Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2004, Qupperneq 50
Unnið að reglum um
umhverfismerkingar
Á Fiskiþingi 14. maí hélt Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra rœðu og sagði þar meðal annars:
í samstarfi Norðurland-
anna hefur lengi verið unnið
að því að koma reglum um
umhverfismerkingar á dag-
skrá FAO. Mikil vinna hefur
verið lögð í það verkefni, og
er skylt að þakka Fiskifélag-
inu og forystumönnum þess
fyrir ötult og óeigingjarnt
starf á þeim vettvangi. í fyrra
var málið loks tekið til alvar-
legrar umfjöllunar í FAO, og
haldinn var fundur sérfræð-
inga víða að úr heiminum til
að setja saman drög að leið-
beinandi reglum um um-
hverfismerki og notkun þeirra. Skýrsla
þess starfshóps var samþykkt á fundi
undirnefndar FAO í febrúar og verður
haldinn stór fundur allra aðildarríkjanna
í október þar sem nánar verður farið yfir
tillögur sérfræðinganna. Náist sátt um
tillögur á þeim fundi má reikna með að
fiskveiðinefnd FAO samþykki þessar
leiðbeinandi reglur og þar með er helsta
markmiðinu náð sem lagt var upp með.
Næsta skref verður svo greinin sjálf að
stiga, þ.e. kaupendur og seljendur. Það er
ykkar sem starfa í greininni að nýta þá
möguleika sem hugsanlega felast í því að
geta sett merki á vöruna sem upplýsir
neytandann um að fiskurinn
komi úr stofni sem er nýttur
með sjálfbærum hætti. Það
verður að gera ráð fyrir að að-
ilar sem ætla að hasla sér völl
á þeim markaði, sem þetta er,
verði að geta vísað til þess að
þeir fylgi þeim leiðbeinandi
reglum sem FAO hefur sett til
að njóta trausts. Þannig verður
til grundvöllur að samkeppni
þar sem aðilar byggja á sam-
bærilegum forsendum.
Alþjóðleg stórfyrirtæki eru
farin að beina sjónum sínum
æ meira að uppruna þeirrar
vöru sem þau selja, ekki einungis holl-
ustu og öryggi vörunnar, heldur líka á-
hrifum nýtingarinnar á umhverfið. Hvað
fiskinn varðar er spurt hvorl hann komi
úr stofni sem er nýttur á sjálfbæran hátt.
Almennt hefur ekki verið unnt að svara
því með óyggjandi hætti, enda engin full-
nægjandi skilgreining til auk þess sem
aðstæður eru misjafnar rnilli stofna og
svæða. Með leiðbeinandi reglum FAO
verður til grunnur að slíku mati sem ætti
að leiða til þess að einstakir stofnar verði
metnir á út frá sama grunni. Nú er stað-
an sú að mörg þessara fyrirtækja hafa
farið þá leið að setja eigin kröfur til veiða
og nýtingar stofna áður en þau selja af-
urðirnar sem afurðir úr stofni sem nýttur
er með sjálfbærum hætti. Sem dæmi má
nefna Carrefour, McDonalds og Unilever.
Umræður og kröfur kaupenda um ör-
yggi sjávarafurða hafa jafnframt aukist á
undanförnum árum og munu aukast enn
frekar í framtíðinni. Það er mikil áskorun
fyrir okkur íslendinga að viðhalda og
renna styrkari stoðum undir það góða
orðspor sem íslenskar sjávarafurðir hafa í
dag.
í gegnum tíðina hefur það sýnt sig að
neikvæð umfjöllun í fjölmiðlum getur á
stuttum tíma eyðilagt jákvæða ímynd af-
urða senr tekið hefur áratugi að byggja
upp. Útflutningstekjurnar eru því háðar
því að við tryggjum öryggi sjávarafurða,
rekjanleika þeirra og að við gelunr sýnt
fram á að þær séu öruggar með hliðsjón
af þeim lögum, reglugerðum og kröfum
markaðarins sem gilda á hverjum tíma á
hinunr mismunandi markaðssvæðum is-
lenskra sjávarafurða. Gildir þar einu unr
hvort um er að ræða ferskan fisk, unnar
afurðir eða fiskeldi. Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins (Rí) hefur á að skipa sér-
fræðingunr á sviði örvera og mengandi
efna en frekari uppbygging á þessu sviði
er mikilvæg fyrir sjávarútveginn í fram-
tíðinni.
Ámi M. Mathiesen sjáv-
arútvegsráðherra.
íslandi allt
Frakki, Breti, Svíi og íslendingur fóru saman í ferð með Ioft-
belg. Þeir njóta ferðarinnar og útsýnisins þar til þeir uppgötva
að loftbelgurinn lækkar sig óðfluga. Til þess að bjarga loftbelgn-
um og félögunum segir Bretinn: God save the queen, og stekkur
fyrir borð.
Loftbelgurinn hækkar nú Ilugið en ekki líður á löngu þar til
hann fer aftur að lækka sig ört. Nú er það Frakkinn sem stendur
á fætur og hrópar: Vive la France og stekkur fyrir borð og bjarg-
ar þar með loftbelgnum og hinum.
En ekki vill betur til en svo að loftbelgurinn byrjar enn að
lækka sig og útlitið ekki gott. Þá rís íslendingurinn á fætur og
hrópar: íslandi allt!. Tekur síðan Svíann og hendir honum fyrir
borð.
Sumarhitinn
Konan vaknaði á mjög heitum sunnudagsmorgni og fór að
kvarta undan hitanum við rnann sinn:
- Ég get bara ekki hugsað mér að vera í fötum í dag. Hvað
heldur þú að nágrannarnir segðu ef ég væri að dunda í garðin-
um í dag allsber?
- Þeir segðu ábyggilega að ég hefði gifst þér til fjár.
50 - Sjómannablaðið Víkingur