Náttúrufræðingurinn - 1961, Side 12
106
NÁT TÚRU FRÆ ÐINGURINN
11. Síðari athuganir. Það er ljóst af því, sem á undan hefur
verið sagt, að upplýsingar um hitastig jarðvegsins hér á landi eru
harla takmarkaðar, og að lieita má alls engar í þeim dýptum, er
varða plönturnar mest. Því var það sumarið 1957, að höfundur
þessarar greinar hófst handa um nokkrar smáathuganir á hitastigi
jarðvegs í 15 cm dýpt undir grasi. Við mælingarnar var notaður
þar til gerður kvikasilfurs-hitamælir úr gleri, sem varinn var að
utan með eirröri. Mælir þessi stóð ólneyfður á sama stað allan tím-
ann, sem athuganirnar voru gerðar. Helztu niðurstöður, sem þá
fengust, eru dregnar saman í töflu 5.
TAFLA5
Hitastig (°C) í 15 cm dýpt undir grasi. Reykjavík 20 m yfir sjó. 1957. Meðaltöl.
Kl. 13.00 Kl. 24.00
Júlí 14.2 (23)1) 13.1 (29)
Ágúst 13.3 (20) 12.2 (31)
September 9.7 (13) 8.6 (19)
TABLE 5. Soit lemperatures (°C) at 15 cm clepth under permanent grass
near Reykjavik, 20 m above sea-level. 1957■ Mean values.
1) Tölur í svigum vísa til fjölda athugana.
1) Figures in parenthesis refer to number of measurements.
Þess má geta hér, að hæstur mældist hitinn um hádegisbilið dag
einn um miðjan september eða 17.2° C. Þann dag varð einnig
mestur mismunur á hitanum mældum um hádegið og hitanum
mældum á miðnætti eða 4.9° C.
Svo er að geta undirbúningsathugana á hitastigi jarðvegsins, sem
undirritaður hefur séð um á vegum Búnaðardeildar Atvinnudeild-
ar Háskólans. Voru þær gerðar í tilraunalandinu að Varmá í Mos-
fellssveit sumarið 1960. (Sjá líka: grein um sama efni í Nature
191:939. 1961).
Mælingarnar voru gerðar í 5 cm, 10 cm og 20 cm jarðvegs-
dýpt undir grasi (þ. e. í túni) og í sömu dýptum til samanburðar
í opnu moldarflagi. Jarðvegi á þessum stað má að nokkru leyti
lýsa sem sendnum eða gróf-sendnum, og inniheldur hann um
10—15 prósent lífrænna leifa miðað við fyrrgreinda jarðvegsdýpt.