Náttúrufræðingurinn - 1981, Page 8
5. mynd. Staðir þar sem starar hafa sést (spjaldskrá N. f.) til 1978. — Single observations of
starling in Iceland (circles), breeding localities before 1978 (circles with star), and in 1978 (dots).
Gardahreppur 1916
Bjarni Sæmundsson (1934) fékk þær
upplýsingar hjá Árna Björnssyni pró-
fasti í Görðum á Álftanesi að fuglapar
hefði verpt 1916 í kirkjuturninum þar
og komið upp ungum. Telur Bjarni
samkvæmt lýsingu Árna á fuglunum að
hér hafi annað hvort verið um að ræða
svartþröst eða stara.
Húsavík 1928
Júlíus Havsteen (1931) segir: „í sept-
embermánuði 1928 veittum við bræður
því eftirtekt, að hér á Húsavík voru tveir
starahópar, sem héldu til á bitum efst
upp undir kirkjuturninum á Húsavík-
urkirkju. I öðrum hópnum voru 7 fugl-
ar, en i hinum 6, og voru það auðsjáan-
lega tvenn hjón með ungum, — þetta
sagði litur fuglanna til um.“ Bjarni
Sæmundsson (1936) tekur þetta gilt og
segir að stari hafi verpt og ungað út við
Húsavík. Þar sem engin lýsing á litar-
mun fuglanna fylgir og jretta var í sept-
ember, þegar margir fuglar eru orðnir
óþekkjanlegir frá fullorðnum fugium, er
ekki hægt að skera úr um hvort stari hafi
verpt á Húsavík 1928.
Reykjavík 1935
Þann 21. mars 1935 sá Finnur Guð-
mundsson 4 stara við Laugarnesspítala
og héldu þeir sig þar til 6. apríl. Þá
hurfu þeir, en 13. apríl voru 2 starar
byrjaðir að byggja hreiður í holu undir
j^akskeggi á skúr bak við spítalann. Þeir
hurfu aftur 18. apríl, en \rá var hreiðrið
fullbúið en án eggja. Þann 25. apríl voru
tveir starar (sennilega sömu fuglarnir)
('arnir að byggja sér hreiður í hreiður-
150