Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2004, Síða 4
Nýtt
fyrirkomulag
Afundi sambandsstjórnar FFSÍ nú á haustdögum var
samþykkt að ganga til samninga við Bókaútgáfuna Hóla
um að aðstandendur þess tækju að sér að gefa út Sjómanna-
blaðið Víking í umboði FFSÍ. Áður höfðu forsvarsmenn fé-
laga innan sambandsins samþykkt að leggja útgáfunni lið
með ákveðnu framlagi. Þetta er að mati undirritaðs merkur
áfangi fyrir þær sakir að frá og með þessu blaði er ætlunin
að allir starfandi félagsmenn fái blaðið sent heim án endur-
gjalds. Þar með er útbreiðsla blaðsins orðin meiri og blaðið
um leið orðinn betri vettvangur en verið hefur fyrir skip-
stjórnarmenn og samtök þeirra. í raun má segja að eftirleið-
is ætti Sjómannablaðið Víkingur að geta verið virkt málgagn
skipstjórnarmanna og reyndar allra íslenskra sjómanna. Það
má segja að löngu hafi verið tímabært að til yrði málgagn
sem tryggt væri að öllum félagmönnum bærist í hendur. Ég
hef fengið góðar ábendingar í þá veru að talsvert skorti upp
á upplýsingaflæði frá FFSÍ og sambandsfélögum til félags-
manna.
Það er því fagnaðarefni að útgáfu blaðsins hafi verið
breytt með þessum hætti . Ég hvet menn því til að nýta sér
blaðið til skoðanaskipta, en blaðið mun að sjálfsögðu inni-
halda upplýsingar um það sem efst er á baugi hjá samband-
inu og aðildarfélögum þess eins og verið hefur. Gott sam-
band milli forsvarsmanna og félagsmanna er forsenda fyrir
jákvæðu starfi. Ljóst er að málgagn og heimasíður hafa þar
miklu hlutverki að gegna en það breytir þó ekki þeirri stað-
reynd, að bein samskipti þar sem menn hittast og fara yfir
málefni líðandi stundar er og mun verða sá vettvangur sem
þyngst vegur í samskiptum manna. Það er undirrituðum
Ijóst og hann mun stefna að því markmiði að efla þann þátt
í starfseminni. Ég vil bjóða þá Hólamenn, Jón Hjaltason og
Guðjón Inga Eiríksson, velkomna til samstarfs og vænti
góðs af samstarfinu. Jákvæður þáttur í þessum breytingum
felst einnig í því að blaðið verður áfram undir styrkri rit-
stjórn Sæmundar Guðvinssonar og Sigrún Gissurardóttir sér
um auglýsingaöflun svo sem verið hefur um árabil. Sjó-
mönnum öllum og fjölskyldum þeirra óska ég gleðilegra
jóla, árs og friðar með þakklæti fyrir samstarfið á því ári
sem er að hverfa í aldanna skaut.
Árni Bjarnason.
I Igefantli: Bókaúigaian iiolar 1 r.amvinnu við Farmanna og / Q
fiskímannasamband íslantls. / ’
Afgrciðsla og áskrift: simar 587-2619 og 462-2515. I frKl
Ritsijóri og ábyrgðarmaður: Sæmundur Guðvin.-on. sími 868 2159, lAVnSpn//
nctfang sgg@mnicdia.is. Pósih.ilf 1656, 121 Rcykjavík. 'sSxgS
Augly singastjóri: Sigrún Gissurardóttir. sfmi 587-4647.
Rilncfnd: Arni Bjarnason, Hílmar Snorrason ogjón Ujaliason. CT CT O I
Forscti I-FSÍ; Arni Bjarnason. I I OI
Prcntv innsla: Gutenbcrg.
Aðildarfclög FFSi: Fílag skipstjórnarmanna, F'élag Islenskra loftskcytamanna, Félag bryt
Skipstjóra- og slyrimannafélógin Verðandi, Veslmannacyjum og Vísir, Suðurncsjum,
Sjómannablaðið Víkingur kcmur út f|<Srum sínnum á ári og er dreift til allra fclacsmanna
FFSi.
Dlaðið kemur úi fjórum sinnum á ári,
4
6
10-12
14-17
20-23
26-30
36-37
38
42-45
48-50
Forystugrein Árna Bjarnasonar forseta FFSÍ.
Jólahugvekja eftir Halldór Reynisson.
Formannaráðstefnan á Siglufirði.
Viðtal við Árna Bjarnason um nýjan kjarasamn-
ing Farmanna- og fiskimannasambandsins og
Sjómannasambands íslands við Landssamband
íslenskra útvegsmanna.
Jón Birgir Pétursson blaðamaður greinir frá
atburðum í heimsstyrjöldinni síðari þegar breski
dráttarbáturinn Empire Wold hvarf í björgunar-
leiðangri frá Reykjavík er hann reyndi að koma til
aðstoðar í kjölfar árásarinnar á Goðafoss.
Fróðleg grein eftir Birgi Loftsson sagnfræðing
þar sem hann fer ofan í saumana á fiskveiðideiiu
íslendingar og V-þjóðverja á árunum 1972-1977.
Birgir skrifar hér athyglisverða grein um þessa
deilu sem hefur horfið í skuggann af átökunum
við Breta þá fiskveiðilandhelgin var færð út.
Sigling um Netið. Hilmar Snorrason siglir um
internetið og fangar margar athyglisverðar
heimasíður sem vert er fyrir alla netverja að
kynna sér.
Skorin upp herör gegn vanbúnum skipum. Grein
eftir Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra sem
sat fund ráðherra siglingamála þeirra landa sem
hafa staðfest samþykktir um hafnarríkiseftirlit. Á
fundinum var undirrituð yfirlýsing um að tryggja
enn betur öryggi sjófarenda með þessu eftirliti.
Sjómenn eru of þungir og þeir eru með of háan
blóðþrýsting. Úrdráttur úr skýrslu Lovísu Ólafs-
dóttur um rannsókn hvíldar á heilsu og öryggi
sjómanna. Niðurstöðurnar benda eindregið til
þess að heilsufar stórs hluta sjómanna gjaldi
þess vinnuumhverfis sem þeir starfa í.
Hilmar Snorrason bregður sér í siglingu um
heimshöfin og fiskar upp að venju margar forvit-
nilega fréttir af þeim slóðum sem við birtum
undir titlinum Utan úr heimi.
50-51
52-56
57-60
Gísli Hjartarson á ísafirði heldur áfram að skrifa
hinar sívinsælu vestfirsku þjóðsögur sem hafa
kitlað hláturstaugar landsmanna undanfarin ár.
Hér er sýnishorn úr nýjustu bók Gísla og
húmorinn bregst ekki frekar en fyrri daginn.
Um borð í Hagbarði. Kaflar úr nýrri bók eftir
Guðmund G. Halldórsson frá Kvíslarhóli á
Tjörnesi þar sem hann segir undan og ofan af
sinni sjómannsævi ásamt ýmsu fleiru.
Fréttir af ýmsum toga sem tengjast sjávarútvegi.