Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1998, Síða 35

Náttúrufræðingurinn - 1998, Síða 35
1. tafla. Gáruskeljar sem fundist hafa í Tjörneslögum. Núverandi og eldri tegunda- greiningar. - Venerupis species from the Tjörnes beds. The first column lists current species names, the second lists previous identifications and synonyms with references. Núverandi tegundarheiti Fyrri greiningar og samheiti núverandi tegunda ásamt höfundum viðkomandi rita Venerupis aurea (Gmelin, 1791) Glóskel Tapes aureus; Poulsen 1884 Tapes aureus; Schlesch 1924 Tapes aureus; Guðmundur G. Bárðarson 1925 Venerupis aurea; Norton 1975 Venerupis aurea\ Gladenkov o.fl. 1980 Venerupis rhomboides (Pennant, 1777) Bugskel Tapes virginea; Winkler 1863 Tapes aureus; Guðmundur G. Bárðarson 1925 Venerupisperovalis; Gladenkov o.fl. 1980 Venerupis rhomboides; Gladenkov o.fl. 1980 Venerupispullastra (Montagu, 1803) Möttulskel Tapes aureus; Guðmundur G. Bárðarson 1925 Venerupis rhomboides; Gladenkov o.fl. 1980 tóku fram að V. rhomboides finnist einnig í neðri hluta tígulskeljalaga. Flestir fræði- menn telja nú að Venerupis perovalis, sem Englendingurinn Searles V. Wood lýsti upp- haflega árið 1840, sé sama tegund og nú heitir V. pullastra (sjá t.d. Heering 1950) og hér sé því um samheiti að ræða. Hitt virðist ljóst að skeljarnar sem þeir félagar töldu til Venerupisperovalis falla mun betur að lýs- ingu á V. rhomboides, en sumar skeljar sem þeir nefndu V. rhomboides eru hins vegar líkari V. pullastra, t.d. hlutfallslega lengri og áberandi þverstýfðari að aftan en V. rhom- boides. Venerupis aurea virðist aftur á móti rétt ákvörðuð hjá þeim. Þá hefur komið í ljós í Tjörnesferðum jarðfræðinema í Háskóla Islands að Venerupis rhomboides og V. pullastra ná að minnsta kosti upp í efri hluta tígulskeljalaga (í lag nr. 10 í riti Guðmundar G. Bárðarsonar frá 1925). Allt er þetta óneitanlega orðið nokkuð ruglingslegt, en niðurstaða okkar er sú að þrjár tegundir gáruskelja hafi fundist í neðri hluta Tjörneslaga (3. mynd og 1. tafla). Venerupis pullastra og V. rhomboides eru algengastar en V. aurea er hins vegar sjaldgæfari. Allar þessar tegundir hafa fundist r gáruskelja- lögunum og tvær þeirra, Venerupis pull- astra og V. rhomboides, hafa einnig fundist hér og þar í tígulskeljalögunum. Þess má geta að tígulskeljalögin byrja ekki þar sem gáruskeljarnar hverfa úr skeldýrasamfélögun- um heldur þar sem tígulskelin kemur inn í þau (4. mynd). Gáruskeljategundirnar þrjár eru nú al- gengar við Bretlandseyjar, en útbreiðslu- svæði þeirra nær raunar frá Lofoten við Vestur-Noreg til stranda Norður-Afríku. Venerupis pullastra er sú eina þeirra sem hefur fundist norðan við Lofoten og er hún útbreidd suður á bóginn til Marokkó eins og V. rhomboides, en V. aurea nær hins vegar lengra til suðurs, lil Rio de Oro í Vestur-Sa- hara (Tebble 1966, Petersen 1968). Þær lifa ekki lengur hér við land og Venerupis aurea ekki heldur við Færeyjar (Petersen 1968). Venerupis pullastra er sú eina þessara teg- unda sem lifir við strendur Danmerkur, en hún og V. aurea voru mjög algengar þar á steinöld þegar sjávarhiti var nokkru hærri en nú (Jensen og Spárck 1934). Þær lifa í mun hlýrri sjó en nú er við Norðurland og bendir það til þess að sjávarhiti gæti hafa verið að minnsta kosti 5-6° C hærri þegar gáruskelja- lögin voru að myndast en hann er á okkar dögum (Strauch 1972, Cronin 1991). Þessar 33
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.