Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2002, Síða 70
Þjónustusíður
Vaki-DNG framleiðir efíirsóttar vörurfyrir sjávarútveg og fiskeldi
Mikil og vaxandi sala
innanlands og utan
Hið nýja húsnœði Vaka-DNG við Akralind í Kópavogi
Fyrirtækið Vaki-DNG hefur flutt í nýtt
600 m2 húsnæði í Akralind 4, Kópavogi.
Árið 1999 voru Vaki og DNG-Sjóvélar
sameinuð. Við samrunann varð til öflugt
fjölþætt fyrirtæki í framleiðslu á vörum
fyrir sjávarútveg og fiskeldi.
Félagið hefur tekið á leigu nýtt hús-
næði að Akralind 4 i Kópavogi og er
starfsemin þegar flutt í hið nýja húsnæði.
Stefnan er að auka enn við þróun á nýj-
um vörum til þess að leggja grunninn að
áframhaldandi vexti félagsins.
Rekstrartekjur samstæðu Vaka DNG
og dótturfélags fyrir árið 2001 námu alls
439 milljónum króna sem er 20% aukn-
ing frá árinu 2000. Sölutekjur móðurfé-
lagsins jukust hins vegar um 28,6% milli
ára. Áætlanir ársins gera ráð fyrir ríflega
500 milljóna króna veltu hjá samtsæð-
unni sem er 14% aukning frá árinu 2001
og að reksturinn skili hagnaði.
Horfur eru góðar í rekstri Vaka DNG.
Fiskeldismarkaðir eru á uppleið og nýjar
vörur fyrir fiskeldið sem byggjast á
tölvusjón seljast vel sem og eldri vörur.
Um þessar mundir er Vaki að stofna
dótturfélag í Chile til að fylgja eftir sölu
á þessum nýju vörum fyrir fiskeldið þar.
Framleiðsla á eldislaxi í Chile á síðasta
ári var um 500 þúsund tonn. Horfur í
rekstri dótturfélagsins í Noregi, sem selur
einkum vörur Vaka DNG fyrir fiskeldið,
eru mun betri en áður. Salan á yfirstand-
andi ári hefur farið mjög vel af stað.
Sala á tæknibúnaði til fiskveiða hefur
einnig farið vel af stað á árinu, einkum
tölvustýrðar handfæravindur sem unnið
hefur verið að kynningu á víðar en áður.
Töluverðar vonir eru bundnar við sölu á
TrawlTec kerfi sem er búnaður sem mæl-
ir átak og lengd togvíra og sýnir allar
upplýsingar í grafískri skjámynd. Helstu
markhópar fyrir þetta kerfi eru eldri skip
sem ekki eru búin svokölluðum “auto -
trawl” kerfum. Tæplega 100 kerfi eru
þegar í notkun víða um heim. Helstu
markaðir auk íslands eru Rússland,
Namibia bg S-Ameríka. Þá hefur sala á
aflanemum frá Vaka gengið vel og sjá
menn stöðuga aukningu á sölu bæði inn-
anlands og erlendis.
Auk sölu á línuspilum og uppstokkur-
um fyrir línuveiðiskip hefur Vaki-DNG
einnig framleitt og selt svokölluð LineTec
kerfi. Þessi búnaður gerir skipstjórnar-
manni kleift að fylgjast með og stjórna
hraða línuspils og jafnframt að fylgjast
með átaki á línuna. Kerfið er þegar i
notkun i flest öllum íslenskum línuskip-
um sem útbúin eru með sjálfvirkum beit-
ingarvélum og uppstokkurum. Við þetta
kerfi er einnig hægt að tengja svokallað-
an “beitu-vaka”, skynjara sem fylgist
með beitingunni og gefur upplýsingar
um beitingarhlutfall og hraða og fiskitelj'
ara sem telur fjölda fiska sem koma frá
afslítaranum.
Vænst er að uppbygging umboðs-
mannakerfis undanfarinna ára fyrir fisk-
veiðabúnaðinn, komi til með að skila sér
á árinu.
Fyrirtækið áætlar að taka þátt í um 10
sýningum vítt og breytt um heiminn
bæði sjávarútvegs- og fiskeldissýningum-
Ein stærsta sýningin verður íslenska
Sjávarútvegssýningin sem fram fer í
Kópavogi i byrjun september n.k.
Sýningarbáf nr Scannars
fer Ítrin^fer^ t»m landíd íjúní
th SCANMAR
* / jJ { .
v ,
mm
A
. iW!
Viö hvetjum skipstjórnar-
og útgeröarmenn
að koma um borö
og kynna sér nýju
Scanbas tæknina.
Scanmaróskar
sjómönnum til
hamingju meö
daginn.
70 - Sjómannablaðið Víkingur