Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2004, Blaðsíða 16
Ströndin var mér
góður skóli
Sœmundur
Guðvinsson rœðir
við Halldór V.
Guðmundsson
skipstjóra á
Dettifossi um
farmennskuna og
ferilinn til sjós
Halldór V. Guðmundsson er
búinn að stíga ölduna í um eða
yfir 40 ár og nær allan þann
tíma hefur hann siglt hjá Eim-
skip. Hann hefur verið skip-
stjóri hjá félaginu í meira en
aldarfjórðung og er nú skip-
stjóri á Dettifossi. Það er
stærsta skip Eimskips ásamt
Goðafossi, sem er systurskip,
en þau eru 14.664 BT. Þetta er
fimmta skip Eimskips með
heitinu Dettifoss. Sjómanna-
blaðið Víkingur spjallaði við
Halldór vítt og breytt um far-
mennskuna og þar bar margt á
góma. Sitthvað úr því spjalli fer
hér á eftir.
Halidór er fæddur og uppalinn á ísa-
firði og segir að það hafi bara um tvennt
að velja; að fara á sjóinn eða í frystihús-
ið. En hann hafi alltaf ætlaði á sjóinn,
enda á hann ættir að rekja til sjómanna
bæði í föður- og móðurætt og þetta lá því
beint við.
- Fyrsta launaða starfið á sjó var þegar
ég fór sem hálfdrættingur á togarann Pét-
ur Halldórsson, þá 14 eða 15 ára gamall.
Ég er gagnfræðingur úr sjóvinnudeild
Lindargötuskóla í Reykjavík og við fór-
um flestir á togara milli þriðja og fjórða
bekkjar. Svo þegar ég kláraði 4. bekk
langaði mig til að prófa farmennskuna
jafnframt því sem ég stefndi á Stýri-
mannaskólann. Til að fá inngöngu í skól-
ann og síðan réttindi þurfti siglingatíma.
Mér tókst að fá starf sem viðvaningur hjá
Eimskip og var í hópi þeirra sem sóttu
Reykjafoss lil Danmerkur 1965. Pað þótti
upphefð að sækja nýtt skip og strákarnir
fóru að spyrja hver væri pabbi minn.
Voru sannfærðir um að ég væri sonur
einhvers stórkalls hjá félaginu, en ég
þekkti engan þar á bæ. En yfirleitt var
það svo að þeir sem fóru að sækja nýtt
skip voru synir einhverra manna sem
áttu eitthvað undir sér og síðan fóru þeir
bara af þegar skipið var komið heim. Ég
fór svo yfir á Skógafoss, systurskip
Halldór í siglingu með son sinn og alnajna semfœr að skarta húfunni.
16 - Sjómannablaðið Víkingur