Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2006, Qupperneq 64
Fróðijrá Þingeyri kemur hinn 15. mars 1941 til hafnar í Reykjavík. Um horð eru líkfimm skipverja.
Ljósmynd Skafti Guðjónsson/Ljósmyndasafn Reykjavíkur
ur er Eyjólfur kom inn í klefann, en
auðséð var að kúlur höfðu hæft klefann,
því að björgunarbelti Eyjólfs sem hékk
uppi á veggnum, var orðið sundurskotið.
Frá klefanum sást út á bátadekkið og
kom Eyjólfur þar auga á þrjá skipverja
er stóðu við björgunarbátinn. Voru þeir
Þorsteinn Karlsson, Hávarður Júlíusson
og Árelíus Guðmundsson. Stígvél Eyjólfs
voru undir koju hans og beygði hann
sig niður eftir þeim. í sömu andrá skall
kúlnahrið á klefanum og þegar henni
linnti var Guðjón stýrimaður fallinn.
Eyjólfi varð litið út á bátadekkið. I’ar lágu
nú mennirnir þrír í blóði sínu.
Og enn magnaðist skothríðin.
Þrumugnýr fyllti loftið og Eyjólfur taldi
að bæði væri skotið af vélbyssum og
fallbyssu á skipið. Hann skreið út úr
klefanum og aftur að björgunarbátnum
stjórnborðsmegin. Þar var fyrir Óskar
Vigfússon kyndari, lifandi en illa særður.
Þegar hér var komið sögu var kvikn-
að í yfirbyggingunni á Reykjaborg. Stóð
öll efri brúin í ljósum logum, en lengra
fram á skipið varð ekki séð fyrir myrkri
og reyk. Enn var það þó ekki tekið að
sökkva. Eyjólfur skreiddist upp í björg-
unarbátinn og sagði Óskari að koma með
sér. En til þess hafði hann ekki þrek. í
sömu svifum og Eyjólfur kom upp í bát-
inn, dundi kúlnahrina yfir bátadekkið og
kubbaði í sundur falinn sem hélt bátnum
í afturdavíðunni. Féll þá skutur bátsins
niður í sjóinn en báturinn hékk á stefn-
isfalnum í framdavíðunni. Eyjólfur kast-
aðist í sjóinn, en tókst að ná taki á borð-
stokknum á björgunarbátnum og vega sig
aftur um borð í hann. Skreið hann síðan
aftur upp á bátadekkið og að björgunarf-
leka sem þar var. Á leiðinni þangað varð
hann var við Jón Lárusson, matsvein, sem
fallið hafði þarna á bátadekkinu, Óskar
kyndari komst ekki með Eyjólfi að flek-
anum. Hann tók þann kostinn að skríða
niður í bátinn, sem hafði nú losnað við
skipið og maraði á kafi við skipshliðina.
Eyjólfur sá að bakborðsbáturinn var enn
á sínum stað, en greinilega orðinn gjöró-
nýtur. Eldur var nú einnig kominn upp í
klefanum fyrir aftan reykháfinn.
Meðan á þessu stóð varð Eyjólfur var
við kafbátinn. Hann virtist færa sig kring-
um skipið, 30-40 faðma frá því, og reyna
að hæfa mennina með byssum sínum.
Engin þjóðerniseinkenni sáust á bátnum.
Til þess var of dimmt. Reyndi Eyjólfur að
færa sig til eftir því sem skotið var á skip-
ið, og fékk hann ekki fleiri sár.
Þegar árásin hafði staðið yfir í nær
klukkustund, var eins og skipið fengi á
sig mikinn slink, og eftir það byrjaði það
að hallast og sökkva ört. Fór Eyjólfur þá
upp á björgunarflekann og tók með sér
þangað teppi sem Runólfur Sigurðsson
hafði átt og lá á bátadekkinu. Þangað að
flekanum kom einnig Sigurður Hansson,
kyndari, sem hafði verið með Eyjólfi í
brúnni þegar árásin hófst. Hafði Sigurður
þá farið niður í vélarrúmið til Óskars, 1.
vélstjóra, og sagt honum hvað væri um
að vera. Skömmu síðar kom skot i gegn-
um skipssíðuna sem eyðilagði ljósaleiðsl-
una og einnig var gufurör hæft, þannig
að gufan blés út og vélin stöðvaðist. Fóru
mennirnir þá úr vélarrúminu og upp á
þiljur. Sáu þeir strax að maður lá fallinn
í ganginum fyrir framan afturgálgann og
töldu að það væri Runólfur Sigurðsson.
Ætluðu þeir að fara til hans, en þá dundi
yfir kúlnahríð svo þeir urðu að hverfa frá.
Leituðu þeir skjóls við spilið á þilfarinu,
en þar urðu Óskar Þorsteinsson, 1. vél-
stjóri, og Óskar Ingimundarson, kyndari,
fyrir skotum örskömmu síðar og féllu.
Þegar svo var komið leituðu þeir Sigurður
og Gunnlaugur Ketilsson 2. vélstjóri,
skjóls undir spiltromlunum, sinn hvoru
megin. Urðu þeir þá varir við Ásmund
1. stýrimann, sem, kallaði til þeirra og
spurði hverjir væru fallnir og særðir.
Hafðist Ásmundur þá enn við í neðri
brúnni og virtist ósár. Þarna undir spilinu
fékk Sigurður skot í fótinn og einnig
varð hann var við að skipið var farið að
sökkva það mikið að sjór var farinn að
fossa inn á þilfarið. Stóð hann þá á fætur
og kallaði lil félaga síns. En Gunnlaugur
svaraði ekki. Hann hafði orðið fyrir kúlu
og var látinn. Skipið var komið að því
að sökkva er Sigurður komst að flek-
anurn. Eyjólfur og hann lágu þarna og
sáu skipið rísa meira og meira að framan.
Flekinn fór á flot og snerist í soginu frá
skipinu. Svo hvarf Reykjaborg í djúpið.
Kafbátsmönnum hafði tekist ætlunarverk
sitt.“
Hitler vildi drepa alla
Bandaríski blaðamaðurinn Clay Blair
sem var kafbátsmaður á Kyrrahafi i síð-
ari heimsstyrjöld, hefur skrifað bók sem
heitir HITLES U-BOAT WAR. Ekki er
neitt minnst á framangreindar árásir í
bókinni. Þar segir af ferðum U 552 í
febrúar og mars 1941 en hann lagði upp í
leiðangur 22. febrúar og var á veðurvakt
ásamt þremur öðrum bátum.
Þjóðverjar höfðu árið 1936 skrifað
undir alþjóðasamning um notkun kafbáta
á stríðstímum (Submarine Protocol). í
samningnum er ákvæði um að ekki megi
sökkva skipum, öðrum en herskipum,
nema öryggi áhafna sé tryggt.
Ákvæðið var þannig að var að sökkva
mátti skipum eftir að áhöfn var komin í
björgunarbáta og öryggi hennar tryggt.
Þýski flotinn túlkaði reglurnar á þann
hátt að skip sem sigldu undir her-
skipavernd, væru á ferð í hernaðarlegum
tilgangi og því heimilt að ráðast á þau og
einnig skip sem sigldu ljóslaus.
Adolf Hitler boðaði flotaforingjana
Erich Ráder og Karl Dönitz, á sinn
fund 14 maí 1942 og lýsti áhyggjum
sínum vegna flutnings á hergögnum yfir
Atlantshafið. Hitler hafði komið það ráð
í hug að kafbátsmenn dræpu eftirlifandi
sjómenn í björgunarbátum, með því taldi
hann að ekki fengjust menn á skipin.
Flotaforingjarnir höfnuðu þessari hug-
mynd Hitlers og svöruðu því til að ef
hann útvegaði tundurskeyti sem virkuðu
rétt þá þyrði enginn á sjó lengur.
Torbay, hvaða skip var það?
í ársbyrjun 1941 áttu Bretar undir högg
að sækja í styrjöldinni, þeir höfðu á til-
finningunni að íslendingar væru þeim
andsnúnir. Hermálayfirvöld létu hand-
taka forustumenn verkamannafélagsins
Dagsbrúnar fyrir að dreifa bréfi þar sem
hermenn voru beðnir að ganga ekki í
verkamannastörf ef af boðuðu verkfalli
yrði. Ritstjórar Þjóðviljans og blaðamaður
voru handteknir vorið 1941 og settir í
breskt fangelsi þar sem þeir máttu dúsa
vikum saman fyrir litlar sakir.
64 - Sjómannablaðið Víkingur