Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2004, Side 8
Eyleifur ísaksson skipstjóri frá Lögbergi á Akranesi
Örlagavaldur í þróun
elsta sjávarplássíns
- Sagan sögð af öðrum sjónarhóli -
Eftir Einar Örn Einarsson
Oft veltir lítil þúfa þungu
hlassi, og víst er að hin ritaða
saga er á tíðum eins og endur-
ómur raunveruleikans. Við sem
fáum að lifa og uppfylla tugi ár-
anna, eftir að við komumst til
vits, og förum að fylgja eftir
kennileitum viðburðanna , jafnt
stórra sem smárra, á sigling-
unni í gegn um lífið, getum
sannarlega borið þess vitni, að
eitt er hin opinbera frásaga 1
prentuðum heimildum, og ann-
að er nákvæm og ítarleg útlist-
un á því sem í raun gerðist.
Nærtækt er dæmið um kristni-
hátíð á Þingvöllum árið 2000.
Þjóðkirkjan segir tugum þús-
undum fleiri gesti hafa sótt há-
tíðina en lögreglan vill meina í
sínum tölum. í frásögnum
framtíðar verður notast við
aðra hvora töluna , og víst er að
sitt mun hverjum sýnast, og
hver var hin raunverulega tala
hátíðargesta?
Eins má nefna sögur af atburðarrás í
framvindu stórra hluta, hvort sem er um
að ræða frásagnir af hrakförum, þróun
byggðarlaga, eða sögu fyrirtækja og
stofnana. Víst er að margar stofnanir hafa
nú á tíðum greinargóðar upplýsingar til-
tækar, hvað varðar starfsmannahald , árs-
skýrslur og ársreikninga. En hinar beinu
frásagnir og röð atvika sem á endanum
reynast örlagavaldar hafa ætíð mótast af
þeim sjónarhóli sem fólk hafði og margar
frásagnir fólks af sama atburðinum geta
reynst gjörólíkar þegar farið er að rýna í
þær. Víst er að hver litar sína frásögn
þeim litum sem tengjast uppruna og ætt
sinni , sem og að mannlegt er að gera
meira úr eigin þætti í framvindunni,
hversu lítilfjörlegur hann er , heldur en
dýrkeyptum hetjudáðum hinna , eins og
að reyna að draga úr hetjuskap hinna
sönnu hetja, og um leið hífa eigin lítil-
fjörleik upp úr láginni.Ekki má gleyma
því stóra hlutverki sem fjölmiðlar hafa
nú á dögum. Þrátt fyrir tækniframfarir og
betri boðleiðir, má enn lesa misvísandi
skilaboð úr fréttaflutningi, þegar bornar
eru saman frásagnir nokkurra fjölmiðla.
Þarna leynast skýringar á því að lítið
hefur verið hampað þætti afa míns Ey-
leifs ísakssonar skipstjóra, á Lögbergi á
Akranesi, í þróun Akraness sem samfé-
lags á fyrrihluta aldarinnar sem leið og
eins í sögu útgerðarfyrirtækisins Harald-
ar Böðvarssonar og co. h/f. Víst er að fyr-
irtækið hefði átt glæsta sögu eftir sem
áður, en þróun Akraness hefði orðið
öðruvísi og sennilega minna samofin
sögu HB og co. en raun ber vitni.
Hver var Eyleifur ísaksson?
Eyleifur ísaksson var fæddur á Háteigi
á Akranesi 27. september 1892. Faðir
hans var ísak Jónsson fæddur i Garða-
sókn 18. september 1844, látinn 11. des-
ember 1910 og móðir hans var Oddný
Jóhannesdóttir fædd í Garðasókn á Akra-
nesi, Borg. 7. apríl 1851 látin 2. júní
1938. Hann var eina barn þeirra sem
þau áttu saman , systkini hans sam-
mæðra voru;
Margrét Eyleifsdóttir 1874 - 1874, Jó-
hannes Eyleifsson 1875 - 1876, Jóhanna
Sigríður Eyleifsdóttir 1877 - 1877, Jó-
hanna Sigríður Eyleifsdóttir 1878, Jón
Valdimar Eyleifsson 1880 - 1968, Krist-
mann Eyleifsson 1881 - 1967, Ásgrímur
Eyleifsson 1884 - 1884, Ásgrímur Ey-
leifsson 1885 - 1965, Guðrún Eyleifs-
dóttir 1887, Marsibil Eyleifsdóttir 1891 -
1968.
Einar Örn Einarsson.
Systir hans samfeðra var Margrét ís-
aksdóttir 1878 - 1948. Eyleifur var lát-
inn heita eftir fyrrverandi eiginmanni
móður sinnar. Hann ólst upp með móður
sinni og fylgdi henni fyrstu árin í vistum,
en var snemma látinn fara að vinna fyrir
sér, eða strax um fermingaraldur.
Hann fór til sjós og þótti strax mikið
formannsefni, var glöggur til veðurs og
strauma, las vel í lífríkið og var fljótur að
glöggva sig á breytingum í nátlúrunni.
Hann var að sönnu einn þeirra sem
höfðu sjómennskuna í blóðinu og þessa
mikilvægu tengingu við náttúrúöflin sem
gera menn að góðum fiskimönnum og
siglurum. Til að koma opnutn báturn
heilum heim á erfiðum hafsvæðum, þarf
til jafnt áræðni sem varúð og það að geta
áttað sig á sjólagi, straumum og sjávar-
föllum, og samspili þess alls með vindi
og loftþrýstingi.
Skáldið Refur bóndi (Bragi Gunnlaugs-
son) frá Snæfellsnesi, lengi vel búsettur á
Akranesi orti urn Eyleif síðar.
Allir horfðu undrandi,
á því höfðu gætur,
þegar Leifi á Lögbergi
lék við Ægisdætur.
Víst er það að Eyleifur lék við Ægis-
8 - Sjómannablaðið Víkingur