Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1962, Qupperneq 20

Náttúrufræðingurinn - 1962, Qupperneq 20
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN G6 Sóldýrin, Heliozoa, lifa í ferskvatni og líkjast í fljótu bragði Ra- diolaria. (15. mynd.) Þau liafa enga stoðgrind og mjög sjaldan skel, en mjög langa og mjóa frymisanga. Sóldýrin nota frymisangana sem hreyfifæri. Hreyfing þeirra er samt frábrugðin hreyfingu amabanna, því að sóldýrin velta áfram á frymisöngunum. Dýrin nota frymis- angana líka til að halda bráðinni fastri, en mörg þeirra lilá á öðr- um frumdýrum eða þörungum. III. Gródýr (Sporozoa). Öll gródýr eru innri sníklar, lifa svo til undantekningarlaust inni í lifandi frumum á einhverju skeiði ævinnar. Líkamar þeirra hafa, svo sem títt er um líkama sníkjudýra, markazt af sníkjulífinu. Gró- dýrin geta ekki hreyft sig úr stað á aðalskeiði ævinnar. Æviferill þeirra er oft mjög flókinn. Þar skiptast á mis- munandi æxlunaraðferðir, og lögun dýranna er ol't mjög mismunandi á ýmsum æviskeiðum. Olt þurfa gró- dýrin að flytjast úr einni clýrategund í aðra til að Ijúka æviferlinum. Ein- hvern tíma á þessari braut myndar dýrið gró, þ. e. lík- aminn skiptist í marga smá- liluta, sem hver um sig verð- ur að nýju dýri. Sem dæmi um gródýr skal hér nefnd ættkvíslin Plasm- odium, en ýmsar Plasmodium-tegundir valda hitabeltisveikinni malaríu. Gródýrin lifa nokkurn hluta ævinnar í mýflugum af ætt- kvíslinni Anopheles, þar sem þau æxlast kynæxlun og berast síðan inn í munnvatnskirtla mýflugunnar. Er mýflugan bítur mann, ber- ast gródýrin með bitinu í blóð mannsins. Þar taka dýrin miklum breytingum, leita inn í rauð blóðkorn og mynda þar gró. Við gró- myndunina springa blóðkornin milljónum saman samtímis, og lylgir því hár sótthiti. Nokkur hluti gróanna kemst á ný í blóðkorn. 15. mynd. Sóldýr, Aclinopluys sol. Sóldýrin, Heliozoa, líkjast Radiolaria, þau hafa sanit enga stoðgrind, en langa, stinna frymisanga. 1 frymisangi að umlykja fæðuögn; 2 herpi- bóla.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.