Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2002, Síða 46

Náttúrufræðingurinn - 2002, Síða 46
Vindar eiga stóran þátt í að dreifa fræi. Hjá tegundum eins og geldingahnappi, gullkolli og smára geta uppþornuð blóm eða blóm- skipanir fokið um kring og borið með sér fræ. Á sama hátt geta blaðgróningar blávinguls borist töluverðar vegalengdir. Algengast er þó að fræ séu búin vængjum eða svifhárum og geti svifið langar leiðir. Má þar nefna birki, holtasóley og svo allar þær tegundir sem þama eru af eyrarrósar-, körfublóma- og víðiætt. Njólafræin eru einnig vængjuð en þau eru tiltölulega þung og berast tæplega langar leiðir með vindi. Þau kunna þó einnig að hafa verið í fræforða þess jarðvegs sem fluttur var á svæðið. Þegar njólinn er á annað borð kominn í reskiland eins og þetta er hann fljótur að dreifa sér. Fræ plantna af víðiættinni eru fislétt og berast langar leiðir með vindi. Allar innlendu víðitegundirnar hafa þegar fundist þarna en auk þeirra viðja, alaskavíðir og selja. Viðja og gulvíðir eru algengustu tegundirnar og kemur það ekki á óvart þar sem báðar eru þekktar að því alls staðar í heimkynnum sínum að vera fljótar að setjast að þar sem landi hefur verið raskað. Sjálfgrónar plöntur af alaskavíði fóru ekki að finnast hér á landi fyrr en í byrjun seinasta áratugar síðustu aldar (Jóhann Pálsson 1997). Má ætla að elsta alaskavíðiplantan þama sé á aldur við þær. Mikið er ræktað af alaskavíði við Grafarvog svo að það kemur ekki á óvart að plöntur af honum hafi numið þama land. Meiri furðu vekur að finna þarna tvær seljuplöntur. Til skamms tíma báru mjög fáar seljur fræ í Reykjavík og um það leyti sem eldri seljuplantan hefur verið að koma sér fyrir þarna voru engar fræbærar seljur nær en niðri í Laugardal og á Laugarásnum, sem er í um það bil þriggja kílómetra fjarlægð frá þessum stað. Ein sjálfgróin planta af alaskaösp hefur fundist þarna. Sjálfgrónar plöntur þessarar tegundar hafa verið að koma í ljós á höfuðborgarsvæðinu á seinustu árum. Vitað er að plöntur hafa fundist í meira en kílómetra fjarlægð frá hugsanlegum móðurtrjám bæði í Eyjafirði og á höfuðborgarsvæðinu (Jóhann Pálsson 2000). Aspir við Tilraunastöð Háskólans að Keldum, sem er í eins og hálfs kílómetra fjarlægð frá Gullinbrú, hafa borið mikið fræ undanfarin ár og ekki er ólíklegt að eitthvað af aspartrjám í görðum við Grafarvoginn beri þegar fræ. Plöntur nota ýmsar aðrar leiðir en þær sem getið er um hér að framan til frædreifingar. Hrímblaðka og baldursbrá, sem vaxa í brim- stallinum austan við tangann, hafa vafa- laust borist þangað með sjó og ekki er ólíklegt að öldur hafi skolað fræjum ýmissa annarra tegunda, svo sem hvannar og geldingahnapps, á land. Það er þó langt í frá auðvelt að geta sér til um hvernig fjöldinn allur af þeim tegundum sem þama vaxa hefur borist á staðinn. Til dæmis er dálítið af blá- stjömu þarna en samkvæmt heimildum Náttúrufræðistofnunar Islands er ekki vitað til að sú tegund vaxi nær Reykjavík en vestur á Mýmm eða austur í Grímsnesi og á Skeiðum. Blástjaman hefur vaxið þama í nokkur ár. Hún er einær með hýðisaldin sem kastar frá sér fræjunum þegar plantan sveiflast til í vindi, en ekki eru fræin sérstaklega löguð til að geta borist langar vegalengdir. Það að hún skuli allt í einu skjóta upp kollinum á þessum stað er algjör ráðgáta. Grænvöndur er eina tegund ættkvíslar maríuvanda (Gentianella) sem fundist hefur þarna á fyllingunni og er þar ekki óalgengur. Þessi tegund hefur fram að þessu ekki l'undist við Grafarvoginn en vex t.d. í Elliðaárdalnum. Aftur á móti fannst þarna ekki sjálfur maríuvöndurinn (G. campestris), sem er þó mjög algengur alls staðar í nágrenninu. ■ NIÐURSTÖÐUR OG FREKARI GRÓÐURFRAMVINDA Eins og getið er í upphafi þessarar greinar var hér eingöngu gerð athugun á því hvaða tegundir æðplantna hafa náð að setjast að á landi sem mótað er af mannahöndum. Hvorki hefur verið gerð úttekt á þeim gróður- samfélögum sem þegar em farin að myndast né fylgst með framvinduferlum þeina. Núna er tegundafjöldi óvanalega mikill á þessu ti ltölulega litla svæði, sem býður þó ekki upp á margvíslegt landslag. Hlutfall einærra og 220
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.