Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2002, Blaðsíða 66
Mörg atriði varðandi staðsetningu og
frágang björgunar- og öryggisbúnaðar í
skipum og í höfnum þarfnast skoðunar.
Nauðsynlegt er að gera reglulega kannan-
ir, úttektir og prófanir á ástandi og fyrir-
komulagi öryggisbúnaðar og kynna fyrir
málsaðilum niðurstöður og úrbótatillögur.
Ábyrgð og umsjón með
framkvæmd:
Siglingastofnun hafi forgöngu um að
kannanir, úttektir og prófanir fari fram.
Samstarfsaðilar:
Allir sem að öryggismálum sjófarenda
koma.
Áætluð fjármögnun:
Langtímaáætlun styrki þetta verkefni
um:
0,5 millj. árið 2002 (af fjárfr. 2001)
1,0 millj. árið 2003.
Framkvæmd:
Setja þarf ákvæði í reglum þannig að
hægt sé að standa vel að öllum könnun-
um, úttektum og prófunum, ásamt
ákvæðum ef þörf er á að krefjast breyt-
inga á fyrirkomulagi öryggisbúnaðar.
Dæmi um atriði sem þarfnast skoðunar:
- Staðsetning björgunarbáta með losun-
ar- og sjósetningarbúnaði.
- Frágangur gúmmíbjörgunarbáta í
skipum.
- Staðsetning neyðarhandtalstöðva.
- Stærðir og gerð björgunarbúninga sem
valdir eru í einstök skip.
- Staðsetning björgunarvesta og björg-
unarbúninga
- Gerð, staðsetning, uppfærsla og kynn-
ing neyðaráætlana og öryggisplana.
- Fyrirkomulag neyðarútganga í skip-
um.
- Staðsetning og fyrirkomulag hand-
slökkvitækja í skipum
- Stöðugleiki opinna báta.
- Hálkuvarnir í skipum og á bryggjum
og skóbúnaður sjómanna.
- Vinnuaðstæður við toghlera, í renn-
um, við frystitæki og í lestum.
- Aðstæður við landgöngu úr skipum.
- Öryggisbúnaður og aðstæður almennt
í höfnum.
Tímasetningar:
Verkefni verði unnin eftir því sem fjár-
hagur leyfir árin 2002 og 2003.
66 - Sjómannablaðið Víkingur