Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2002, Qupperneq 65
13.5 Reglubundnar athuganir á æfinga-
haldi og starfsþjálfun í skipum.
13.6 Reglum um öryggisráðstafanir við
hífingar sé betur fylgt eflir
13.7 Skilvirkara eftirlit með aðbúnaði í
skipum
Markmið:
Að stuðla að því að samstarf eftirlitsað-
ila sé eflt þannig að skilvirkni og hag-
kvæmni í eftirliti aukist og að meiri
áhersla verði lögð á eftirfylgni með að
lög og reglur séu virt.
Staða mála:
Eftirlit um borð í skipum er á höndum
margra aðila, SÍ, LHG, flokkunarfélaga,
Póst- og fjarskipta-stofnunar, Holluslu-
''erndar, Fiskistofu og einkaaðila. Mikil-
vægt er að allt eftirlit sé metið með tilliti
hl möguleika á aukinni samvinnu eftir-
htsaðila þannig að hagkvæmni eftirlits og
bjónusta við útgerðir skipa verði bætt.
Eftirlit með öryggisatriðum þarf að bæta
°g fylgja þarf betur eftir að ástand skipa,
húnaðar og áhafna sé samkvæmt lögum
°g reglum.
Abyrgð og umsjón með
framkvæmd:
Siglingastofnun skipuleggi aðgerðir er
stuðla að bættu eftirliti og virðingu fyrir
lögum og reglugerðum.
hamstarfsaðilar:
Sí, LHG, flokkunarfélög, Póst- og fjar-
skiptastofnun, Hollustuvernd, Fiskistofa,
^innueftirlit
Aætluð íjármögnun:
Verkefni verði kostuð af eftirlitsaðilum
en langtímaáætlun styrki þau um:
0,3 millj. árið 2001.
0,5 millj. árið 2003.
bfamkvæmd:
Siglingastofnun hafi forgöngu um að
eftirlitsaðilar geri samkomulag um sam-
starf sem stuðli að aukinni skilvirkni og
hagkvæmni í eftirliti með búnaði og á-
höfnum skipa. Samstarfsaðilar skipu-
leggi fyrirkomulag eftirlits og skyndi-
skoðana í skipum og við þá vinnu sé
stuðst við ábendingar í þingsályktunartil-
l()gu um langtímaáætlun í öryggismálum
sjófarenda og ábendingar rannsóknar-
öefndar sjóslysa. Dæmi um atriði sem
fylgja þarf eftir:
Æfingahald og starfsþjálfun í skipum
sé samkvæmt reglum.
Oryggisráðstafanir við hífingar séu í
samræmi við reglur.
Aðbúnaður áhafna sé samkvæmt kröf-
uni, s.s. loftræsting, hávaði, titringur.
Skráning í skipsbækur sé samkvæmt
lögum.
Hleðslumerki séu á öllum fiskiskipum
með mestu lengd allt að 15 metrum.
- Unnið sé samkvæmt þeim reglum sem
gilda um vinnuöryggi almennt unt
borð í skipum.
- Frágangur stiga i lesturn og landganga
sé samkvæmt reglum.
- Öryggisatriði í höfnum séu samkvæmt
reglum.
- Sigling, sjóbúnaður og viðhald skipa
sé samkvæmt reglum þar að lútandi.
Tímasetningar:
Vinna að þessum atriðum hefjist í byrj-
un árs 2002 og verði viðhaldið á kom-
andi árum. Samkomulag um samstarf eft-
irlitsaðila liggi fyrir í lok ársins 2002.
Framvinda verkefnis:
Mars 2002:
Gert er ráð fyrir að með notkun gæða-
stjórnunarkerfis Siglingastofnunar við
eftirlit með skipum verði bætt úr flestum
þessara atriða.
Yerkefni:
14.1 Auka þarf og festa í sessi samstarf
íslendinga og nágrannaþjóða í
rannsóknar- og þróunarverkefnum
sem tengjast öryggismálum sjó-
manna.
14.2 Upplýsingum urn ýmsar rannsókn-
ir sem verið er að vinna að eða
hafa verið gerðar ætti að safna
saman á einn stað þannig að aðilar
viti hver af öðrum.
14.4 Rannsóknir á stjórnun stöðugleika
fiskiskipa
Markmið:
Að efla rannsóknir, þróun og hönnun á
ráðstöfunum er aukið gætu öryggi sjó-
manna og stuðla að samstarfi sem víðast
á þeint vettvangi. Að sluðla að því að
upplýsingum um rannsóknir sé miðlað
milli rannsóknaraðila til að efla samstarf
og koma í veg fyrir tviverknað.
Staða mála:
Oft koma upp hugmyndir að lausnum
er gætu stuðlað að auknu öryggi sjó-
manna, en oft vilja þær falla í dvala
vegna tíma- eða fjárskorts. Einnig hafa
verið unnar rnargar rannsóknir er tengj-
ast öryggismálum sjómanna víða um
heim, en talsvert vantar að upplýsingar
um þessar rannsóknir séu aðgengilegar
þannig að hætta ei á að verið sé að end-
urtaka sömu hlutina margoft. Með því að
safna saman og miðla upplýsingum um
rannsóknir ásamt því að styrkja þær fjár-
hagslega er hægt að efla rannsóknarstarf
til muna.
Siglingastofnun hefur unnið að rann-
sóknum á hreyfistöðugleika skipa í sam-
vinnu við innlendar verkfræðistofur og
erlenda aðila. Ágætt væri að þessir aðilar
haldi áfram með rannsóknirnar.
Ábyrgð og umsjón með
framkvæmd:
Siglingastofnun meti lillögur að sam-
starfsverkefnum og fjármagni vænleg
verkefni.
Samstarfsaðilar:
Allir sem að öryggismálum sjófarenda
koma
Áætluð fjármögnun:
Langtímaáætlun ráðstafi fé til upplýs-
ingasöfnunar og samstarfsverkefna:
0,9 millj. árið 2002.
1,4 rnillj. árið 2003.
Framkvæmd:
Siglingastofnun meti tillögur að sam-
starfsverkefnum í rannsóknum, þróuri og
hönnun og samþykki styrkveitingu til
vænlegra verkefna. Auglýsa mætti þenn-
an styrk til að hvetja hugvitsmenn að
koma með tillögur að úrlausnum í ör-
yggismálum sjómanna. Dæmi um verk-
efni:
- Stöðugleikagögn fyrir smábáta
- Vaktafyrirkomulag í skipum
- Öryggisbúnaður við línuveiðar smábáta
- Öryggi vegna vinnu við toghlera og á
togþilförum.
- Landgangar fyrir minni tvíþilja fiski-
skip
- Fjarlækningabúnaður og lækninga-
tæki
Upplýsingum um rannsóknar- og þró-
unarverkefni sem varða öryggismál sjó-
ntanna verði safnað saman á heimasíðu
Siglingastofnunar. Auglýsa þarf þessa
söfnun sem víðast.
Tímasetningar:
Ákvörðun um ráðstöfun fjár til verk-
efna skal liggja fyrir á fyrri hluta ársins
2002.
Framvinda verkefnis:
Mars 2002:
Borist hafa eftirfarandi erindi varðandi
rannsóknarverkefni:
1. Rannsókn á svefni, svefnmynstri og
heilsu sjómanna.
2. Undirbúningur að verkefni um á-
hættu- og nertigreiningu.
3. Stöðugleikaforrit fyrir skip og báta.
Verkefni:
14.3 Nauðsynlegt er að gerðar séu
reglulega kannanir, úttektir og
prófanir á ástandi og fyrirkomu-
lagi öryggisbúnaðar í skipum og í
höfnum.
Markmið:
Að stuðla að þvi að fyrirkomulag og
ástand öryggisbúnaðar sé eins gott og
mögulegt er hverju sinni.
Staða mála:
Sjómannablaðið Víkingur - 65