Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2004, Qupperneq 39
ákveða í hvaða kostnað á að leggja
við hvert skip.
Daglegur rekstur er auðvitað
meðal annars stýring á afla hvers
skips og í okkar tilfelli miðast sú
anastýring við rekstur frystihússins
en þetta tvennt þarf að haldast i
hendur. Við erum með ákveðinn
kvóta og það þarf að dreifa honum á
skipin og þetta þarf allt að falla að
þörfum frystihússins fyrir hráefni.
Allt miðast svo að sjálfsögðu við það
að hámarka afkomuna því það er
hún sem þetta snýst allt urn.
Starf útgerðarstjórans snýr einnig
að öllum öðrum rekstri skipanna en
því sem snýr beint að veiðunum, og
þótt málin séu unnin af öðrunt þá
ber útgerðarstjórinn ábyrgðina á því
að hlutirnir séu framkvæmdir“ segir
Sæmundur, og er ekki annað að
heyra en að orðið rekstrarstjóri nái
betur að lýsa starfinu en útgerðar-
stjóratitillinn.
- Eru mikil samskipti við karlana
á skipunum?
, Já, já þau eru mikil, og sérstak-
lega þá við yfirmennina sem maður
er alltaf í daglegu santbandi við. Svo
heyrir maður alltaf í undirmönnun-
urn og fólkinu þeirra í landi líka. Ég
tel mig geta sagt að ég sé í góðu
sambandi við sjómennina og kon-
urnar þeirra hringja gjarnan og eru
að leita eftir svörum við ákveðnum
spurningum sem ég get leyst úr“.
- Þú hefur sannarlega verið beggja
megin borðsins, bæði til sjós og svo
tengiliður við sjómennina í landi. Hvern-
ig lítur þú á sjómennskuna í dag, er þetta
ekki allt annað starf en það var, fyrir bara
fáunt árum?
,Jú sem betur fer. Aðbúnaðurinn er
t.d. allt annar svo ekki sé meira sagt. Á
móti kemur að það eru gerðar rniklar
kröfur til þeirra manna sem eru um borð
og þeir verða að standa sig. Það er mikill
afli sem fer um hendur fárra rnanna og
þeir bera mikla ábyrgð á að koma með
gott hráefni í land“.
Daglegt samband við
skipstjórana
Þar sem við Sæmundur sitjum við
glugga í höfuðstöðvum ÚA/Brims á Ak-
ureyri sjáum við togarann Árbak liggja
félagsins að hliðra hluturn til og
vinna úr þeirn saman. Það er að
ýmsu að hyggja í sambandi við afla
og tegundir sem er verið að veiða
og hversu mikið er tekið um borð af
fiski því yfirleitt eru skipin ekki
send út og stefnt á fullfermi. Það
eru svona ýmsir hlutir sem við þurf-
urn að leysa saman og láta þetta
falla sem best að heildarhagsmun-
um fyrirtækisins“.
- Nú ert þú gamall ÚA-maður,
hvernig líst þér á breytingarnar sem
orðið hafa á eignarhaldinu á fyrir-
tækinu að undanförnu?
,,Ég hef nú ekki neitt miklar
skoðanir á þeim hlutum, og tel mig
ekki vera í hópi þessara ,,hörðu“
ÚA-manna sem stundum er talað
um. Ég lít miklu fremur til þess
hvernig muni spilast úr málefnum
sjávarútvegsins í heild á næstu
misserum og hvort við verðunt und-
ir í þeirri miklu baráttu sem er á
öllum vígstöðvum, ekki hvað síst er
varðar sölumálin. Það er ekkert
öðruvisi í sjávarútvegi en öðrum at-
vinnugreinum að menn verða að
standa sig til að lenda ekki undir í
baráttunni. Það hefur ýmislegt verið
á móti að undanförnu eins og lágt
verð og óhagstæð gengisskráning.
Það er því gott að til skuli vera
menn sem vilja leggja peningana
sína í þann banka sem heitir sjávar-
útvegur og skilar þeim ef til vill ekki
nógu miklu til baka af því að aðstæður
eru eins og þær eru“.
- Nú er sjómannadagurinn framundan.
Hver er afstaða þín til þess merka dags
og telur þú hann skipta miklu fyrir sjó-
menn?
,Já, sjómannadagurinn á að vera hátíð-
isdagur en ég segi eins og margir aðrir að
hann er timaskekkja á dagatalinu. Þessi
tímasetning rekst illa á við til dæmis út-
hafsveiðar sem eru í hámarki í byrjun
júní og síldveiðar norður í höfum svo
eitthvað sé nefnt. Auðvitað á að halda
hátíðlegan dag sjómanna einu sinni á ári
en ég held að við verðurn að finna ein-
hvern annan tíma fyrir þennan hátíðis-
dag, svo sem nærri verslunarmannahelg-
inni, bara svo ég nefni einhverja dagsetn-
ingu“ sagði Sæmundur.
-gk
Við verðum aðfinna cinhvern annan tíma fyrit þennan há-
tíðisdag, er skoðwi Sœmunclai:
við bryggju fyrir ulan, og við spyrjum
Sæmund um hvert sé hlutverk hans
varðandi það skip þegar það er í landi.
„Það er nýlokið að landa úr Árbaki og
hann fer út i kvöld. Ég er búinn að setj-
ast niður með skipstjóranum og fara yfir
það tneð honunt hvað er ætlast lil að
hann reyni að gera í næsta túr. Línurnar
hafa verið lagðar varðandi lengd lúrsins
og hvaða tegundir á að veiða. Tíminn
sem líður frá því að búið er að landa og
þangað til farið er út er notaður til að
dytta að ýmsu um borð en það eru alltaf
einhver atriði sem þarf að skoða og lag-
færa eftir hvern túr.
Þegar veiðiferðin er hafin er ég í dag-
legu sambandi við skipstjórann og fæ
upplýsingar um aflabrögð. Hafi hlutirnir
ekki gengið eins og lagt var upp með
reynum við í sameiningu og jafnvel í
samvinnu við skipstjóra á öðrum skipurn
Sjómannablaðið Víkingur - 39