Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2004, Blaðsíða 24
Hilmar Snorrason skipstjóri
ur
heimi
Fuglaflensan
Sjúkdómurinn sem upp kom í hænsníúglum í Asíu og kölluð
var fuglaílensa skók heimsbyggðina um stund. Svo var einnig um
flutningaheiminn því þá opnuðust augu manna fyrir því hversu
stór flutningamarkað hér var um að ræða. Árið 2002 voru 9,6
milljón tonn af hænsnfuglum fluttir sjóleiðis en frá Hong Kong
voru 602 þúsund tonn flutt út en næst kom Klna með 565 þús-
und tonn og í þriðja sætið var Thailand með 552 þúsund tonn.
Fyrstu 11 mánuði ársins 2003 voru aðeins flutt 136 þúsund tonn
frá Thailandi til Evrópu eða sem svarar 1800 gámaeiningum mán-
aðarlega. Innflutningsbönn á fiðurfé frá Asíu hefur því haft veru-
leg áhrif á frystiflutninga og var meðal annars 1000 gámum neitað
um landvist í Evrópu og sendir heim aftur.
Sjórán
Á síðasta ári voru 445 sjórán tilkynnt en það er veruleg aukn-
ing frá því árinu á undan. Þá voru 320 sjórán tilkynnt en jafn-
framt varð aukning á manndrápum úr 10 í 21. Þrátt fyrir ýmiss
úrræði og meira eftirlit á þeim hafsvæðum sem flest sjórán eru
framin verður aukning á þeim.
Tími gámaskípa í höfn verður stöðugt styttri því umskipun tekur æ
skemmri tíma.
Gámamet
Nýtt heimsmet var sett nýlega í höfninni í Tanjung Pelepas í
losun og lestun á gámaskipi. í umskipun á gámum fóru um
gámaskipið A.P Moller 340 gámar á klukkutíma sem eru fjórum
gámum meira en fyrra met frá árinu 2001. Samtals vora 4316
gámaeiningar í þessari umskipun. Með þessum hraða tæki það
rétt rúma átta tíma að losa og lesta fullfermi af gámum í stærsta
gámaskip Eimskipa, Goðafoss.
Stærsta skip heims
Nú fer ferðum Jahre Viking um heimshöfin að fækka en þetta
heimsins stærsta skip sem mælist 564 þúsund tonn að stærð mun
brátt verða breytt. Skipið var upphaflega smíðað árið 1976 en var
lengt 1980 sem gerði það að stærsta skipi sem nokkra sinni hefur
siglt um heimshöfin. Skipið var þá orðið 458 metra langt og
hafði þá nafnið Seawise Giant. Ljóst var orðið að lítið annað beið
skipsins en niðurrif innan tveggja ára sökum hertra alþjóðlegra
reglna um olíuflutningaskip. Pess í stað hefur tekist að gera
þriggja til fimm ára samning við Maersk Oil Quatar, sem tekur
gildi í júlí n.k., um að nota skipið sem fljótandi oliugeymslu.
Jahre Viking er í norskri eigu.
Meira um stór skip
Það mátti ekki miklu muna fyrir skömmu þegar risaolíuskip
fékk ónýta brennsluolíu um borð í skipið í höfn í Persaflóa. Það
var ekki fyrr en skipið var komið í Suður-Kínahaf að þessi olía
hafði þau áhrif að allar vélar skipsins hrandu sökum olíunnar.
Skipið varð því rekald eftir en hefði þessi atburður átt sér stað
tveimur dögum áður þá hefði að líkindum orðið stórkostlegt ol-
íuslys þar sem skipið var þá að sigla um Malakkasund.
Passar fyrir sjómenn
Alþjóðavinnumálastofnunin ILO hefur nú hafið hönnun og
gerð sérstakra auðkennisskírteina fyrir alla heimsins sjófarendur.
Talið er að gera þurfi 1,2 milljónir korta í þessum tilgangi og er
þeim ætlað að auðvelda sjófarendum lífið í stöðugt strangara eft-
irliti í höfnum og þar á meðal að auðvelda þeim möguleika á
landgönguleyfi í Bandaríkjunum. Bandaríkjamenn hafa sérstak-
lega verið gagnrýndir fyrir að gera sjófarendum erfitt um vik að
komast í land.
Hann átti ekki að sleppa
Spáni hefur nú verið stefnt fyrir Mannréttindadómstólnum í
Strasbourg vegna fangelsunar og kyrrsetningar 69 ára gamla skip-
stjórans af olíuflutningaskipinu Prestige sem brotnaði í sundur og
sökk undan norður Spáni. Spönsk yfirvöld settu kröfu um 266
milljóna ísl. króna tryggingu fyrir kallinn sem síðan enginn vildi
borga. Er Spánverjum stefnt sökum þeirra kröfu sem er einhver
sú mesta trygging sem krafist hefur verið í þessum geira.
Siglingavernd
Nú fer brátt að hellast yfir heimsskipaflotann alþjóðakröfur um
Siglingavernd sem eiga að taka gildi eftir 1. júlí n.k. Allar útgerðir
í kaupskipasiglingum keppast við að búa skip sina varnaráætlun-
um sem eiga að mæta þessum kröfum sem þvingaðar voru fram
af Bandaríkjamönnum í kjölfar 11. september. Nú rétt tæpum
tveimur mánuðum fyrir gildistökuna hefur 95% skipa undir Lí-
beriufána fengið útgefin nauðsynleg skírteini þar af lútandi og
teljast því reiðubúin að takast á við þá ógnun sem steðja að keup-
skipum frá hryðjuverkamönnum.
Skemmtiferð eða hvað?
Skemmtiferðaskipið Pacific Sky verður vart talið skenrmtilegt
fyrir þá 140 farþega og 10 skipverja sem smituðust af svokölluð-
uin Norovírus fyrir skemmstu. Var þetta í annað sinn sem þessi
skæði víras skaut upp kollinum um borð í skipinu og ekki var
annað að gera en að setja alla þessa 150 veiku einstaklinga í ein-
angrun um borð í skipinu. Skipið sem var á siglingu i Suður
Kyrrahafi var snúið til Sidney í Ástralíu þar sem farþegunum var
komið á sjúkrahús og skipið sett í sótthreinsun eina ferðina enn.
Bandaríska aðferðin
Rússneskur stýrimaður á efnaflutningaskipi Latavian Shipping
Company var fyrir skömmu vísað úr landi í Bandaríkjunum og
mátti fljúga heim til Rússlands. Hann átti nú síst von á slíkum
mótttökum þar í landi þegar skip hans kom til hafnar i Port Arth-
ur í Texas á laugardegi. Það var reyndar ekki fyrr en á mánudegi
sem tollgæslan sá sér tíma að fara um borð í skipið. Skipið hafði
þá legið við bryggju í einn og hálfa sólarhring án þess að hafa
möguleika á að fá tollafgreiðslu. Þegar tollgæslan mætti á staðinn
var stýrimaðurinn að nýta sér þá tækni að geta hringt heim og
láta vita af sér en það var símaklefi á bryggjunni í 20 metra fjar-
24 - Sjómannablaðið Víkingur