagi eft-
ir að það liggur fyrir.
Framvinda verkefnis:
Mars 2002:
Rannsóknarnefnd sjóslysa vinnur að
gerð eyðublaðs fyrir slysa- og óhappa-
skráningu i skipum sem skal útfylla og
senda til nefndarinnar þegar slys eða at-
vik verða.
Verkefni:
5.3 Endurnýjuð sjókort séu gefin út og
þau séu aðgengileg sem víðast.
5.4 Ákvörðun þarf að taka um sigl-
ingaleiðir olíuskipa.
Markmið:
Að treysta öryggi skipa sem sigla í ís-
lenskri efnahagslögsögu. Að minnka lík-
ur á mengunarslysum við strendur ís-
lands.
Staða mála:
í nýjum mælingum hafa verulegar
skekkjur komið fram í sumum sjókort-
um sem gerð voru eftir gömlum hand-
lóðsmælingum. Mikilvægt er að siglinga-
leiðir við landið séu kortlagðar og úrelt
kort séu endurnýjuð og gefin út.
Nefnd sem skipuð var til að móta regl-
ur um tilkynningarskyldu og afmörkun
siglingaleiða olíuskipa og annarra skipa
sem sigla með hættulegan varning inn í
íslenska efnahagslögsögu skilaði skýrslu í
byrjun árs 2001. Mikilvægt er að ákvarð-
anir séu teknar um siglingaleiðir olíu-
skipa þannig að öryggi þeirra sé tryggt á
siglingu við landið og komið sé í veg fyr-
ir mengunarslys.
Ábyrgð og umsjón með
framkvæmd:
Landhelgisgæsla og Siglingastofnun
geri áætlun um mælingar og útgáfu sjó-
og hafnakorta
Hollustuvernd ríkisins hafi frumkvæði
að áhættugreiningu vegna siglinga skipa
er flytja hættulegan farm.
Samstarfsaðilar:
Siglingastofnun, Landhelgisgæsla, Sjó-
mælingar, Hollustuvernd ríkisins, kaup-
skipaútgerðir, samgönguráðuneyti, um-
hverfisráðuneyti
Áætluð fjármögnun:
Langtímaáætlun styrki þessi verkefni
um 0,6 m.kr. árið 2002 og 0,8 m.kr. árið
2003.
Framkvæmd:
Verkefni verði skipulögð af ábyrgðar-
/umsjónaraðilum og viðkomandi sam-
starfsaðilum. Kostnaður vegna fram-
kvæmda verði kynntur fyrir ráðuneytum
sem gætu óskað fjármagns í næstu fjár-
lagafrumvörpum.
Tímasetningar:
Verkefni verði skipulögð árið 2002 og
síðan unnin samkvæmt gerðu skipulagi.
Framvinda verkefnis:
Mars 2002:
Unnið er að frumvarpi um öryggi sigl-
inga og öryggisþjónustu við skip. Um-
hverfisráðherra hefur lagt fram frumvarp
til laga um verndun hafs og stranda.
Siglingastofnun íslands á tiltæk kort
með dýptarmælingum við hafnir vegna
framkvæmda við þær. Unnið er að því að
setja þessi kort á netið.
Undirbúningur að áhættumati á sigl-
ingaleiðum er hafinn hjá Siglingastofnun.
Verkefni:
5.6 Aðgengi skipverja að upplýsingum
um ástand skips.
5.7 Sérstök heimasíða um öryggismál
sjómanna.
5.8 Upplýsingum dreift á netinu, með
WAP-tækni og textavarpi
Markmið:
Að allt aðgengi sjómanna að nauðsyn-
legum upplýsingum sem tengjast öryggi
þeirra á sjó sé aukið.
Staða mála:
Upplýsingar um ástand skipa, stöðug-
leika, athugasemdir skoðunarmanna,
réttindamál áhafna o.s.frv. hafa ekki ver-
ið sérlega aðgengilegar fyrir áhafnir við-
komandi skipa. Nauðsynlegt er að þessar
upplýsingar verði mun aðgengilegri en
nú er fyrir útgerðir, áhafnir og eftirlitsað-
ila, og jafnvel ætti að vera hægt að skoða
þær á netinu.
Upplýsingar um öryggismál sjómanna
almennt þyrftu að vera aðgengilegar á
62 - Sjómannablaðið Víkingur